Neyðast til að styðja liðið sem þeir hata Sindri Sverrisson skrifar 8. maí 2026 09:02 Þessi stuðningsmaður Tottenham vill að það sé skýrt hve mikið hann hatar Arsenal. Getty/Catherine Ivill Þó að stuðningsmönnum Tottenham sé það þvert um geð þá ættu þeir svo sannarlega að vonast eftir sigri erkifjenda sinna í Arsenal á sunnudaginn.
Spursarar eru í klípu því þó að þeir hafi engan áhuga á að horfa upp á Arsenal vinna langþráðan Englandsmeistaratitil þá vilja þeir heldur ekki falla niður í B-deild. Nú þegar þrjár umferðir eru eftir af deildinni er Tottenham enn í mikilli fallhættu, þrátt fyrir tvo sigra í röð, aðeins stigi fyrir ofan West Ham sem situr í fallsæti. Arsenal og West Ham mætast einmitt á sunnudaginn og sigur West Ham myndi setja Tottenham í fallsæti fyrir leik liðsins við Leeds á mánudagskvöldið. Standings provided by Sofascore BBC ræddi við stuðningsmenn Tottenham og einn þeirra, Ali Speechly, sagði skiptar skoðanir meðal þeirra. „Sjálfur myndi ég ekki ganga svo langt að styðja Arsenal. Ég gæti bara ekki hugsað mér það,“ sagði Speechly. Bardi, sem sér um The Extra Inch hlaðvarpið sem tileinkað er Tottenham, segir hins vegar: „Í augnablikinu snýst þetta allt um að halda sér á lífi. Það er í forgangi hjá okkur. Öryggið er mikilvægara heldur en rígurinn en ég mun ekkert fara að gráta ef þetta endar 5-5 og Jarrod Bowen skorar tvö mörk í uppbótartíma,“ sagði Bardi. Eftir leikinn við Leeds á Tottenham eftir að spla við Chelsea á útivelli 17. maí og svo heima gegn Everton í lokaumferðinni 24. maí. West Ham á útileik við Newcastle 17. maí en spilar heima við Leeds í lokaumferðinni.
Enski boltinn Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Fleiri fréttir Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Sjá meira