Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Þórarinn Þórarinsson skrifar 23. apríl 2026 07:01 Umdeildu niðurrifi bygginga við Fannborg er lokið og ekkert eftir af gamla félagsheimilinu í Kópavogi annað en múrbrot og mold. Vísir/Vilhelm Niðurrifi bygginga við Fannborg er lokið og þar með eru gamla félagsheimilið og gömlu bæjarskrifstofurnar í Kópavogi horfin af yfirborði jarðar og lítið stendur eftir af áralöngu deiluefni annað en urð og grjót.
Byggingarnar við Fannborg 2, 4 og 6 voru látnar víkja fyrir nýrri miðju Hamraborgar þar sem til stendur að reisa íbúðarhúsnæði í ýmsum stærðum, frá einni hæð upp í tólf.Þegar Kópavogsbær boðaði breytingarnar fyrir nokkrum árum var áhersla lögð á að á reitnum yrði skapað aðlaðandi umhverfi þar sem gert væri ráð fyrir verslun og þjónustu á jarðhæðum nýju húsanna. Nýr miðbæjarkjarni Hamraborgar á að rísa upp af rústum húsanna við Fannborg 2, 4 og 6.Vísir/Vilhelm Deilt hefur verið um niðurrifið og þeim áformum mótmælt árum saman og þótt framkvæmdirnar sjálfar þyki ganga vel hefur það ekki verið hávaðalaust. Hæst bera áhyggjur af því að ekki væri gert ráð fyrir því að hreyfihamlaðir íbúar á reitnum geti með góðu móti komist til og frá heimilum sínum meðan á framkvæmdunum stendur. Þar fyrir utan hefur gengið á ýmsu og í janúar stöðvaði til dæmis byggingarfulltrúi Kópavogsbæjar verktaka sem voru byrjaðir að rífa gamla félagsheimilið án tilskilins leyfis. Við það tækifæri sagði Hákon Gunnarsson, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og íbúi við Fannborg, að framkvæmdin öll væri „eitt allsherjarklúður af hálfu Kópavogsbæjar“. Þá greindi fréttastofa Sýnar frá því í byrjun þessa mánaðar að íbúar í Fannborg hefðu óttast um líf sitt og limi þegar þungar bárujárnsplötur tóku flugið frá vinnusvæðinu í óveðri sem þá gekk yfir. Ekki verður lengur deilt um niðurrif bygginganna en eftir stendur óánægja íbúa með skert aðgengi fólks sem erfitt á um gang á meðan á framkvæmdum stendur.Vísir/Vilhelm Þá hafi einungis munað örfáum mínútum að eldri borgari á níræðisaldri yrði fyrir glerbroti úr rúðu þegar bárujárn fauk inn um glugga á svefnherbergi í Fannborg í Kópavogi. Auk rúðubrotsins hafi þakplöturnar fjúkandi valdið fleiri skemmdum á íbúðahúsinu.
Kópavogur Byggingariðnaður Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira