Lykill að jöfnum tækifærum Isabel Alejandra Diaz skrifar 22. apríl 2026 10:00 Leikskólar eru ein af meginstoðum íslensks samfélags og um leið eitt mikilvægasta jöfnunartæki þess. Þeir mæta ólíkum aðstæðum barna og fjölskyldna hvort sem litið er til uppruna, efnahags eða félagslegrar stöðu. Með tilliti til þessa er það okkur í Samfylkingunni í Reykjavík mikilvægt að skapa fyrirsjáanleika og stöðugleika í daglegu lífi barna og fjölskyldna þeirra. Sérstaklega þegar kemur að einstæðum foreldrum, tekjulægri fjölskyldum og þeim sem ekki eru með sterkt félagslegt bakland. Jafnari staða foreldra Það virðist stundum gleymast í umræðunni hversu veigamiklu hlutverki leikskólinn gegnir í að stuðla að jöfnum tækifærum og auknu félagslegu öryggi. Aðgengileg dagvistun er forsenda þess að foreldrar geti tekið fullan þátt á vinnumarkaði, byggt upp réttindi, aflað tekna og ræktað starfsferil sinn. Rannsóknir hafa sýnt fram á að barneignir hafa varanleg áhrif á tekjur og þátttöku á vinnumarkaði og að eftir fæðingu fyrsta barns dragast konur frekar aftur úr körlum hvað þetta varðar. Því þegar dagvistun er ótrygg er það oftar en ekki móðirin sem dregur úr starfshlutfalli sínu eða hverfur tímabundið af vinnumarkaði, með langvarandi afleiðingum fyrir launaþróun, lífeyrisréttindi og starfsferil, þótt vissulega séu undantekningar frá því líkt og í öðru. Allt eru þetta þættir sem hafa bein áhrif á lífsskilyrði barna og foreldra þeirra. Sköpum aðstæður til bestu menntunar fyrir börn Það hlutverk sem leikskólinn gegnir í félagslegum þroska barna er ekki síður mikilvægt. Sem menntastofnun fyrir yngstu börnin er leikskólinn vettvangur náms og þroska þar sem börn efla sjálfsmynd sína í málörvandi umhverfi. Þar skapast jafnframt mikilvægt rými fyrir börn sem hafa íslensku sem annað mál til að læra tungumálið í gegnum dagleg samskipti og virka þátttöku í hópi jafningja. Eins hefur leikskólinn tök á að bregðast snemma við þegar merki sjást um frávik eða seinkun í þroska og haft þannig veruleg áhrif á félagslega þátttöku og inngildingu barna. Til þess að leikskólinn geti uppfyllt hlutverk sitt verður að sjálfsögðu að tryggja gæði menntunar í gegnum fagmennsku starfsfólks og möguleikum til starfsþróunar. Eins verður starfsumhverfi leikskólakennara að vera viðunandi og ábyrgð þeirra, sem og alls starfsfólks skólanna, metin að verðleikum (hæ virðismatsvegferð kennara!). Þar bera stjórnvöld ekki ein ábyrgð á að styðja betur við kennaramenntun og styrkja fagið til framtíðar, heldur einnig sveitarfélögin og háskólastigið. Börnin í fyrsta sæti Samfylkingin vill að Reykjavík sé besti staðurinn á Íslandi til að vera barn og ala upp börn. Það kallar á forgangsröðun og ætlar Samfylkingin því að ráðast í meðal annars eftirfarandi aðgerðir: Bæta vinnuaðstæður í leikskólum og setja 600 milljónir á ári í aukna mönnun og úrbætur á starfsumhverfi. Fjölga leikskólaplássum um 1500 á kjörtímabilinu í þeim tilgangi að taka yngri börn inn á leikskóla. Hækka framlag til fjárfestinga í endurgerð og uppbyggingu leikskólahúsnæði í 30 milljarða milljarða næstu fjórum árum. Fjölga menntuðu starfsfólki með því skapa svigrúm til náms samhliða starfi, meðal annars með námsstyrkjum. Vinna með ríkinu að tryggri fjármögnun leikskólastigsins og lögfestingu á rétti barna til leikskólavistar sem fyrsta skólastigs. Taka upp systkinaforgang þannig að yngra systkini komist inn á sama leikskóla og eldri systkini. Efla snemmtækan stuðning í leikskólum með auknu aðgengi að fagaðilum á borð við þroskaþjálfa, sálfræðinga og talmeinafræðinga. Komandi kosningar skipta sköpum fyrir framtíð Reykjavíkurborgar og við í Samfylkingunni bjóðum upp á skýran valkost: norrænt velferðarsamfélag í þágu íbúa. Höfundur skipar 9. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Isabel Alejandra Díaz Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Fortíðin er ekki aukaatriði, hún er viðvörun Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Hildur fækkaði bílastæðum um 3000 Magnús Kjartansson Skoðun Gangbrautarvörður sem vill leysa málin Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Löng valdaseta bara vandamál fyrir suma Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson skrifar Sjá meira
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Velmegun einstaklingsins - opinber auðlegð - markmið jafnaðarmanna Hörður Filippusson skrifar
Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir Skoðun