Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald skrifar 2. maí 2026 09:30 Spurning sem snýst ekki lengur bara um laun ASÍ hélt nýverið ráðstefnu undir yfirskriftinni „Hvar á láglaunafólk að búa?“. Það er ekki að ástæðulausu sem samtök með um 150 þúsund félagsmenn spyrja þessarar spurningar. Stærsta hagsmunamál verkalýðshreyfingarinnar er ekki lengur launabaráttan ein og sér. Hún snýst líka um húsnæðisöryggi, sem versnar þegar húsnæðiskostnaður hækkar mun meira en launahækkanir geta fylgt eftir. ASÍ var drifkraftur í þeirri uppbyggingu sem tryggði fjölmörgum landsmönnum húsnæðisöryggi þegar Ísland, með Reykjavík í fararbroddi, varð í fremstu röð þegar kom að húsnæðisöryggi. Afleiðing stefnu sem er farin að bresta Í dag blasir við allt önnur mynd eftir að ákvörðun var tekin um að megináhersla í húsnæðisuppbyggingu skyldi vera á þéttingu byggðar. Samkvæmt gögnum ASÍ er nú svo komið að um 28% fullorðinna eru á leigumarkaði og nær helmingur þeirra, um 47%, býr við aðstæður þar sem húsnæðiskostnaður fer yfir 40% af ráðstöfunartekjum. Fyrir þennan hóp er lítið eftir til að lifa af mánuðinn. Þetta er ekki aðeins efnahagslegt vandamál heldur félagslegt vandamál einnig. Um fjórðungur barna á Íslandi býr í leiguhúsnæði og þriðjungur einstæðra foreldra á vinnumarkaði. Þetta er ekki viðunandi ástand. Þéttingarstefna sem gengur þvert á vilja og þarfir fólks Á sama tíma heldur leigumarkaðurinn áfram að stækka, ekki vegna þess að fólk vilji það, heldur vegna þess að það hefur ekki raunhæfan kost á öðru. Aðgangur að eignamarkaði hefur þrengst verulega og orðið fjarlægur draumur stórs hluta vinnandi fólks. Þar spilar þéttingarstefna Reykjavíkurborgar lykilhlutverk. Skortur á lóðum og einhliða áhersla á þéttingu hefur ýtt fasteignaverði upp á stig sem færri ráða við. Á síðastliðnum 5 árum hefur fermetraverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 61% á meðan fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu hefur einungis verið 5%. Þetta skapar sérstaklega erfiða stöðu fyrir fyrstu kaupendur. Þrátt fyrir skýran vilja almennings um minni og hagkvæmari íbúðir eru byggðar stærri og dýrari eignir. Niðurstaðan ætti ekki að koma neinum á óvart, stór hluti almennings getur ekki keypt þessar íbúðir. Stefna sem heldur aftur af uppbyggingu og hækkar verð Gögn frá HMS sýna að um 91% landsmanna vilja eignast eigið húsnæði. Fólk sækist eftir öryggi, fyrirsjáanleika og tækifæri til að byggja upp eigið líf. Samt er stefnt í gagnstæða átt. Frá því vaxtarmörk á höfuðborgarsvæðinu voru tekin upp árið 2015 hafa nágrannasveitarfélög vaxið umtalsvert hraðar en Reykjavík eða um 60%. Á meðan önnur sveitarfélög hafa brugðist við þörfinni hefur Reykjavík dregist aftur úr. Þrátt fyrir þessa stöðu hefur meirihlutinn í Reykjavík valið að standa í vegi fyrir frekari uppbyggingu nágrannasveitarfélaga. Lagst er gegn breytingum á vaxtarmörkum, sem myndu gera nágrannasveitarfélögum kleift að auka íbúðauppbyggingu í tak við vilja og þarfir samfélagsins. Þetta er ekki tilviljun, þetta er bein afleiðing meðvitaðrar ofurþéttingarstefnu Samfylkingarinnar í Reykjavík. Samkvæmt mati HMS er íbúðaskuldin um 14 þúsund íbúðir. Með því að halda aftur af lóðaframboði og setja nær alla áherslu á þéttingu hefur borgin í raun kæft uppbyggingu þar sem hennar er mest þörf. Afleiðingin blasir við sem er skortur, hækkandi verð og sífellt erfiðari aðgangur að því að eignast eigið húsnæði. Síðan vaxtarmörkin voru tekin upp árið 2015 hefur húsnæðisliðurinn drifið verðbólguna áfram Í 9 af hverjum 10 mánaðarlegum verðbólgumælingum. Það er bein afleiðing af skorti sem þessi stefna hefur fest í sessi. Á meðan almenningur glímir við hækkandi húsnæðiskostnað og sífellt erfiðari aðgang að eigin húsnæði velur meirihlutinn í Reykjavík að halda áfram á sömu braut, með ofuráherslu á þéttingu og stór verkefni á borð við Borgarlínu, sem ýta undir verðbólguþrýsting. Eimvél ójafnaðar og misskiptingar Afleiðingarnar bitna harðast á þeim sem síst skyldi, ungu fólki, barnafjölskyldum og tekjulægri hópum í Reykjavík. Þetta eru hópar sem ættu að njóta mestrar verndar, en í staðinn er verið að loka á möguleika þeirra til að eignast eigið húsnæði, byggja upp sjálfstæði og stöðugt líf. Í höfuðborginni og í raun um allt land er einn helsti raunhæfi möguleiki almennings til að byggja upp eigið fé að eignast sitt eigið húsnæði. Gögn úr skattframtölum sýna þetta skýrt. Sá sem kemst inn á fasteignamarkað og eignast eigið húsnæði á að jafnaði um 76 milljónir króna í eign við 67 ára aldur, á meðan sá sem er á leigumarkaði á aðeins um 4 milljónir. Þetta er ójöfnuður sem er að festast í sessi sem afleiðing af ofurþéttingarstefnu samfylkingarinnar í Reykjavík. Svarið við spurningunni er einfalt Svarið við spurningunni „Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík?“ ætti að vera augljóst: Láglaunafólk á að hafa raunhæfan möguleika á að eignast sitt eigið húsnæði og búa við húsnæðisöryggi, rétt eins og fyrri kynslóðir höfuðborgabúa fengu tækifæri til. Húsnæðisöryggi er eitt stærsta hagsmunamál launafólks í dag Miðflokkurinn ætlar að snúa þessari þróun við í Reykjavík. Við viljum hlusta á vilja íbúa, auka framboð lóða og tryggja að byggðar séu íbúðir í takt við þarfir og óskir borgabúa. Aðeins þannig er hægt að skapa raunhæfan húsnæðismarkað þar sem Reykvíkingar hafa efni á að kaupa sér heimili og draga úr óhóflegum þrýstingi á leigumarkað. Þannig skapast raunveruleg tækifæri fyrir Reykvíkinga til að komast inn á eignamarkað og byggja upp öryggi til framtíðar. Það er kominn tími til að setja húsnæðisöryggi fólks aftur í forgang, ekki í orði heldur í verki. Það er eitt stærsta hagsmunamál launafólks í dag. Höfundur er oddviti Miðflokksins í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Húsnæðismál Ari Edwald Mest lesið FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun Menntun fyrir mennsku Fanney Dóróthe Halldórsdóttir Skoðun Krónuskatturinn á kynslóðirnar: mesti skattur Íslandssögunnar Baldur Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann skrifar Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason skrifar Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun En stelirðu miklu... Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Menntun fyrir mennsku Fanney Dóróthe Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar Skoðun Krónuskatturinn á kynslóðirnar: mesti skattur Íslandssögunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Það er mér í hag að hinsegin fánar séu sýnilegir Daníel Ágúst Gautason skrifar Skoðun Minnir á kafla úr bók Franz Kafka Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Kannski erum við að spyrja rangra spurninga Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Þegar maður gengur gegn eigin gildum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Dulinn kostnaður við kreditkortið þitt Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hljóðlát endalok íslensku vefumsjónarkerfanna Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Það borgar sig að skoða kostina Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hvað sér unga fólkið sem ég sé ekki? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hlutdrægni RÚV í ESB umræðunni Birgir Finnsson skrifar Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og fiskveiðar Finnur Torfi Magnússon. skrifar Skoðun Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Óttinn sem gerir fólk leiðitamt og þörfin að tilheyra Helga Þórólfsdóttir skrifar Skoðun Tennur og tryggingar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Iðumálið frá upphafi frá sjónarhóli Stóru-Laxárdeildar Esther Guðjónsdótti skrifar Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar
Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar
Skoðun Ekki má draga víðtækar ályktanir af veikum gögnum Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðadóttir skrifar
Skoðun „Að deila og drottna“ - hugleiðingar miðaldra konu að kvöldlagi Ingibjörg Einarsdóttir skrifar
Skoðun Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar
Skoðun Hvernig fyrirbyggjum við heimilisleysi eftir meðferð vegna vímuefnaröskunar? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Voru lífeyrisréttindi markvisst tekin af opinberum starfsmönnum og var engin leiðrétting launa? Gunnar Alexander Ólafsson,Sveinn Ólafsson skrifar
Skoðun „Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir,Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Íslenska fánann á ekki að nota til skemmdarverka Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar
Er ekki komið gott af því að mæta í sumarfrí eins og sími á 2% rafhlöðu? Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir Skoðun