„Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 24. apríl 2026 21:51 Sigursteinn Arndal skilur ekkert í niðurstöðu dómara leiksins sem hafði mikið að segja um úrslit kvöldsins. Anton Brink „Nú er ég búinn að fá að sjá þetta í sjónvarpi og í fyrsta lagi er þetta ekki rautt spjald og að þeir hafi notað fjórar mínútur í að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, um vendipunkt í fyrsta leik Vals og FH í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Lauk leiknum með sigri Vals, 37-33.
Allt var jafnt í hálfleik, 16-16, en snemma í síðari hálfleik fékk lykilmaður FH, Jón Bjarni Ólafsson, rautt spjald fyrir að toga Þorgils Jón, leikmann Vals, með sér í gólfið eftir árekstur þeirra tveggja þegar FH var að bruna upp í sókn. Eins og fram hefur komið var Sigursteinn afar ósáttur með þá niðurstöðu, en í kjölfarið náði Valur undirtökunum í leiknum og létu forystu sína aldrei af hendi. Að því sögðu fannst Sigursteini leikur sinna manna ekki hafa verið nægilega góður þegar á móti blés. „Að því sögðu þá ræð ég ekkert yfir dómum eða dómgæslu og því algjör óþarfi að tjá sig um það. Ég get aftur á móti tjáð mig um það að FH-liðið brást ekki nógu vel við þessu augnabliki og það er eitthvað sem við getum farið yfir og munum gera. Við þurfum að nota helgina vel og mæta klárir í Krikann á mánudaginn.“ „Við erum bara ekki nógu sterkir á svellinu þegar reynir á okkur í seinni hálfleik. Við klárum þennan leik ekki nógu vel. Ég hélt við ætluðum að búa okkur til augnablik í stöðunni 24-22, en aftur misstum við þá frá okkur. Það er dýrt að tapa frumkvæði í svona leikjum og við vorum ekki nógu og mikið með það í dag. Valsararnir voru með það í dag og þess vegna eru þeir verðskuldaðir sigurvegarar úr þessum leik. En það er nýr dagur á mánudag og ég bara býst við að FH-ingar flykkist á bak við okkur og við svörum með góðri frammistöðu á vellinum.“ En geta FH-ingar tekið eitthvað með sér úr þessum leik yfir í leikinn á mánudaginn? „Akkúrat núna er maður bara neikvæður en þegar við klippum þetta þá munum við finna góð móment og svo aðra hluti sem vantar upp á. Heilt yfir vantaði bara upp á of marga hluti, bæði sókn og vörn, en við rísum upp eftir þetta,“ sagði Sigursteinn Arndal að lokum.
Olís-deild karla FH Valur Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira