Hvenær eiga stjórnvöld að standa með eigin atvinnulífi? Erna Bjarnadóttir skrifar 12. maí 2026 10:31 Undanfarið hef ég fylgst úr fjarlægð með umræðunni um Vélfag á Akureyri og þær afleiðingar sem refsiaðgerðir og tengsl við rússneska hagsmuni höfðu fyrir fyrirtækið. Ég hef ekki forsendur til að leggja mat á alla þætti málsins. Það sem hefur hins vegar vakið athygli mína er hversu lítill áhugi virtist vera af hálfu íslenskra stjórnvalda á því að standa vörð um fyrirtækið, störfin og þá atvinnustarfsemi sem um var að ræða. Þetta rifjaðist upp fyrir mér þegar ég las frétt í Irish Times 9. maí 2026 um Aughinish Alumina-verksmiðjuna á Írlandi, sem er í eigu rússneska málmrisans Rusal og framleiðir súrál sem fer meðal annars til Rússlands. Þar kemur fram að írsk stjórnvöld hafi beitt sér á alþjóðavettvangi til að tryggja að verksmiðjan yrði undanþegin refsiaðgerðum gegn Rússlandi og vísað til þess að vernda þyrfti störf og atvinnulíf á svæðinu. Í fréttinni er jafnframt bent á að verksmiðjan veiti um eitt þúsund manns beina atvinnu og annað þúsund starfi hjá tengdum fyrirtækjum. Fréttin úr Irish Times verður ekki síður áhugaverð í ljósi þess að sífellt meiri áhersla hefur verið lögð á samræmingu utanríkis- og öryggisstefnu ESB-ríkja. Þrátt fyrir það virðast írsk stjórnvöld ekki hika við að verja eigin atvinnuhagsmuni þegar þau telja mikið undir. Hvort menn eru sammála þeirri afstöðu eða ekki er í sjálfu sér aukaatriði. Hitt er áhugaverðara að írsk stjórnvöld virðast líta svo á að það sé eðlilegur hluti af hlutverki þeirra að gæta hagsmuna eigin atvinnulífs þegar utanaðkomandi áföll dynja yfir. Á Íslandi virðist stundum ríkja önnur hugsun. Þegar fyrirtæki lenda í pólitískum eða alþjóðlegum stormi verður umræðan fljótt þannig að stjórnvöld eigi helst ekki að skipta sér af neinu. Fjármálakerfið herðir skilyrði, rekstrarforsendur veikjast og störf tapast — án þess að skýrt sé hver eigi að bera ábyrgð á því að verja þá samfélags- og atvinnuhagsmuni sem undir eru. Stundum virðist jafnvel litið svo á að það sé einfaldlega hlutverk stjórnvalda að laga sig að utanaðkomandi pólitískum kröfum, fremur en að spyrja hvernig best verði gætt íslenskra hagsmuna við þær aðstæður. Auðvitað eiga stjórnvöld ekki að bjarga hverju fyrirtæki undir öllum kringumstæðum. En það hlýtur að vera eðlilegt að spyrja hvort íslensk stjórnvöld hafi yfirhöfuð reynt að gæta hagsmuna fyrirtækisins, starfsmannanna og samfélagsins sem varð fyrir áhrifunum. Í litlu landi skipta slík viðhorf máli — ekki síst þegar pólitískar ákvarðanir erlendis fara að hafa bein áhrif á íslenskt atvinnulíf. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar