Eiður og Arnór spili ekki á laugardaginn Valur Páll Eiríksson skrifar 30. apríl 2026 16:01 Eiður Gauti og Arnór Ingvi eru báðir tæpir fyrir laugardaginn samkvæmt Óskari Hrafni, þjálfara KR. Vísir/Anton Brink Arnór Ingvi Traustason og Eiður Gauti Sæbjörnsson, leikmenn KR, eru tæpir fyrir leik liðsins við Val á laugardaginn kemur samkvæmt þjálfara liðsins.
Eiður Gauti Sæbjörnsson hefur leitt sóknarlínu KR en hann varð fyrir smávægilegu hnjaski á æfingu KR-liðsins í dag. Arnór Ingvi meiddist lítillega gegn FH á mánudaginn var. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, staðfesti við Fótbolti.net að þeir væru báðir að glíma við meiðsli og segir þá ólíklega til að taka þátt í leik KR við Val á Hlíðarenda á laugardagskvöldið kemur. Það er ákveðin U-beygja frá tíðindum af Arnóri fyrr í vikunni en morguninn eftir leikinn við FH sagði Óskar skiptingu Arnórs Ingva af velli vera varúðarráðstöfun. Hann myndi ná sér fyrir laugardag. Það munar um minna fyrir KR taki þeir ekki þátt. Arnór Ingvi er margreyndur atvinnu- og landsliðsmaður sem hefur hafið leiktíðina vel. Þá er ekki með annan hreinræktaðan framherja í leikmannahópi sínum utan Eiðs Gauta. Óskar sagði þá Stefán Árna Geirsson og Orra Hrafn Kjartansson koma inn í liðið í stað tvímenningana. Fulltrúar Vals og KR sátu fyrir svörum á blaðamannafundi sem var á beinni í Vísi í dag. Rætt verður við þá nánar í Sportpakkanum á Sýn í kvöld. Valur og KR mætast klukkan 19:15 á laugardagskvöld og sá leikur í beinni á Sýn Sport Ísland.
KR Íslenski boltinn Besta deild karla Mest lesið Frækinn sigur Englendinga á Azteca Fótbolti Gagnrýnir ákvörðun FIFA: „Skítafýla af þessu“ Fótbolti Henderson meiddist illa á hendi í fagnaðarlátunum: „Þetta lítur illa út“ Fótbolti Ronaldo á sínu síðasta HM: „Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár“ Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Banabiti Brassa var þegar Ancelotti setti Neymar inn á Fótbolti Týndur í tíu daga: Ætlaði að fara á HM en skilaði sér aldrei á staðinn Sport Leik Mexíkó og Englands seinkað um klukkutíma Fótbolti „Eins og þjóðhátíðardagur og gamlárskvöld í senn“ Fótbolti Fleiri fréttir Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: Liðin skiljast jöfn í Kaplakrika Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir „Ég er farinn“ Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast „Mér finnst það bara algjört bull“ Sjáðu Atla afgreiða Skagamenn og færa Framara nær KR Ekki mistök að ráða Hermann en engin skyndiákvörðun að ráða Halldór Þriðja sinn á fjórum árum sem Valsmenn skipta um þjálfara í miðri á Glæsimark sem felldi KR, markaveisla á Akureyri og fyrsti sigur Jóns Þórs Sjá meira