Innlent

Ber­serks­gangur á gisti­stað

Jón Þór Stefánsson skrifar
Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var í dag tilkynnt um eignaspjöll sem unnin voru á gististað. Fram kemur að einhver hafi brotið rúðu og skemmt hurðar. Fleira kemur þó ekki fram um rannsókn málsins, eða hvort einhver sé grunaður vegna þess.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar, en málið kom upp í umdæmi lögreglustöðvar eitt, sem sér um miðbæinn, austurbæ, vesturbæ og Seltjarnarnes.

Á sama svæði var lögreglu tilkynnt um eignaspjöll og líkamsárás. Þeir sem eru viðloðnir það mál „héldu sína leið eftir skýrslutöku“.

Þá var tilkynnt um þrjú þjófnaðarmál í umdæminu, þar af tvö í verslun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×