Golfklúbbum ber að hleypa öllum inn Jakob Bjarnar skrifar 12. maí 2026 10:03 Í GR eru nú þegar 3,400 félagsmenn og þykir mörgum nóg um. Þar er á annað þúsund manns á biðlista. Samkvæmt bréfi sem ÍSÍ hefur sent forráðamönnum golfklúbba er skal öllum vera frjálst að ganga í þá. vísir/vilhelm Miklum sögum fer af löngum biðlistum hjá stærstu golfklúbbum landsins. Nú hefur hins vegar Helga Þórðardóttir lögfræðingur Stjórnsýslusviðs ÍSÍ sent bréf til forsvarsmanna golfklúbba þar sem fram kemur að þeim beri beinlínis að hleypa öllum inn. Forsvarsmenn golfklúbba klóra sér í kollinum. „
Samkvæmt e. lið gr. 5.2 í lögum ÍSÍ skal félagsaðild ávallt vera öllum frjáls sem gangast undir lög og reglur viðkomandi félags. Ekki er heimilt að gera að gera aðrar takmarkanir á þátttöku í félagsstarfi en þær sem ytri aðstæður, s.s. þjálfunaraðstæður leyfa. Lög og reglur einstakra félaga þurfa að vera í samræmi við þetta.“ Aukinheldur: „Golfklúbbum er því eins og öðrum íþróttafélögum óheimilt að synja einstaklingi um aðild að félagi á þeirri forsendu einni að ekki sé rými til staðar fyrir fleiri til að nýta aðstöðu félagsins. Aðild að félagi og nýting aðstöðu eru þannig tvö aðskilin atriði sem ber að meðhöndla sem slík.“ Mega samt setja reglur um nýtingu aðstöðu sinnar Þetta þýðir þá væntanlega að golfklúbbum landsins ber að hleypa öllum umsækjendum inn en hvernig er það gerlegt? Ekki síst þegar litið er til næstu klásúlu í bréfi Helgu: „Hins vegar er ekkert sem kemur í veg fyrir að félög setji sér reglur um nýtingu aðstöðu sinnar, þar á meðal með því að halda úti biðlista vegna aðgangs að vallarsvæði eða annarri aðstöðu. Slík skipan getur verið málefnaleg og nauðsynleg í ljósi takmarkaðrar getu til að taka á móti fleiri iðkendum á hverjum tíma.“ Ólafur Þór Ágústsson er framkvæmdastjóri golfklúbbsins Keilis sem er staðsettur á Hvaleyrinni í Hafnarfirði.vísir/vilhelm Hverju félagi er þannig í sjálfsvald sett hvernig fyrirkomulag biðlista er háttað, þar með talið hvort skráning á biðlista sé bundin við félagsaðild eða hvort listinn sé opinn öllum áhugasömum, með þeim hætti að einstaklingar geti gengið í félagið þegar röðin kemur að þeim. „Ákvæði um biðlista þurfa ekki að vera í lögum félags heldur nægir að stjórn hafi heimild til þess að setja slíkra reglur,“ segir í bréfinu. Sá sem sækir um aðild að golfklúbbi gerir það fyrst og fremst til að fá aðgengi að golfvöllum félagsins. Vísir hefur sett sig í samband við nokkra forsvarsmenn golfklúbba og þeir telja sig þurfa að glöggva sig betur á efni bréfsins áður en þeir tjá sig opinberlega. Þegar slegist um rástímana Fyrir liggur að vegna sprengingar í golfáhuga, allir og amma þeirra vilja vera í golfi, verður slegist um rástíma í sumar og eru menn þegar orðnir gráir fyrir járnum. Allir golfvellir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins eru þegar stappfullir. Golfklúbbar hafa nú þegar sett takmarkanir, hver með sinni útfærslu og mega ekki meðlimir nú ekki vera með fleiri en fjóra tíma skráða. Það er einhvers konar kvótakerfi. Gísli Guðni Hall er formaður Golfklúbbs Reykjavíkur en þar eru félagar nú þegar 3.400 talsins og þykir mörgum nóg um.vísir/vilhelm Sé litið til stærsta golfklúbbsins, sem er Golfklúbbur Reykjavíkur, þá eru þar nú þegar 3.400 félagar og þykir flestum nóg um. Þar eru nú biðlistar sem eru vel á annað þúsund. Fimm þúsund manns í einum golfklúbbi er ærið, en það þýðir vitaskuld aukatekjur, ef horft er á málin frá því sjónarhorni. En hvernig klúbbarnir koma því svo fyrir að allir fái að spila, þá gæti það reynst höfuðverkur. Andri Stefánsson er framkvæmdastjóri ÍSÍ. Ekki tókst að ná tali af honum við vinnslu fréttarinnar.
Golf ÍSÍ Lögmennska Golfvellir Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira