Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Jakob Bjarnar skrifar 4. maí 2026 14:45 Jón Bjarni Steinsson er að skipuleggja flóknasta og dýrasta menningarviðburð Íslandssögunnar að sögn; veltan er 650 milljónir króna. vísir/vilhelm Eins og Íslendingar, sem flestir þykjast þrælskipulagðir ef þeir vita hvað þeir eru að fara að gera á morgun, eru smám saman að átta sig á verður almyrkvi 12. ágúst. Hundrað dagar í dag. Öll gisting er fyrir löngu uppbókuð og verðið er að sigla upp úr öllu valdi. „
Við erum með tjaldsvæði með fullt af plássi, og svo erum við búin að leigja hótel og gistirými á svæðinu; Ólafsvík, Rifi og Hellissandi,“ segir Jón Bjarni Steinsson veitingamaður og viðburðastjóri. Langt er síðan hann tók að undirbúa komu mikils fjölda ferðamanna til landsins. Hann stofnaði fyrirtæki ásamt konu sinni Katrínu Ólafsson, sem heldur utan um þennan viðburð en fjöldi tónlistarmanna mun koma fram við þetta tækifæri. „Þetta er dýrasti og flóknasti menningarviðburður Íslandssögunnar. Veltan er um 650 milljónir,“ segir Jón Bjarni. Íslendingar að fatta að eitthvað mikið sé að gerast Jón Bjarni hefur nú blásið til íbúafundar á Hellissandi á fimmtudaginn þar sem hann hyggst ræða framkvæmdina við nærsveitunga og græðgi sem hann segir að hafi nú tekið að grafa um sig í samfélaginu. DV er með frétt sem þeir höfðu af samfélagsmiðlinum Reddit þar sem segir af erlendum ferðamanni sem var búinn að panta gistingu í tengslum við almyrkvann en situr nú uppi með sárt ennið; hann segir að honum hafi verið sagt upp gistingunni með skömmum fyrirvara og séð svo þetta sama gistipláss auglýst á margföldu verði. Jón Bjarni segir að þetta verði rætt ásamt öðru. Jón Bjarni og hundurinn Láki. Hann segir að þau verð sem hann heyri fyrir gistingu þessa daga sem um ræðir séu býsna há.vísir/vilhelm Hann segist vera með allt sitt á hreinu en hann vilji hnýta alla enda. Er að magnast upp sturlunarástand á Íslandi vegna sólmyrkvans? „Það er töluvert langt síðan það magnaðist upp sturlunarástand en við byrjuðum mjög snemma að skipuleggja okkar viðburð. Við erum orðin meira en eins árs. Núna síðustu vikur höfum við séð það magnast upp. Íslendingar – sem eru fæddir seinfærir – eru að fatta að það er eitthvað mikið að gerast næsta sumar.“ Hefur þú heyrt af svipuðum sögum og DV hefur af Reddit? Að fólk hafi afbókað gistingu sem það var búið að selja bara til að auglýsa gistirými aftur, á margvöldu verði. Hefur þú heyrt af slíkum dæmum? „Við erum fyrir löngu búin að tryggja gistingu fyrir okkur og okkar fólk. En við höfum nýverið fengið „tilboð“ frá fólki sem er að selja gistingar og bjóða okkur þær á uppsprengdu verði. Okkur grunar að um sé að ræða fólk sem er að afbóka og vilji svo selja okkar gestum.“ Hafa séð ansi háar tölur fyrir gistirými Þegar Jón Bjarni er spurður um svæsnustu dæmin sem hann hefur heyrt af þessu tagi spyr hann á móti hvort það sé ekki óvarlegt að fara með slíkar sögusagnir í fjölmiðla? „Við höfum séð ansi háar tölur þar sem fólk er að leigja út hús og/eða íbúðir. Við erum búin að leigja töluvert magn af húsum og íbúðum fyrir okkar VIP-kúnna en við erum ekki bara AirBNB, við tökum við húsum, þrífum, breytum þeim í „hótel“ og skipuleggjum akstur.“ Jón Bjarni segir þau hafa skipulagt þennan viðburð afar lengi og þau viti hvað þau eru að gera. „En það er svona smá villta vesturs-dæmi í gangi núna.“ Bandaríkjamenn og konur Þú talar um seinfæra (og gráðuga) Íslendinga. Eru þeir sem fyrst eru að vakna núna og geta gengið úr rúmi fyrir gesti að gömlum sið ekki með pálmann í höndunum? Geta sett upp verð sem er með öllu siðlaust? „Ég held að fólk sé aðeins að ofmeta eftirspurn og sé vegna þess að selja gistingu og annað langt umfram það sem eðlilegt sé.“ Eins og sjá má eru það einkum Bandaríkjamenn sem hyggja á komu til Íslands í tengslum við almyrkvann. Hér sjáum við gestina brotna niður eftir kynferði.aðsend Jón Bjarni segir að einkum séu þetta Bandaríkjamenn og konur sem eru að koma á hans vegum til Íslands í ágúst. Af hverju hafa konur meiri áhuga á almyrkvanum en karlar? „Þetta er mjög fjölskyldumiðuð hátíð og þar eru það yfirleitt konur sem sjá um að bóka,“ segir Jón Bjarni og bætir því við að í vikunni verði tilkynnt hvaða verð er í boði fyrir þá sem eru með íslenskar kennitölur. En víst er að spennan er að magnast.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Tónleikar á Íslandi Ferðaþjónusta Tengdar fréttir Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Greiningardeild Landsbankans telur töluverðar líkur á því að almyrkvi á sólu þann 12. ágúst muni hafa áhrif á verðbólgumælingar í ágúst. Forsenduákvæði kjarasamninga miðar við verðbólgumælingu ágústmánaðar og því gæti sólmyrkvinn virkjað ákvæðið. 4. maí 2026 13:51 Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Stjörnu-Sævar segir gervigreindina plágu sem kaffæri réttum upplýsingum með bulli og ljótleika. Máli sínu til stuðnings deilir hann aragrúa skjáskota af fölsuðum myndum af sólmyrkva á Suðurskautslandinu. Óttast hann að Íslendingar muni verða fyrir barðinu á svipuðu falsi vegna almyrkva á Íslandi í ágúst. 19. febrúar 2026 13:30 Ný kort sýna hvernig almyrkvinn verður á Íslandi Rétt rúmt ár er nú þar til almyrkvi frá sólu mun sjást á íslandi í fyrsta sinn í 72 ár. Almyrkvinn verður 12. ágúst og hafa nú verið birt kort af Íslandi sem sýna hvernig almyrkvinn verður á Íslandi og hvar gott verður að vera til að sjá hann. Kortin eru gerð af Sævari Helga Bragasyni og Andreas Dill. 7. júlí 2025 11:27 Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Fleiri fréttir „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Sjá meira
Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Greiningardeild Landsbankans telur töluverðar líkur á því að almyrkvi á sólu þann 12. ágúst muni hafa áhrif á verðbólgumælingar í ágúst. Forsenduákvæði kjarasamninga miðar við verðbólgumælingu ágústmánaðar og því gæti sólmyrkvinn virkjað ákvæðið. 4. maí 2026 13:51
Falsmyndir af sólmyrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“ Stjörnu-Sævar segir gervigreindina plágu sem kaffæri réttum upplýsingum með bulli og ljótleika. Máli sínu til stuðnings deilir hann aragrúa skjáskota af fölsuðum myndum af sólmyrkva á Suðurskautslandinu. Óttast hann að Íslendingar muni verða fyrir barðinu á svipuðu falsi vegna almyrkva á Íslandi í ágúst. 19. febrúar 2026 13:30
Ný kort sýna hvernig almyrkvinn verður á Íslandi Rétt rúmt ár er nú þar til almyrkvi frá sólu mun sjást á íslandi í fyrsta sinn í 72 ár. Almyrkvinn verður 12. ágúst og hafa nú verið birt kort af Íslandi sem sýna hvernig almyrkvinn verður á Íslandi og hvar gott verður að vera til að sjá hann. Kortin eru gerð af Sævari Helga Bragasyni og Andreas Dill. 7. júlí 2025 11:27