Menntaforystan er að plata þig Andri Þorvarðarson skrifar 5. maí 2026 15:00 Nýverið birtist sláandi frétt um að læsi barna á Íslandi hrakaði hraðar en á meðal barna annarra OECD-ríkja og að íslenskir nemendur væru um tveimur skólaárum á eftir jafnöldrum sínum hvað lesskilning varðaði. Því miður ætti þetta ekki að koma neinum á óvart, nema kannski þeim sem teljast til forystufólks í menntasamfélaginu, til að mynda hjá Kennarasambandinu. Nú hef ég starfað sem framhaldsskólakennari í yfir áratug og hef vaxandi áhyggjur af þeirri djúpu gjá sem myndast hefur á milli þeirra sem auglýsa sig sem málsvara íslenskrar menntunar og okkar sem sinna starfinu á gólfinu. Hér vil ég því fara í sem stystu máli yfir víðan völl, því yfirhylming menntaforystunnar á vanköntum skólakerfisins er farin að valda gífurlegu tjóni. Sjálfur rak ég mig strax á þetta í kennaranáminu; ef ég á að vera heiðarlegur þá var undirbúningurinn sem ég fékk þar á bæ nánast verri en enginn. Þar fengum við að hlusta á endalausa fyrirlestra um hvað fyrirlestrar væru úrelt kennsluform. Í kennslustundum var lítill vilji fyrir því að veita kennaranemum hagnýtan undirbúning fyrir starfsferil sinn, eins og til dæmis hvernig mætti taka á eineltismálum; reyndar var það meðvituð ákvörðun menntavísindasviðs að kenna sem minnst um félagslega þætti kennarastarfsins, líkt og eineltisforvarnir. Öllu meiri áhugi er á háfleygum kennslufræðikenningum sem eru kannski fínar til síns brúks fyrir menntaheimspekinga en gera lítið gagn fyrir væntanlega kennara. Æfingakennslan var í raun eini þáttur námsins sem kom mér að einhverju gagni til í mínu framtíðarstarfi. Ef útskrifaðir kennaranemar kenna svo á grunnskólastigi þá tekur ekki betra við því þeir þurfa að notast við einkunnakerfi sem kennarar, nemendur og foreldrar eiga bágt með að skilja. Ég ætla ekki að kafa hér djúpt í kosti og galla bókstafakerfisins, sjálfur er ég tölustafamaður en bókstafirnir geta alveg skilað sínu ef vel er staðið að verki. En menntaforystan virðist hafa fengið þá flugu í höfuðið að hlutverk einkunna sé ekki að segja til um stöðu nemenda, heldur eigi þær að vera eins loðnar og ógagnsæjar og kostur er svo hægt sé að minnka einkunnabilið milli missterkra nema. Auðvitað eiga einkunnir ekki að vera upphaf og endir alls skólastarfs, og vandi skólakerfisins er djúpstæðari en það hvernig við gefum einkunnir, en við verðum að hafa einhvern marktækan mælivarða til að meta nemendur jafnt sem þær kennsluaðferðir sem notaðar eru. Einkunnakerfi með örfáum mælistikum, þar sem hin afskaplega teygjanlega einkunn B „er best“ og allt annað er bónus, er vita gagnslaust. Öllu skárra væri ef við gætum borið saman stöðu nemenda eftir skólum, þá ekki síst til að geta gripið inn í og hjálpað nemendum þeirra skóla sem standa verr. En að sjálfsögðu er menntaforystan hörð á móti því, orðin „samræmd próf“ eru blótsyrði í hennar eyrum og hún vill ekki heyra á þau minnst. Samræmdu prófin voru sannarlega ekki fullkomin en ég vil meina að þau hafi skilað sínu. En í staðinn fyrir að bæta úr vanköntunum var ákveðið að rífa kerfið niður. Forystufólkið sætti sig ekki við kerfi sem stóðst ekki samanburð við þeirra útópísku draummynd og ákvað því að losa sig við það án þess að ígrunda hvernig hið nýja draumórakerfi myndi virka í raunveruleikanum. Þetta fólk henti frá sér þeim fugli sem það hafði í hendi í leit að tveimur í skógi og endaði tómhent. Reyndin er að ýmsir nemendur sem útskrifast með fínar einkunnir úr grunnskóla eru á engan hátt undirbúnir fyrir framhaldsskólanám. Jafnvel hefur borið á því að framhaldsskólar taki á móti nemendum sem útskrifast úr grunnskóla með B í íslensku en tala svo varla stakt orð í málinu! Í slíkum tilfellum hefði verið gott að hafa einhvers konar samræmd próf til að sannreyna íslenskugetu viðkomandi. Því framhaldsskólarnir hafa oft litla sem enga hugmynd um raunverulega námsgetu nýnema og eiga því erfitt með að veita þeim viðhlítandi stuðning. Forystufólk menntasamfélagsins virðist hafa gleymt sér í einhverjum froðukenndum háskólafræðum (ég leyfi mér að segja þetta sem langskólagenginn maður) og misst sjónar á grundvallarmarkmiði menntakerfisins: Að gera unga fólkið okkar að nýtum þjóðfélagsþegnum; bæði þeim og samfélaginu til heilla. Menntaforystan og fylgissveinar hennar virðast ekki vilja takast á við þann víðtæka vanda sem menntakerfið glímir við; hvort sem það er hin gagnslitla kennsla sem það veitir kennaranemum, eða því handónýta einkunnakerfi sem margir þeirra þurfa að notast við að útskrift lokinni. Ég held að það sé ekki orðum aukið að líkja hinu íslenska skólakerfi við skip sem hefur steytt á skeri; kannski er kominn tími til að fá nýtt fólk í brúna. Höfundur er framhaldsskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Læsi Börn og uppeldi Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar