Bilið breikkar og breikkar með árunum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. maí 2026 13:43 Sigríður Ólafsdóttir dósent hefur rannsakað læsi barna um árabil. Vísir/Samsett Dósent við Háskóla Íslands segir rannsóknir sýna að læsi íslenskra barna hafi hrakað meira á árunum 2018 til 2022 en frá aldamótum til 2018. Málskilningur sé í frjálsu falli sem geri það að verkum að börn nái ekki að tileinka sér nokkuð annað.
Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, hefur rannsakað þróun læsis á Íslandi um margra ára skeið. Hún segir áratugi af málþroska- og læsisrannsóknum varpa ljósi á bága stöðu íslenskra barna í alþjóðlegum og sögulegum samanburði. „Við megum ekki sópa þessu undir teppið. Þetta er ekki bara PISA sem er að segja okkur þetta. Við verðum að átta okkur á því,“ segir hún í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Ekki í boði að líta undan Allt bendi til þess að málskilningur íslenskra barna sé beinlínis í frjálsu falli. Aðstæður í leik- og grunnskólum landsins séu ekki til þess fallnar að bæta stöðuna. „Það hefur verið ákveðin tregða hjá menntayfirvöldum að líta til tölfræðilegra rannsókna í menntamálum. Það var ósköp eðlilegt fyrir svona þrjátíu, fjörutíu árum að segja að í skólastarfi eigi ekkert að skoða meðaltöl. Þetta séu lifandi börn og þau séu margskonar, og það er svo sannarlega þannig, en eftir svona þrjátíu, fjöurutíu ár af rannsóknum, málþroska- og læsisrannsóknum, eru þær orðnar svo gífurlega miklar og gefa okkur svo mikla þekkingu. Það er ekki í boði lengur að líta undan,“ segir hún. Rannsóknirnar sýni ótvírætt að málið, skilningur á því í ræðu og riti og virkur orðaforði eru til grundvallar öllum öðrum skilningi. „Strax í leikskólanum, krakkar sem eru svo lánsöm að í leikskólanum er vorið tekið fyrir allan maímánuð, breytingar í náttúrunni og dýralífinu, þau læra svo mikið tungumál í samanburði við börn sem fara kannski einn dag í húsdýragarðinn og fara svo aftur og lesa um það og vinna verkefni,“ segir Sigríður. Börn svipt tækifærum Undirstaðan fari forgörðum í umræðu um menntamál og úreltar áherslur rýri tækifæri barna. „Þetta byrjar í fjölskyldunni. Börn koma missterk inn í fyrsta ár leikskólans. Svo fara börn mismikið í leikskólann. Þú getur ímyndað þér að taka vorið fyrir í leikskólanum á móti því að taka það fyrir heima. Það er allt annað. Leikskólastarfið er miklu, miklu meira. Þannig að börn koma missterk inn í grunnskólana. Þar sýna íslenskar rannsóknir, hver af annarri, að bilið breikkar. Strax fyrsta ár grunnskólans. Þarna erum við í raun og veru að rýra tækifæri barna,“ segir Sigríður. Orðaforðinn og málþroski byggist upp og verður flóknari og flóknari. Sé undirstaðan því vanrækt sé börnum mismunað og þau heft. Sigríður tekur einnig fyrir dæmi kosninganna, bæði næstu helgi og svo þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst. Því fylgi mikil ábyrgð og því sé svo mikilvægt að Íslendingar þekki sögu landsins, þekki umheiminn og skilji, og geti sett sig sjálfa í samhengi við þetta tvennt og tekið upplýsta ákvörðun.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Leikskólar Læsi Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Sjá meira