Almannavarnir fyrir alla Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar 12. maí 2026 07:50 Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til nýrra laga um almannavarnir. Þar er margt til bóta. Frumvarpið leggur aukna áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir, áhættumat, áfallaþol, ómissandi innviði, æfingar og endurreisn. Það eru mikilvæg skref. En frumvarpið svarar ekki stærstu skipulagslegu spurningunni: Er almannavörnum best fyrir komið innan embættis ríkislögreglustjóra eða er tímabært að færa þær í sjálfstæða borgaralega stofnun sem þjónar öllu samfélaginu og öllum viðbragðsaðilum á jafnræðisgrundvelli? Við Íslendingar höfum á undanförnum árum gengið í gegnum heimsfaraldur, jarðhræringar, eldgos, rýmingar, óveður, skriður og fjölbreyttar áskoranir sem hafa reynt á samfélagið allt.Við erum reynslunni ríkari á eftir en við höfum líka séð að almannavarnir eru ekki aðeins viðbragð á hættustundu. Þær eru undirbúningur, forvarnir, traust upplýsingagjöf, samhæfing, áfallaþol og endurreisn. „Við erum öll Almannavarnir“ er okkur í fersku minni og í raun sameinaði þjóðina í heimsfaraldri vegna þess að við fundum að verkefnið var sameiginlegt. Það snerist ekki um eina stofnun eða einn viðbragðsaðila, heldur sameiginlega ábyrgð okkar allra. Slysavarnafélagið Landsbjörg, sem er einn af burðarásum íslenska viðbragðskerfisins, telur að nú sé tímabært að stíga næsta skref. Það er mat félagsins að almannavarnir eigi að vera sjálfstæð stofnun undir forsætisráðherra, með skýrt landsdekkandi hlutverk, sterka faglega stöðu og traust allra þeirra sem þurfa að vinna saman þegar vá steðjar að. Slík stofnun ætti að hafa umsjón með landsáhættumati, sameiginlegri stöðumynd, vörslu og samræmingu viðbragðsáætlana, fræðslu, æfingum, upplýsingagjöf til almennings, samhæfingu á hættustundu og að lærdómur sé dreginn eftir áföll. Almannavarnir eiga að vera sameiginlegur vettvangur lögreglu, björgunarsveita, slökkviliða, heilbrigðisþjónustu, sveitarfélaga, Rauða krossins, Landhelgisgæslu, Neyðarlínu, CERT-IS, rekstraraðila innviða og annarra þeirra sem bera ábyrgð á öryggi samfélagsins. Þetta er ekki krafa um að veikja hlutverk lögreglu. Þvert á móti. Lögregla á áfram að fara með lögbundnar valdheimildir, öryggisgæslu, rýmingarframkvæmd og önnur verkefni sem henni eru falin að lögum. En almannavarnir eru orðnar stærra og víðtækara verkefni en svo að þær eigi að vera vistaðar hjá einum viðbragðsaðila. Nútímaógnir virða ekki stofnana- né svæðamörk. Náttúruvá getur haft áhrif á orku, fjarskipti, samgöngur, heilbrigðisþjónustu, húsnæði, skóla, atvinnulíf og velferðarþjónustu á sama tíma. Netógn getur orðið að samfélagsvá á örfáum klukkustundum. Langvarandi rýmingar kalla ekki aðeins á fyrstu viðbrögð, heldur einnig húsnæðislausnir, félagslega þjónustu, fjárhagslega úrlausn, upplýsingagjöf og endurreisn. Við slíkar aðstæður þarf kerfið ekki fleiri síló. Það þarf eina sameiginlega stöðumynd, skýra ábyrgð, samhæfða upplýsingagjöf og traust á milli allra aðila. Frumvarpið reynir að styrkja núverandi kerfi, og það ber að viðurkenna. En það festir jafnframt að verulegu leyti í sessi þá skipan að ríkislögreglustjóri fari með miðlæga ábyrgð á almannavörnum, samhæfingarstöð, áætlanagerð, eftirliti, upplýsingakerfum og rýni. Þar skapast hætta á of mikilli samþjöppun hlutverka hjá einum aðila sem er jafnframt sjálfur lykilviðbragðsaðili. Sjálfstæð almannavarnastofnun myndi leysa þetta betur. Hún myndi ekki taka verkefni frá viðbragðsaðilum, heldur tryggja að þeir vinni saman á skýrari, faglegri og jafnari grunni. Hún myndi styrkja traust almennings, einfalda boðleiðir, samræma áætlanir og tryggja að reynsla af hverju áfalli skili sér í kerfi betur undirbúið fyrir það næsta. Almannavarnir eru of mikilvægar til að við látum hjá líða að skoða grundvallarskipulagið sjálft. Við eigum ekki aðeins að laga núverandi kerfi. Við eigum að spyrja hvaða kerfi þjóðin þarf til næstu áratuga. Slysavarnafélagið Landsbjörg telur að svarið sé skýrt: sjálfstæðar, faglegar og sameinandi almannavarnir fyrir alla. Þannig verða almannavarnir ekki verkefni eins embættis, heldur sameiginlegt verkefni samfélagsins alls. Þannig verða Almannavarnir fyrir okkur öll — og við öll Almannavarnir. Höfundur er formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björgunarsveitir Almannavarnir Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar