Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Birgir Olgeirsson skrifar 21. apríl 2026 18:37 Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins er allt annað en sáttur við ný sóttvarnalög. Vísir/Arnar Ný sóttvarnalög veita heilbrigðisráðherra heimild til að setja reglur um opinberar sóttvarnaráðstafanir, meðal annars um ónæmisörvanir á borð við bólusetningar, notkun hlífðarbúnaðar, afkvíun svæða, lokun skóla, stöðvun atvinnurekstrar og samkomubann. Brot gegn slíkum reglum getur varðað sektum eða allt að eins árs fangelsi. Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir Alþingi með þessu hafa fært ráðherra of víðtækar heimildir.
Lögin byggja á flokkun smitsjúkdóma eftir alvarleika. Við alvarlegum sjúkdómi má ráðherra, að fenginni tillögu sóttvarnalæknis, setja reglur um aðgerðir á borð við sóttkví, heilbrigðisskoðun, skimun, einangrun og sótthreinsun. Sé sjúkdómur hins vegar skilgreindur sem samfélagslega hættulegur verða heimildir stjórnvalda víðtækari og þá kemur sjö manna farsóttanefnd að tillögum um aðgerðir. Reglugerðir samkvæmt þessum heimildum mega að hámarki gilda í fjórar vikur í senn. Lögin eiga að taka gildi 1. september 2026. Í lögunum er kveðið á um að ráðherra geti sett ýmis sóttvarnaúrræði til að berjast gegn farsóttum. Þar á meðal svokölluð ónæmiörvun sem er bólusetning eða gjöf mótefnis. Viðurlagaákvæði laganna segir síðan að brot gegn reglum ráðherra um sóttvarnaúrræði geti varðað sektum eða allt að eins árs fangelsisvist, kjósi ráðherra að hafa reglurnar þannig. Frá fjöldabólusetningu í Laugardalshöll í Covid-faraldrinum. Vísir/Vilhelm Sigurður segir að þar liggi kjarni málsins. Að hans mati eru úrræðin ekki afmörkuð nægilega skýrt í lögunum sjálfum og of mikið sé lagt undir mat ráðherra hverju sinni. „Að mínu viti er gengið of langt. Bara útbýr valdaframsal til heilbrigðisráðherra til að gera hvaðeina í þessari baráttu, að stemma stigu við næsta heimsfaraldri. Og þarna gleymist einmitt að gæta að þessum grundvallarréttindum borgaranna, þrískiptingu ríkisvaldsins, að það séu eiginleg viðmið, rammi utan um hvað ráðherra má gera, hvað má ekki gera.“ Gagnrýni hans snýr líka að því að hér hafi ekki verið dreginn nægur lærdómur af Covid-faraldrinum áður en ný heildarlöggjöf var samþykkt. Í nefndaráliti 1. minni hluta velferðarnefndar er því haldið fram að enn hafi ekki farið fram heildstæð greining á því hvernig sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda í faraldrinum samræmdust grunnreglum réttarríkisins. Þar var jafnframt lagt til að skipuð yrði rannsóknarnefnd Alþingis um viðbrögð stjórnvalda, áhrif þeirra á samfélagið og samræmi við mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar. Sigurður vísar jafnframt til Danmerkur og segir að þar séu valdheimildir stjórnvalda afmarkaðri og ramminn skýrari en í íslensku lögunum. „Þar er löggjöfin miklu skýrari, veitir stjórnvöldum eiginlegan ramma vegna þess að það er auðvitað lýðræðislega kjörið þing sem á að veita stjórnvöldum þessar valdheimildir, segja hvað þau mega gera, hvenær þau mega gera það og hvenær ekki. En hér er engu slíku fyrir að fara.“ Þríeykið í Covid faraldrinum var skipað Víði Reynissyni lögreglumanni, Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni og Ölmu Möller landlækni. Vísir/Vilhelm Í minnihlutaálitinu er áherslan ekki síst lögð á að langvarandi og íþyngjandi sóttvarnaaðgerðir geti haft víðtæk áhrif á frelsi, atvinnulíf, efnahagsmál, geðheilsu og hagsmuni barna og ungmenna. Að mati Sigurðar hefði löggjafinn átt að setja þrengri og skýrari mörk áður en ráðherra var fengið þetta svigrúm. Hann óttast líka að þegar næsti faraldur kemur verði ekki sama traust og sama sátt um íþyngjandi aðgerðir og sást framan af í Covid. Þá muni fyrst reyna af fullum þunga á þær heimildir sem Alþingi hefur nú fært ráðherra í hendur. „Ég einhvern veginn óttast og tel líklegt að það verði önnur sviðsmynd í næsta faraldri, að það sé ákveðið óþol og þá muni virkilega reyna á þessar valdheimildir.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Alþingi Heilbrigðismál Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Innlent „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Innlent Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Innlent Lögreglan leitar enn að Ernu Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent Fleiri fréttir Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Til marks um tíma þegar fólk vildi gefa eitthvað til baka Hiti á fyrsta fundi: „Það þarf ekki minni menntun til að kenna minna fólki“ Aldrei upplifað annan eins hita í Lundúnum Nú mega yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl Fluttur á sjúkrahús eftir að hafa ekið á kyrrstæðan bíl úti í vegkanti Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Skattamál: „Sumir kalla það hækkun, aðrir kalla það að hætta að fá afslátt“ Nóróveira í ostrum Fær ekki lögbundna þjónustu og óvissa um framtíð listaverks Fyrrverandi starfsmaður fær tæpar tuttugu milljónir Lögreglan leitar enn að Ernu „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Kölluð út vegna aflvana báts við Hellisey Segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Tæplega tveggja ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Þessi 24 vilja taka við bæjarstjórastólnum af Magnúsi Skráðum félögum í Nýju Avalon fjölgaði um 575 prósent Telja ríkið vera að brjóta samkomulag um börn með fjölþættan vanda Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut „Við stöndum öll með starfsemi Samhjálpar“ Óvissa með kaffistofu Samhjálpar og listaverk Gerðar í hættu Konum sem beita heimilisofbeldi fjölgar Kosti um tvo milljarða að laga verstu gangstéttirnar í borginni Hyggjast stórbæta aðstöðu ferðamanna við Hvítserk „Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Jarðskjálftar í grennd við Húsafell en enginn órói Sjá meira