Oddvitaáskorunin: Mistök að kenna hundinum á klukku Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. maí 2026 11:01 Sævar og Týra á leið til Fljótavíkur Aðsend Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Sævar Óli Hjörvarsson er oddviti Miðflokksins í Ísafjarðarbæ. Ég heiti Sævar Óli Hjörvarsson, fæddur 1961 uppalinn í Reykjavík en ættaður af Hornströndum. Flutti til Ísafjarðar 17 ára. Ég er húsasmíðameistari að mennt og hef verið í ýmsum fyrirtækjarekstri undanfarin 30 ár og meðlimur í björgunarsveitinni Tindum í Hnífsdal í áratugi. Ég er giftur Halldóru Þórðardóttur og eigum við samanlagt 5 börn, 7 barnabörn og hundinn Týru. Ég hef gaman af ferðalögum, þá sérstaklega í Fljótavík, vera með fjölskyldunni og fleira. Ég vil leggja áherslu á skólamál sveitarfélagsins og áframhaldandi uppbyggingu þar ásamt stuðningi við kennara. Gera þjónustu við bæjarbúa og fyrirtæki einfaldari og skilvirkari, tryggja framboð lóða fyrir íbúðir og fyrirtæki. Gera 10 ára áætlun um uppbyggingu íþróttamannvirkja í samráði við íþróttahreyfinguna. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Austur á landi í góða veðrinu“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Byssurnar í Navarone“ Sævar og Dóra í Fljótavík.Aðsend Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Hagræða í stjórnsýslunni, einfalda ferla og hámarka hagkvæmni í rekstrinum, meiri árangur fyrir hverja krónu til hagræðis fyrir bæjarbúa“ Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Uppbygging Íþróttamannvirkja og annara innviða svo sem gatna, bæta upplifun íbúa og gesta, styrking leikskóla bæjarins“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Allt er hægt að bæta“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Hringja, skilaboð ef allt um þrýtur“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Enginn hefur hingað til viðrað óænægju með skoðanir mínar“ Sævar Óli HjörvarssonAðsend Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Krabbameinslækningum“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Flest allar ákvarðanir eru umdeildar“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Aldrei notað gervigreind bara eigin greind“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Ég er opinn fyrir öllum flokkum, ágætis fólk í þeim öllum“ Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni? „Að kenna hundinum á klukku“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Ísfirska lognið“ Sævar bjargar krumma frá TýruAðsend Hvað borðar þú í morgunmat? „Ávexti eða smoothie“ Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Ákvörðunarfælni og seinagangur“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Bygging nýrrar sundlaugar eða fjölnota íþróttahúss“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Wild dances með Ruslönu, en ég dansaði einmitt fyrsta dansinn í brúðkaupinu mínu við það.“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Lélegt viðhald húsnæðis í eigu bæjarins, ónógur þrýstingur á stjórnvöld vegna Súðavíkurgangna og annara samgangna við sveitarfélagið“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Hef ekki fengið gælunafn ennþá“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Öll sem ég get“
Oddvitaáskorunin Ísafjarðarbær Miðflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Pattra með pæju-padelmót Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? Áskorun Fleiri fréttir Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Sjá meira