Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Lovísa Arnardóttir skrifar 6. maí 2026 23:11 Mikill fjöldi viðbragðsaðila beið þeirra þriggja sem var ákveðið að flytja af skipinu og til Hollands af heilsufarsástæðum. Vísir/EPA Hollenska skemmtiferðaskipið MV Hondius hefur nú lagt af stað frá Grænhöfðaeyjum til Kanaríeyja. Þremur einstaklingum var vísað frá borði áður en lagt var af stað af heilsufarsástæðum. Þau voru öll send til Hollands.
Um er að ræða 56 ára breskan mann, 41 árs hollenskan áhafnarmeðlim og 65 ára þýskan ríkisborgara sem var nátengdur þýskri konu sem lést um borð í skipinu 2. maí. Alls eru nú 146 manns um borð í skipinu og er gert ráð fyrir að siglingin til Kanaríeyja taki um þrjá daga. Greint var frá því í vikunni að þrír farþegar á skipinu hefðu látist, líklega af völdum hantaveiru. Venjulega smitast fólk af hantaveiru eftir að hafa komist í snertingu við sýkt nagdýr, þvag þeirra eða saur, en Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur að smit hafi borist á milli manna á skipinu. Tveir af látnu voru hjón og þá virðast náin tengsl milli annarra sem hafa smitast. Skipið siglir nú til Tenerife. Vísir/EPA Í frétt BBC segir að enginn þeirra þriggja sem fluttir voru á brott hafi hingað til greinst með hantaveiru, en tveir sýni einkenni. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur staðfest að átta tilfelli af hantaveiru, þrjú staðfest og fimm grunuð, hafi hingað til verið greind hjá fólki sem var í skipinu. Enn er verið að prófa aðra gesti og áhafnarmeðlimi. Í frétt BBC segir að heilbrigðisyfirvöld hafi lagt áherslu á að hættan á smiti til almennings sé lítil. Fjallað var um það í vikunni að skipið hefði átt að sigla til Íslands. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir sagði það ekki áhyggjuefni að skipið myndi koma hingað til lands samkvæmt núverandi ferðaáætlun þess. Heilbrigðisyfirvöld fylgist vel með stöðunni um borð og ljóst sé að þegar sé verið að bregðast við. Mikill viðbúnaður var á Schiphol flugvelli þegar þrír einstaklingar af skipinu lentu þar í dag. Vísir/EPA Í frétt BBC segir að spænsk stjórnvöld hafi samþykkt að skipið myndi leggja af stað til Kanaríeyja en forseti Kanaríeyja hefur mótmælt því. „Ég get ekki leyft [bátnum] að koma til Kanaríeyja,“ sagði Fernando Clavijo við spænsku útvarpsstöðina Onda Cero. „Þessi ákvörðun byggir ekki á neinum tæknilegum forsendum og okkur hafa ekki verið veittar nægar upplýsingar.“ Alls eru 146 manns frá 23 mismunandi löndum enn um borð í MV Hondius. Sérfræðingar í smitsjúkdómum og starfsfólk WHO hafa bæst í hópinn og munu ferðast með þeim til Kanaríeyja. Allir sem eftir eru í skipinu eru einkennalausir, sagði Mónica García, heilbrigðisráðherra Spánar. Hún bætti við að allir um borð muni gangast undir læknisskoðun þegar þeir koma til Tenerife og, ef þeir eru ferðafærir, verði þeir sem eru erlendis frá sendir heim til sín. Spánverjar verða sendir á hersjúkrahús í Madríd í sóttkví. Í tilkynningu frá Oceanwide Expeditions um stöðuna segir að fyrirtækið sé í stöðugu og nánu samráði við viðeigandi yfirvöld varðandi nákvæman komustað okkar, sóttkvíar- og skimunarferli fyrir alla gesti og nákvæma tímalínu. „Við getum ekki staðfest upplýsingar um áframhaldandi ferðalög gesta á þessu stigi. Það er háð læknisráði og niðurstöðum strangra skimunarferla. Náið samstarf heldur áfram við staðbundin og alþjóðleg yfirvöld, þar á meðal Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO), RIVM, viðeigandi sendiráð og hollenska utanríkisráðuneytið,“ segir að lokum í tilkynningunni sem birt var í kvöld.
Skemmtiferðaskip á Íslandi Spánn Grænhöfðaeyjar Holland Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Veður Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Fleiri fréttir Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Sjá meira