Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Árni Sæberg skrifar 11. maí 2026 11:14 Hæstiréttur hlýðir ekki á Ásgeir Helga. Vísir Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Ásgeirs Helga Reykfjörð Gylfasonar vegna dóms Landsréttar í skattamáli, sem varðar tugi milljóna króna. Reikna má með að fimm aðrir fyrrverandi og núverandi lykistjórnendur hjá Kviku banka fengju ekki heldur leyfi til áfrýjunar, óskuðu þeir eftir slíku.
Íslenska ríkið hafði betur gegn fjórum fyrrverandi og tveimur núverandi lykilstjórnendum Kviku banka, þar á meðal Ásgeiri Helga, og bankanum sjálfum fyrir Landsrétti í lok febrúar síðastliðins, í deilu sem snerist um skattlagningu hagnaðar af áskriftarréttindum sem nam á bilinu 30 til 95 milljónum króna. Landsréttur taldi að telja hefði átt hagnaðinn fram sem launatekjur frekar en fjármagnstekjur. Allt að 42 milljónir króna Umræddir stjórnendur voru háttsettir innan bankans, en hafa allir, utan tveggja, horfið til annarra starfa á síðustu árum. Umræddir stjórnendur eru eftirfarandi: Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, þá framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs og nú forstjóri Skeljar, Sigurður Hannesson stjórnarformaður Kviku og framkvæmdastjóri SI, Magnús Bjarnason þá framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar, nú eigandi MAR ráðgjafar, Magnús Ingi Einarsson þá framkvæmdastjóri bankasviðs, nú fjármálstjóri Skeljar, Sigurður Atli Jónsson, þá fyrrverandi bankastjóri Kviku, nú forstjóri Arctic Green Energy, Bjarni Eyvinds Þrastarson, enn framkvæmdastjóri fjárfestingabanka Kviku. Með dómi Landsréttar var endurákvörðun Ríkisskattstjóra á skattstofnum stjórnendanna staðfest, með þeim afleiðingum að þeir greiddu flestir 32 milljónir króna til viðbótar í skatt en Sigurður Atli 42 milljónir króna. „Hornsteinn“ í íslenskum skattarétti Í ákvörðun Hæstaréttar um áfrýjunarleyfisbeiðni Ásgeirs Helga, sem birt var í dag, segir að hann hafi óskað eftir áfrýjunarleyfi og byggt á því að úrslit málsins hefðu verulegt almennt gildi. „Kjarni málsins snúi að hornsteini í íslenskum skattarétti, það er hvernig launatekjur eru afmarkaðar gagnvart fjármagnstekjum. Ástæða sé til að Hæstiréttur taki málið til skoðunar og kveði á um framangreint með fordæmisgefandi hætti. Málið hafi auk þess sérstaka þýðingu fyrir skattlagningu fjármálagerninga sem varða réttarsamband milli vinnuveitanda og starfsmanns sem og túlkun launatekjuhugtaksins og aðferðir við skýringar á íþyngjandi skattaákvæðum,“ segir í ákvörðuninni. Niðurstaða réttarins sé sú að að virtum gögnum málsins verði ekki litið svo á að úrslit þess hafi verulegt almennt gildi í skilningi laga um meðferð einkamála. Þá verði ekki séð að dómur Landsréttar sé bersýnilega rangur. Beiðni um áfrýjunarleyfi sé því hafnað.
Kvika banki Skattar, tollar og gjöld Dómsmál Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira