Lægri vextir eru STÓRA MÁLIÐ Dagur B. Eggertsson skrifar 30. apríl 2026 10:31 Það hefur hingað til verið átakanlegt að horfa á stjórnmálamenn og fjármálaspekúlanta gera sig gáfulega í framan og ræða alls konar aukaatriði án þess að hafa kjark til að nefna bleika fílinn í stofunni: Íslensku krónuna, fákeppnina sem henni fylgir og vaxtastigið sem af henni leiðir. Ég vona að nú sé þessi umræða loks að hefjast. Ég birti í síðustu viku grein á Vísi þar sem ég fagnaði fréttaskrifum Morgunblaðsins þar sem leitað hafði verið til íslenskra banka og þeir staðfestu að húsnæðislánavextir myndu lækka með evru og aðild að Evrópusambandinu. Evran: Ungt fólk og húsnæðiskaup Það er hrikalegt að horfa upp á stöðuna sem ungt fólk og húsnæðiskaupendur eru settir í. Og fyrst við erum að tala um húsnæðismarkaðinn: verktakar og byggingaraðilar eru undir sama vaxtaoki. Skoðum tölurnar. Byrjum á ungu fólki og húsnæðiskaupendum. Ég gerði í vetur ítarleit á evrusvæðinu sem sýndi að meðalvextir á húsnæðislánum eru 3,3%, óverðtryggt. Á Íslandi var meðaltalið nú 9,15% óverðtryggt. Verðtryggðu lánin hér heima (þar sem yfir höfuð er hægt að fá þau) eru 4-5 prósent ofan á verðbólgu. Þetta er sáralítið breytt nú hálfu ári síðar. Ótrúlegur munur: Greiðslubyrði með evru eða krónu Ef við berum saman mánaðarlegar greiðslur og heildargreiðslur á óverðtryggðum evrulánunum og krónulánunum eru tölurnar þessar. Miðað við mánaðarlegar greiðslur af 60 milljóna króna láni til 25 ára eru mánaðarlegar greiðslur 509.000 kr. af krónuláninu en 293.000 kr af evruláninu. Þá er miðað við jafnar greiðslur (annuitets greiðslur) eins og er algengt í íbúðalánum. Heildargreiðslur af 60 milljóna krónuláninu eru 152 milljónir króna á 25 árum. Sama fjölskylda hefði greitt 88 milljónir í heild af evruláninu. Munurinn er 70%. Heildarvextirnir sem greiddir eru af evruláninu eru 28 milljónir en 92,7 milljónir af krónuláninu. Þetta geta allir sannreynt með aðgangi að lánareiknum eða hvaða gervigreindarforriti sem er. Álögur á atvinnulífið: Lánakjör til lítilla og meðalstórra fyrirtækja (og verktaka) með evru Kjörin sem verktökum bjóðast til framkvæmdalána eru ekki síður sláandi. Á evrusvæðinu eru óverðtryggðir vextir til einyrkja og smærri fyrirtækja um 3,95%. Ætla mætti að kjörin sem biðust á Íslandi væru um 11-12%, miðað við stýrivexti, en af samtölum við verktaka eru þau oft nær 16% hjá íslenskum bönkum og fjármögnunarfyrirtækjum. Verktaka-vextir og byggingarkostnaður íbúðar Hvaða áhrif hefur þessi munur á fjármagnskostnað á byggingatíma? Miðað við 40 milljóna króna lán vegna framkvæmdar sem stendur í tvö og hálft ár eru evruvextirnir 3,9 milljónir en 12 milljónir af krónuláninu, miðað við 12% vexti. Kostnaðurinn er 16 milljónir ef krónuvextirnir eru 16%. Með öðrum orðum leggst fjórfaldur fjármagnskostnaður ofan á byggingarkostnað íbúðar á Íslandi miðað við evrusvæðið. Lægri vextir eru lykilatriði í Evrópuumræðunni Lægri vextir og fjármagnskostnaður eru lykilhagsmunir ungs fólks og húsnæðiskaupenda. Upptaka evru ætti að vera helsta baráttumál samtaka launafólks, neytenda og samtaka í byggingariðnað. Verktakar segja sjálfir að fjármagnskostnaður sé að sliga þá. Aðrir talsmenn atvinnulífsins þurfa líka að skríða út úr skelinni. Því sömu vaxtasögu er að segja af veitingastöðum, ferðaþjónustu, verkstæðum og innflutningsfyrirtækjum og yfirhöfuð öllu atvinnulífi sem þarf að fjármagna sig með lánum til skemmri eða lengri tíma. Ungt fólk er varla spurt. Einstök fyrirtæki ekki heldur. Enginn þeirra samtaka sem ættu að vera í forsvari fyrir þetta fólk og fyrirtæki talar um evru. Þessa þögn þarf að rjúfa. Höfundur er alþingismaður Reykvíkinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagur B. Eggertsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Skoðun Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun