Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 22. apríl 2026 09:44 Guðrún Eva krýnir arftaka sinn í kvöld. Arnór Trausti Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Ísland fer fram í kvöld í Gamla Bíói og er haft eftir forsvarsmönnum að keppnin verði glæsilegri en nokkru sinni fyrr.
Nítján stúlkur keppast um titilinn en keppnin verður sýnd í beinu streymi hér á Vísi klukkan 20:00. Dómnefndin í ár er skipuð fjölbreyttum fulltrúum, þeim Einari Bárðarsyni, umboðsmanni og athafnamanni; Ingu Tinnu Sigurðardóttur, forstjóra Dineout; Kristni Óla Hrólfssyni, markaðsmanni og klippara; Patreki Jaime, áhrifavaldi og útvarpsmanni, og Töru Sif Birgisdóttur, dansara og fasteignasala. Kynnir er Eva Ruza og munu Klara Einars og Patr!k einnig stíga á svið. Úrslitakvöldið verður í beinni útsendingu á Vísi þar sem landsmenn geta fylgst með þegar Guðrún Eva Hauksdóttir, Ungfrú Ísland 2025, krýnir arftaka sinn. Einnig er hægt að kaupa miða til að vera í salnum á tix.is. Guðrún Eva er tvítug og útskrifaðist af leiklistarbraut FG síðasta vor. Hún leggur einnig stund á söng í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Guðrún Eva hefur lagt áherslu á að fegurðarsamkeppnir snúist ekki eingöngu um útlit heldur einnig persónulegan þroska, sjálfstraust og það að láta gott af sér leiða. Hún hefur einnig sýnt samfélagsmálum áhuga og mikilvægi þess að nýta tækifærið sem fylgir titlinum til að vekja athygli á málefnum sem skipta hana máli. Áður en hún vann titilinn lýsti hún því yfir að hún vildi nýta vettvanginn til að hafa áhrif og skapa jákvæða breytingu. „Að krýna arftaka minn í kvöld er falleg áminning um styrkinn sem við deilum sem konur – og mikilvægi þess að lyfta hvor annarri upp. Ég gæti ekki verið stoltari af öllum 19 keppendum,“ segir Guðrún Eva. Sem Ungfrú Ísland 2025 gegnir hún einnig því hlutverki að krýna arftaka sinn í næstu keppni og fylgja eftir arfleifð titilsins.
Ungfrú Ísland Fegurðarsamkeppnir Mest lesið Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Lífið Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Lífið Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Menning South Park verður South America Lífið Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Gagnrýni Sögufrægt verslunarhús til sölu Lífið Kappsmál sett á ís Lífið Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Tíska og hönnun Fleiri fréttir Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Sjá meira