Þingmaður á verðlaunapalli með skólastrákum: „Auðvitað er þetta fyndið“ Agnar Már Másson skrifar 10. maí 2026 19:47 „Ég hljóp þarna með öflugum Ironman-pabba með barnavagn sem ég rétt hafði svo á lokasprettinum, en sonur hans endaði með á mér á verðlaunapallinum fyrir hönd þeirra feðga,“ segir Guðmundur, sem sést hér fyrir miðju. Til vinstri við hann er silfurhafinn Magnús Kjartan og til hægri er hinn 3 ára Leó, bronsverðlaunahafinn. Neshlaupið Þingmaður Samfylkingarinnar gerði sér lítið fyrir og hljóp fyrstur í mark í karlaflokki í 3,5 kílómetra hlaupi í Neshlaupinu í gær. Hann rataði þannig á verðlaunapall, en með honum þar stóðu tveir ungir piltar, annar tæplega tíu ára og hinn þriggja. Ekki er þó allt sem sýnist, að sögn þingmannsins.
Neshlaupið á Seltjarnarnesi var haldið í 37. sinn í gær, laugardag, en þar var keppt í þremur vegalengdum: 3,25 kílómetra, 7,5 kílómetra og 15 kílómetra hlaupi. Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, lét sig ekki vanta í hlaupið enda uppalinn á Nesinu. Hann vann karlaflokkinn í 3,5 kílómetra vegalengdinni, sem hann hljóp á 14 mínútum og 31 sekúndu. Allt í allt var hann sá þriðji til þess að klára 3,5 kílómetra hringinn þar sem tveir ungir keppendur úr kvennaflokki kláruðu hringinn á undan honum. Þingmaðurinn var ánægður með árangurinn enda er Neshlaupið ekkert skemmtiskokk.Samsett Mynd/Instagram Þingmaðurinn státaði sig af medalíunni – „fyrsta gullinu“ – í hringrásarfærslu á Instagram. Það fylgdi aftur á móti ekki sögunni að silfurhafinn og bronshafinn væru væru talsvert yngri en þingmaðurinn. Neshlaupið birti mynd af verðlaunahöfum og mátti þar meðal annars sjá að í öðru sæti hafi lent hinn 9 ára Magnús Kjartan og í þriðja sæti hinn 3 ára Leó Norðfjörð. Nafni þingmannsins, Guðmundur Jörundsson, vekur athygli á þessu í færslu á X. „Vinna börnin í hlaupi og monta sig svo á Instagram. Ég er grenjandi hérna úr hlátri,“ skrifar netverjinn. Neshlaupið póstaði á FB öllum vinningshöfum og mynd af verðlaunapallinum. Í 2.sæti á eftir þingmanninum í skemmtiskokkinu kom Magnús en hann verður 10 ára í sumar og í 3 sæti Leó, hann er 3 ára.Vinna börnin í hlaupi og monta sig svo á instagram. Ég er grenjandi hérna úr hlátri. pic.twitter.com/wG10BvwdHZ— Guðmundur Jörundsson (@gudmundur_jor) May 10, 2026 Tók fram úr „Ironman-pabba“ með barnavagn Vísir sló á þráðinn til Guðmundar Ara til að spyrjast til um þetta. Hann útskýrir að hann hafi mætt með fólki á öllum aldri á ráslínuna með það að markmiði að ná „pace“-i upp á 4.20, sem honum tókst. „Ég hljóp þarna með öflugum Ironman-pabba með barnavagn sem ég rétt hafði svo á lokasprettinum, en sonur hans endaði með á mér á verðlaunapallinum fyrir hönd þeirra feðga,“ segir Guðmundur í samtali við Vísi. Hann hafi sjálfur ekki áttað sig á því að hann hafi verið fremstur fyrr en hann kom í mark enda voru tveir keppendur úr kvennaflokki sem hlupu á undan honum. „Hörkuhlauparar sem gjörsamlega rústuðu mér,“ segir hann um þær. Guðmundur Ari endaði engu að síður á því að hreppa gullið í karlaflokknum. „En auðvitað er þetta fyndið.“ Þingmaðurinn klykkir út með því að hvetja fólk til að taka þátt í hlaupum, sérstaklega Neshlaupinu.
Hlaup Alþingi Seltjarnarnes Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira