Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson skrifar 19. apríl 2026 08:02 Kristin trú veitir manninum samhengi og farveg fyrir hinar andlegu hliðar mennskunnar, til að lifa lífinu á andlegan og kærleiksríkan máta, því kristin trú er grundvölluð á andlegum veruleika. Kærleiksríkur Guð er nálægur og leiðir framgang alls til góðs. Í stuttu máli grundvallast kristin trú einmitt á því, eins og segir í Litlu Biblíunni, svokölluðu: Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. (Jóh. 3:16) Þessi setning kjarnar hinn kristna boðskap. Dæmin eru síðan hvarvetna í kringum okkur þar sem birtustigið vex í lífi fólks sem hefur veitt þessum boðskap viðtöku í lífi sínu, þ.e. veitt þessum andlega veruleika viðtöku hið innra og borið gæfu til að iðka trúna og rækta þá ávexti sem af því hlýst. Birtingarmyndir þessa andlega veruleika í lífi okkar hvers og eins má síðan finna í enn meiri vináttu, enn ríkari kærleika, enn dýpri tengslum og skilningi á högum annarra. Þar má nefna kærleiksverk, mildi, góðvild og gæsku, fórnfýsi, sáttargjörð og fyrirgefningu. Rauði þráðurinn Rauði þráðurinn í boðskapnum er því um mikilvægi þess að stuðla að friði en ekki ófriði, huga meira að þörfum náungans en sínum eigin þörfum. Frásögur Biblíunnar miðla okkur síðan því að hvenær sem einhverjum í samtíma Jesú datt í hug að undanskilja einhverja hópa eða einstaklinga frá samfélaginu, halda þeim fyrir utan, þá gerði Jesú eitthvað eða sagði þannig að þeir einstaklingar eða hópar voru hið snarasta taldir með. Framganga Jesú staðfestir einmitt að við erum eitt mannkyn, við tilheyrum hvert öðru og allir skipta máli. Í hinu Biblíulega samhengi má sem dæmi um þetta vísa til Sídoninga og Samverja. Tvö dæmi úr samtímanum Þótt boðskapur kristninnar sé ritaður á spjöld mest seldu bókar heims, Biblíunnar, þá krefst boðskapurinn túlkunar. Boðskapurinn hefur alltaf krafist túlkunar. Við þurfum í sameiningu að svara því hvaða merkingu og áhrif boðskapurinn hefur á samtíma okkar og samfélag, hverju sinni. Alltaf er það síðan svo að boðskapurinn hefur liðið fyrir mistúlkanir og verst er þegar þær eru framsettar vísvitandi eða af ásetningi. Í dag getum við bæði litið okkur nær og fjær til að finna slík dæmi þar að pólitískir leiðtogar og frambjóðendur mistúlka hinn kristna boðskap sínum verkum og hugmyndum til stuðnings. Tvö dæmi vil ég nefna í því samhengi. Hið fyrra varðar einstaka pólitíska frambjóðendur á Íslandi sem fyrir sveitastjórnarkosningarnar í vor vilja fjarlægja fána af hinu opinbera sviði, fána sem er táknmynd þess að samfélagið styður viðkvæman hóp einstaklinga í sinni lífsbaráttu, fána sem er ekki á nokkurn máta fyrir neinum, en undirstrikar að við erum öll eitt samfélag. Hið síðara varðar svo ráðamenn í Bandaríkjunum sem efna til ófriðar og vísa sumir til helgrar bókar því stríði til stuðnings. Mælistikan Varðandi túlkun á hinum kærleiksríka boðskap þá var mælistika Jesú skýr. Um þá sem misstíga sig í túlkun hins kristna boðskapar og jafnvel af ásetningi nýta boðskapinn sér sjálfum eða málstað sínum til framdráttar, sagði Jesús: Af ávöxtunum skulu þér þekkja þá. Já, hverjir eru ávextir verkanna? Hver er afraksturinn? Stuðla verkin að friði eða ófriði, stuðla verkin okkar að því að fólk og hópar eru talin með eður ei? Í gegnum allar aldir hefur trúin verið misnotuð í pólitískum tilgangi og til að þjóna veraldlegum hagsmunum einstaklinga, hópa eða þjóða. Í gegnum allar aldir hefur trúin verið misnotuð sem rökstuðningur fyrir grimmdarverkum, þegar ljóst er að veraldlegir hagsmunir liggja að baki voðaverkunum. Við iðkun trúarinnar sem grundvölluð er á kærleika Guðs til heimsins alls og allra manna, er ekki spurt um kyn eða kynferði, stétt eða stöðu, trú eða þjóðerni. Við manneskjurnar erum allskonar og Guð elskar okkur öll, eins og við erum. Hjálpumst að við að iðka trúna, þ.e. leyfa hinum kristna kærleikaboðskap að hafa áhrifa á okkur til friðar, dýpri vináttu og aukins skilnings á högum og kjörum annarra. Höfundur er sóknarprestur í Fossvogsprestakalli. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trúmál Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Skoðun Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun