Hefur Valur efni á að spila Samúel í kvöld? Stefán Árni Pálsson skrifar 27. apríl 2026 12:45 Jökull segist vera spenntur fyrir leiknum í kvöld. Vísir/Diego Stórleikur kvöldsins í Bestu-deild karla er viðureign Stjörnunnar og Vals á Samsung-vellinum í Garðabæ. Liðin hafa bæði unnið tvo leiki og tapað einum og eru með sex stig í deildinni. Jökull Ingason Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, segist vera spenntur fyrir kvöldinu og vonar að Samúel Kári Friðjónsson spili leikinn. Samúel var keyptur frá Stjörnunni til Vals á dögunum. En hans þátttaka í leiknum gæti kostað Val. „
Við komum brattir úr síðasta leik. Það var frábær fótboltaleikur og ég held að þetta verði áhugaverður leikur og vonandi að veðrið spilli ekki fyrir því sem þetta getur orðið. Við þurfum að spila okkar leik og spila jafn góðan varnarleik og við gerðum í síðasta leik. Þó að við höfum fengið á okkur þrjú mörk í síðasta leik var varnarleikurinn góður,“ segir Jökull en Stjarnan tapaði 3-2 fyrir Víkingum fyrir fjórum dögum. En að stöðunni á Samúel Kára. Hann er í dag leikmaður Vals og var fyrir nokkrum dögum leikmaður Stjörnunnar. Jökull gefur í skyn að það muni kosta Valsmenn aukalega ákveði þeir að tefla Samúel Kára fram í kvöld. Þá er spurning hvort Valsmenn tími eða hafi efni á því að spila leikmanninum gegn sínu gamla félagi. „Ég býst alveg eins við honum. Þetta er stórkostlegur leikmaður þannig að það hjálpar okkur auðvitað að einhverju leyti ef hann spilar ekki, en ég óska honum alls hins besta. Það myndi gera leikinn skemmtilegri og töluvert áhugaverðari ef hann er inni á vellinum. Svo eru þeir með Dag Orra líka þarna, okkar uppaldi strákur sem hefur verið að gera vel. Þannig að ég held að þetta verði áhugavert og auðvitað vona ég bara að Sammi spili og við fáum aðeins að glíma við hann og hann við okkur. Ég held að það sé nú ekki hægt að setja þannig í samninga að menn megi ekki spila. En ég held að það geti vel verið að það komi einhvers staðar niður á verðmiðanum á leikmanninum.“ Rætt var við Jökul í hádegisfréttum Bylgjunnar. Leikurinn er klukkan 19:00 á Sýn Sport Ísland 2. Dagskrá Bestu deildar karla í kvöld 17:20 Fram - ÍBV (Sýn Sport 6) 17:50 KR - FH (Sýn Sport 5) 19:00 Subway Messan (Sýn Sport Ísland) 19:00 Stjarnan - Valur (Sýn Sport Ísland 2) 19:05 Breiðablik - Þór Ak. (Sýn Sport Ísland 4) 19:05 Víkingur R. - ÍA (Sýn Sport Ísland 5) 21:20 Stúkan (Sýn Sport Ísland)
Besta deild karla Stjarnan Valur Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Uppgjör: FH - Þór/KA 2-1| FH tyllir sér á toppinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Sjá meira