Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 25. apríl 2026 14:15 Haukar sigruðu ÍBV 26-23 í hörkuleik á Ásvöllum í dag. Staðan í einvíginu er því 2-2 og liðin mætast aftur næstkomandi þriðjudag í Vestmannaeyjum um sæti í úrslitunum. Leikurinn byrjaði jafnt hjá liðunum en ÍBV voru fyrri til að komast í tveggja marka forystu. Um miðbik fyrri hálfleiks tóku ÍBV leikhlé sem heppnaðist þó ekki betur en að Haukar tóku forystuna og komust mest í þriggja marka forystu. ÍBV tókst að minnka bilið og munaði einu marki á liðunum þegar flautað var til hálfleiks. Tapaðir boltar og stórkostlegar vörslur einkenndu fyrri hálfleikinn en Sara Sif Helgadóttir var með þrettán varin skot og Amalie Froland með átta. Síðari hálfleikur byrjaði jafnt líkt og sá fyrri en fljótlega tóku Haukakonur forystuna. Sara Sif átti frábæran síðari hálfleik og átti hún stóran þátt í þessum frábæra sigri Hauka sem tryggðu sér oddaleik. Lokaniðurstaða 26-23 fyrir Haukum og mætast liðin aftur á þriðjudaginn í Vestmannaeyjum. Stjörnur og skúrkar Sara Sif Helgadóttir er maður leiksins það fór ekki framhjá neinum. 49% markvarsla má teljast ansi gott. Rakel Oddný Guðmundsdóttir var markahæst hjá Haukum með sex mörk en Inga Dís Jóhannsdóttir kom þar næst með fimm mörk. Hjá gestunum í ÍBV var Birna Berg Haraldsdóttir markahæst með fimm mörk. Stemning og umgjörð Fín mæting og stemning á Ásvöllum. Umgjörðin til fyrirmyndar eins og venjulega. Dómarar Fín dómgæsla að mínu mati enda með tvo reynslumikla dómara í dag. Olís-deild kvenna Haukar ÍBV