„Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. maí 2026 23:05 Cunha segist alltaf hafa þurft að vinna fyrir sínu. Markaskorarinn Matheus Cunha ræddi við Hjörvar Hafliðason eftir 3-2 sigur Manchester United gegn Liverpool í dag.
Með sigrinum tryggði Manchester United sér Meistaradeild á næsta tímabili en Cunha hefur ekki spilað þar í þónokkurn tíma, eða síðan hann var hjá Atletico Madrid fyrir þremur árum. „Þegar ég kom hingað var þetta markmiðið. Meistaradeildin er ekki eins án þessa liðs. Svona félag á að vera í Meistaradeildinni á hverju tímabili og að berjast um titilinn. Þannig að við erum ánægðir með að hafa náð þessu markmiði.“ Fyrri hluta tímabils leit ekki út fyrir að United myndi vera í Meistaradeildinni en hlutirnir breyttust hratt þegar Ruben Amorim var rekinn. Cunha þurfti samt að sanna sig fyrir nýja stjóranum. Michael Carrick hafði hann á bekknum til að byrja með en Cunha er núna orðinn lykilmaður í liði Carrick. „Svona hefur þetta verið allt mitt líf. Og ekki bara ég, það eru margir sem þurfa að berjast fyrir sínu sæti og sanna sig á erfiðu stundunum. Ef þú gerir það fylgja góðu tímarnir með og ég get verið glaður núna. Við vissum þegar hann mætti að þetta væri maður sem hefði unnið allt sem hægt er að vinna með félaginu og myndi hjálpa okkur, sýna okkur og kenna okkur en líka gera miklar kröfur til okkar. Við höfum þurft að leggja hart að okkur en það er gott að geta fagnað.“ Cunha skoraði fyrir United gegn Liverpool í dag en það var ungstirnið Kobbie Mainoo sem tryggði sigurinn á lokamínútunum. „Ég er svo ótrúlega hamingjusamur fyrir hans hönd, ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Þegar ég kom til félagsins var hann svo almennilegur við mig og við erum orðnir mjög nánir núna. Hann langar að heimsækja Brasilíu og ég þarf að taka vel á móti honum þar… Ég er mjög hamingjusamur fyrir hans hönd, hann er svo ungur og á framtíðina fyrir sér.“ Klippa: Viðtal Hjörvars við Matheus Cunha Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan.
Enski boltinn Manchester United Liverpool FC Messan Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Sport Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Arnar um pressuna: „Það vilja allir núna vera með hnífana úti“ Sport Lebron talaði hreint út Körfubolti Fleiri fréttir City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Sjá meira