Skoðun: Þjóðar­at­kvæða­greiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

Evrópu­sam­bandið og heil­brigðis­mál - saman værum við sterkari

Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið (ESB) hefur lítið verið rætt um heilbrigðismál. Það skýrist án efa af því að reglur um heilbrigðisþjónustu innan ESB eru að meginstefnu til ekki samræmdar milli aðildarríkja. Því ákveður hvert ríki fyrir sig hvernig heilbrigðisþjónustan er skipulögð, veitt og fjármögnuð.

Skoðun
Fréttamynd

Hálf­gert vand­ræða­barn

„Frábært að eiga krónuna en ferlegt að skulda hana“, sagði Guðni Th. Jóhannesson, fyrrum forseti, í mögnuðu viðtalið í Silfrinu. Þetta er kjarni málsins enda krónan „hálfgert vandræðabarn“ svo vitnað sé aftur til orða Guðna.

Skoðun
Fréttamynd

Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin

Það er merkilegt hvað sumir eru sannfærðir um að íslenska krónan sé ómissandi þjóðargersemi. Að sveigjanleiki hennar, sem færir byrðar af efnahagsáföllum af útflutningsgreinum og yfir á launafólk, sé okkar helsti kostur sem þjóðar. Allt tal um upptöku evru jaðri við landráð.

Skoðun
Fréttamynd

„Þið þurfið stærri bát“

Eftir að hafa séð hákarlinn í návígi í fyrsta sinn í Ókindinni (e. Jaws, 1975) sagði lögreglustjórinn Brody „þið þurfið stærri bát.” Þó að þjóðaratkvæðið um ESB viðræður snúist ekki um endanlega afstöðu til aðildar, þá snýst hún um hvort við viljum leggja mat á hvort ekki væri ráðlegt að vera í stærri bát.

Skoðun
Fréttamynd

Verð gæti stórlækkað á Ís­landi

Ísland er dýrara en nokkurt ríki Evrópusambandsins. Það eitt kemur engum á óvart sem verslar hér á landi. Það sem færri vita er þetta: verðlagið er líka fjórðungi til þriðjungi hærra en há laun okkar geta skýrt. Í þessu bili felst gríðarlegt tækifæri til að bæta lífskjör Íslendinga.

Skoðun
Fréttamynd

At­vinnu­við­tal hjá ESB?

Samtökin Já til að sjá hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir hugmyndaríkan áróður fyrir já-i í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst hagræðingu. Hafa þau m.a. lýst aðildarferlinu við atvinnuviðtal, fasteignakaup og að máta föt í fataverslun. Allt sé þetta sjálfsagt að gera, auðvitað fer maður í atvinnuviðtal áður en hann ræður sig til starfa, auðvitað skoðar maður fasteign áður en kaupsamningur er undirritaður og varhugavert að kaupa sér fatnað án þess að máta hann. En þessar samlíkingar eru hins vegar í raun ekki til þess fallnar að mæla með já-i í ágúst heldur einmitt nei-inu, þó að það hafa líklega ekki verið það sem Já til að sjá samtökin höfðu ætlað sér.

Skoðun
Fréttamynd

Að kaupa at­kvæði þjóðar

Það hefur vakið athygli mína hversu mikið af auglýsingum þrýstihópurinn Áfram Ísland hefur birt á síðustu vikum. Fyrir hverja auglýsingu frá Já til að sjá virðist maður sjá tíu frá Áfram Íslandi.

Skoðun
Fréttamynd

Fram­tíðin, björt eða svört?

Við höfum hér á Íslandi náð með undraverðum hætti að byggja okkur upp á innan við 100 árum úr mikilli fátækt yfir í mikla velmegun. Þetta er staðreynd sem allar mælingar styðja við þrátt fyrir bölsýnistal einhverra aðila hérna innanlands sem sjá öllu hér til foráttu.

Skoðun
Fréttamynd

Ert þú þessi hálf­viti?

,,Hann er helvítis fokking hálfviti fyrst hann er ekki sammála mér. Eða er ég kannski fávitinn?”Mér finnst áhugavert hversu oft við förum beint í manninn þegar við erum ósammála. Ekki í málefnið. Ekki að reyna að skilja hvers vegna viðkomandi komst að annarri niðurstöðu en við. Við erum, því miður, oft á tíðum vanhæf að vera ósammála hvort öðru. Það er sérstaklega áberandi í athugasemdum á samfélagsmiðlum þessa dagana.

Skoðun
Fréttamynd

Af hverju eru ís­lenskir sprotar skráðir í Delaware?

Silicon Dalurinn í Kaliforníu er Mekka sprotafjárfesta. Ég ólst upp í Palo Alto en þar eru svo margir fjárfestar að það er hægt að ganga niður University Avenue (Laugarveg Palo Alto borgar) og annað hvert samtal er um sprotafjárfestingu, hvað þitt sprotafyrirtæki er að gera og hvernig það er hægt að breyta heiminum.

Skoðun
Fréttamynd

Krónan er ventillinn sem heldur aftur af ís­lensku at­vinnulífi

Ég hef tekið eftir því að umræðan um ESB hefur breyst mikið undanfarið. Hún snerist áður um kosti og galla ESB en núna snýst hún meira um að afsanna ósannindi. Þannig ég vildi stíga eitt skref til baka og skrifa um hvað heillar mig mest við mögulega aðild Íslands að ESB.

Skoðun
Fréttamynd

Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og full­veldi

Það var þrá og von okkar Íslendinga að búa „langt frá heimsins vígaslóð“. Seinni heimsstyrjöldin færði okkur heim sanninn um að sú vígaslóð var ekki umflúin. Í kjölfarið höfum við gengið til samstarfs við aðrar þjóðir með aðild að Sameinuðu þjóðunum og Atlantshafsbandalaginu til að leggja okkar af mörkum til friðar og um leið til að verja frelsi okkar og fullveldi. Síðan höfum við eflt efnahagssamstarf með aðild að EFTA og EES.

Skoðun
Fréttamynd

Grand Fenwick við Faxa­flóa

Árið 1955 sendi írski rithöfundurinn Leonard Wibberley frá sér skáldsöguna The Mouse That Roared. Þar segir af hertogadæminu Grand Fenwick, örríki í Ölpunum sem lendir í fjárkröggum þegar Kaliforníumenn fara að framleiða eftirlíkingu af eina útflutningsvarningi þess, víninu Pinot Grand Fenwick.

Skoðun
Fréttamynd

Níu at­riði til um­hugsunar vegna þjóðar­at­kvæða­greiðslunnar

Evrópuumræðan sem stendur yfir er mis málefnaleg. Mér sýnist að lesendur hafi lítið gagn af pistlum frá hörðum stuðningsmönnum og andstæðingum. Fyrir þá sem ekki hafa múlbundið sig í harðri og einstrengingslegri afstöðu má nefna níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Skoðun
Fréttamynd

Fram­tíðar­sýn um rétt­læti og stöðug­leika

Þann 29. ágúst næstkomandi mun ég mæta á kjörstað og segja JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Sú ákvörðun er tekin að vel ígrunduðu máli og djúpri sannfæringu um að íslensk heimili, almenningur og komandi kynslóðir eigi skilið meira réttlæti, gagnsæi og efnahagslegan stöðugleika til lengri tíma.

Skoðun
Fréttamynd

Á eigin skinni

Mikið er þrasað um ESB þessa dagana, svo mikið að maður nánast veigrar sér við að ræsa ritvinnsluforrit af því tilefni. Mikið hefur borið á umræðu um sumt og annað ekki. Það hefur einhvern veginn gleymst að helsta markmið ESB frá upphafi var að halda friðinn í álfunni og það hefur tekist mjög vel í um 70 ár.

Skoðun
Fréttamynd

Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst

Endanleg ákvörðun um inngöngu Íslands í Evrópusambandið er í höndum þjóðarinnar. Það hefur alltaf legið fyrir. Þjóðaratkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst aftur á móti um það hvort teknar verði upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á nýjan leik.

Skoðun
Fréttamynd

Hver er maðurinn?

Hver skoðar ekki íbúð áður en hann ákveður hvort hann vilji kaupa hana? Og hvaða foreldri vill ekki leyfa barni að opna afmælispakka á sjálfan afmælisdaginn?

Skoðun
Fréttamynd

Tæki­færi til bættra samganga

Nú styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram aðildarviðræður við ESB. Eðlilega eru margir að horfa í lækkun vaxta og verðbólgu í samhengi við aðildarviðræður, enda er það eitt stærsta hagsmunamál íslenskra heimila og fyrirtækja.

Skoðun
Fréttamynd

Þjóðin og valdið

Það voru ekki allir ánægðir með þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að treysta þjóðinni fyrir því hvort Ísland ætti að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks mótmæltu því einnig harðlega að Alþingi yrði ekki að störfum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þingmenn ættu að eiga frumkvæðið í umræðunni og takast á um málið á Alþingi.

Skoðun
Fréttamynd

JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálf­stæðinu?

Sumt skil ég vel en annað illa eða alls ekki. Ég skil til dæmis ágætlega þá bændur sem óttast um afkomu sína ef Íslendingar gerast aðilar að ESB. Sem gömlum sveitastrák þykir mér vænt um landbúnaðinn og meðan ég þarf enn að éta vil ég fá að bragða á íslensku lamakjöti annað slagið.

Skoðun