„Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ SLFÍ 8. maí 2026 13:31 Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands bendir á að á næstu 12 árum muni um þriðjungur starfandi sjúkraliða hætta vegna aldurs. Ernir Sjúkraliðafélag Íslands hefur hrundið af stað átaki til að vekja athygli á starfi sjúkraliða og hvetja fleiri til að sækja í námið. Að sögn Söndru B. Franks, formanns félagsins, er staðan alvarleg en jafnframt full af tækifærum fyrir nýtt fólk.
Þriðjungur starfandi sjúkraliða hættir vegna aldurs á næsta áratug „Það er mikil þörf á að fjölga sjúkraliðum og vekja athygli á virði starfsins. Átakið fór af stað síðasta haust og við höldum því áfram. Það er þjóðaröryggismál að þessi stétt sé á lífi svo þjóðin fái þá þjónustu sem hún þarf,“ segir Sandra og bendir á að á næstu 12 árum muni um þriðjungur starfandi sjúkraliða hætta vegna aldurs. Sú þróun sé alvarleg fyrir heilbrigðiskerfið. „Við getum ekki borið uppi faglega þjónustu í skortstöðu,“ bætir hún við. Starf sem skiptir raunverulegu máli Sandra leggur áherslu á að starfið sé bæði krefjandi og gefandi. Sjúkraliðar sinna fólki á viðkvæmustu stundum lífsins og þurfa að búa yfir bæði líkamlegum og andlegum styrk. Sandra bendir einnig á að sjúkraliðar hafi lengi verið ósýnilegir í umræðunni þrátt fyrir að sinna stórum hluta nær-hjúkrunar. Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags ÍslandsErnir Verkin sem þeir sinna eru oft eignuð öðrum stéttum. Þetta er kerfislægt og þarf að breytast. Þetta er alvöru starf sem krefst þess að alvöru fólk sinni því,“ segir hún. Þá sé eitt af markmiðum átaksins að fjölga körlum í stéttinni. Í dag eru þeir aðeins um 3–4 prósent sjúkraliða hér á landi, sem er mun lægra hlutfall en á Norðurlöndunum að sögn Söndru. „Verkefnin eru orðin fjölbreyttari og það er vaxandi eftirspurn eftir því að karlar sinni þessum störfum. Við þurfum að fá fleiri stráka í námið,“ segir Sandra. En hvað gerir sjúkraliði? Mikilvægur hlekkur í teyminu Inga Hrund Daníelsdóttir er sjúkraliði á hjartadeild Landspítalans. Hún byrjaði þar meðfram náminu árið 2019 og fór svo í fullt starf þegar hún útskrifaðist árið 2020, í miðjum heimsfaraldri. Áskoranirnar sem fylgdu Covid hafi síður en svo fælt hana frá starfinu. Inga Hrund Daníelsdóttir er sjúkraliði á hjartadeild Landspítalans. „Ég hafði áður verið í sumarvinnu á hjúkrunarheimilum og í fullu starfi á Sóltúni og ég fann að sjúkraliðastarfið var eitthvað fyrir mig. Ég skellti mér því í námið og sé ekki eftir því. Það var talsverð upplifun og mikill skóli að vera í námi og vinna á Landspítalanum á covidtímanum. Hlutirnir breyttust dag frá degi og maður þurfti að lesa sér til um nýja verkferla fyrir vakt,“ segir Inga Hrund. Hún segir starfið fjölbreytt en fyrst og fremst gefandi. Fer sátt heim eftir hvern vinnudag „Þetta er mikil nánd við fólk og maður finnur vel hvað maður gerir mikið gagn. Þess vegna fer maður svo sáttur heim eftir vinnudaginn. Starfið snýst að miklu leiti um að aðstoða fólk með athafnir daglegs lífs, að klæða sig, salernisferðir, bað, hjálp við að borða og þá erum við að aðstoða við mælingar eins og lífsmarkamælingar. Á Hjartadeildinni tökum við meðal annars hjartalínurit. Stundum koma rólegir dagar þar sem fleiri eru inniliggjandi sem eru sjálfbjarga en svo koma tímabil þar sem margir þurfa aðstoð tveggja eða þriggja. Það getur verið álag og hlaup og vissulega getur starfið reynt á,“ segir Inga Hrund, starfinu fylgi ábyrgð. „Sjúkraliðar eru ekki einhverjir aðstoðarmenn heldur stór hluti af heildarmyndinni og mikilvægur hlekkur í teyminu. Það erum við sem sinnum nærþjónustu og þekkjum því skjólstæðinginn best og erum kannski fyrst til að taka eftir því ef eitthvað er ekki eins og það á að vera hjá viðkomandi. Starfið er bæði andlega og líkamlega erfitt en á Hjartadeildinni pössum við vel upp á hvert annað og ræðum saman. Þar er mikil samvinna milli hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða og mórallinn á deildinni er frábær. Það eru allir með sama markmið, að sjúklingum líði sem best.“ Inga Hrund segir mikla samstöðu og góða sdamvinnu ríkja á hjartadeildinni. Miklir atvinnumöguleikar og kostur á viðbótarnámi til sérhæfingar Inga Hrund mælir hiklaust með starfi sjúkraliða og þeim möguleika að bæta við sig sérhæfingu. „Ég hef mikinn áhuga á framhaldsnáminu tengt kjörsviði geðhjúkrunar og ef það verður í framtíðinni boðið upp á framahaldsnám á kjörsviði bráðahjúkrunar þá hefði ég mikinn áhuga á því. Mig langar að vera sjúkraliði. Þetta er svo fjölbreytt starf og hægt að vinna á svo mörgum stöðum og um allan heim. Það vantar alltaf fólk í þessu starfi,“ segir Inga Hrund. Viðbótarnám til sérhæfingar skilar þekkingu sem nýtist Sjúkraliðanám er starfsnám á framhaldsskólastigi og er að mörgu leyti sambærilegt við nám í iðngreinum. Undanfarin þrjú ár hefur verið boðið upp á framhaldsnám við Háskólann á Akureyri, þar sem hægt er að sérhæfa sig í öldrunar- og heimahjúkrun eða samfélagsgeðhjúkrun. Námið var skipulagt af stjórnvöldum í samráði við Sjúkraliðafélag Íslands, Háskólann á Akureyri og vinnuveitendur og segir Sandra viðbótarnámið opna á enn frekari möguleika fyrir starfandi sjúkraliða. „Það er mikilvægt að fólk sjái að það eru framgangsmöguleikar í þessu starfi. Við viljum ekki mennta fólk út úr faginu heldur að það sjái fleiri tækifæri innan þess,“ útskýrir Sandra. „Stjórnvöld hafa ekki staðið nægilega vel að því að tryggja nýliðun og aðsókn í þessi störf. Vonandi er þó að verða breyting þar á og aukinn vilji til að meta störf sjúkraliða að verðleikum. Skilningur á mikilvægi stéttarinnar virðist fara vaxandi, sem og þörfinni á að efla hana. Enn stendur þó eftir að sannfæra stjórnendur innan heilbrigðiskerfisins um að nýta betur krafta sjúkraliða, enda geta þeir sinnt mun fleiri og sérhæfðari verkefnum en þeim er almennt falið í dag. „Reynslan sýnir að stjórnendur sem hafa ráðið til sín sérhæfða sjúkraliða eru mjög ánægðir með störf þeirra og þá þekkingu sem þeir koma með inn á vinnustaðinn. Þetta á ekki síst við um hjúkrunarheimilin, þar sem komin er góð reynsla af störfum sérhæfðra sjúkraliða og þeir fá víða tækifæri til að blómstra. Nú er mikilvægt að tryggja að þessi þekking nýtist einnig betur í heimahjúkrun og á sjúkrahúsum, með því að skapa sérhæfðum sjúkraliðum störf þar sem menntun þeirra og færni fá að njóta sín til fulls.“ „Við höldum því áfram að þrýsta á um breytingar og styðja stjórnvöld í þessari vegferð, enda bera þau ábyrgð á að tryggja að þessi mikilvægi mannauður sé nýttur sem best,“ segir Sandra að lokum.“
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Hvenær getur þú hætt að vinna? Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Gluggaþvottur og þakrennuhreinsun fyrir sumarið Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Sjá meira