Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Sindri Sverrisson skrifar 29. apríl 2026 07:01 Pep Guardiola var á vellinum í kvöld þegar Benoný Breki Andrésson snéri aftur eftir meiðsli. Samsett/Getty Þrátt fyrir 2-1 tap gegn Port Vale í ensku C-deildinni í fótbolta hafði markametshafi Bestu deildarinnar, Benoný Breki Andrésson, góða ástæðu til að fagna í gærkvöld.
Benoný sneri nefnilega aftur inn á völlinn eftir að hafa ekki spilað með liði sínu Stockport County síðan í janúar. Það sem gerði endurkomuna ekki síður merkilegri var að Benoný spilaði fyrir framan einn merkasta knattspyrnustjóra sögunnar. Spánverjinn Pep Guardiola fann sér nefnilega stund á milli stríða hjá Manchester City til þess að mæta óvænt í stúkuna á Edgeley Park, heimavelli Stockport, í gær. Óvíst er hvers vegna Guardiola var á svæðinu en vera hans þarna vakti mikla kátínu hjá stuðningsmönnum Stockport sem á samfélagsmiðlum veltu fyrir sér hverjum hann gæti hafa verið að fylgjast með. Þá höfðu margir gaman af því að Guardiola skyldi velja leik Stockport og Port Vale fram yfir slag PSG og Bayern sem var í sjónvarpinu á sama tíma. Hvort Benoný náði að heilla Guardiola er ekki vitað en framherjinn er að komast á ferðina nú þegar komið er að ögurstundu, eftir að hafa meiðst í ökkla í leik gegn Blackpool 27. janúar. Benoný kom inn á í gær þegar 25 mínútur voru eftir og staðan 2-0, og tókst Stockport að minnka muninn á 86. mínútu en þó ekki að jafna metin. Lokaumferðin í ensku C-deildinni er á laugardaginn og eru góðar líkur á að Stockport fari í umspil liðanna í 3.-6. sæti, um að fylgja Lincoln og Cardiff upp í B-deildina. Bolton er í 3. sæti með 75 stig, Stockport og Bradford með 74, og Stevenage 72. Luton er svo í 7. sæti með 71 stig og því enn hætta á að Stockport endi utan efstu sex sætanna og missi af umspilinu, ef allt færi á versta veg á laugardaginn.
Enski boltinn Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Fleiri fréttir Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Sjá meira