Af hverju er unglingum úthýst úr Garðabæ? Unnur Ýr Jónsdóttir skrifar 12. maí 2026 14:12 Mikið hefur verið fjallað um leikskólamál í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga en í Garðabæ búa ekki bara leikskólabörn. Í bænum búa líka unglingar, unglingar sem eiga ekki lengur greiða leið inn í framhaldsskólann í bænum, Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Þegar skólinn var fluttur úr Lyngásnum og nýtt húsnæði byggt var hluti framkvæmda fjármagnaður með skattfé Garðbæinga. Framan af nutu unglingar bæjarins eðlilegs forgangs að skólanum; hann var jú byggður fyrir þau og í þeirra nærumhverfi. Á heimasíðu skólans er vitnað í stofnsamning skólans á milli menntamálaráðuneytisins og bæjarstjórnar Garðabæjar þar sem segir skýrt: „Í Garðabæ skal starfa skóli fyrir nemendur á framhaldsskólastigi er sjái um allt nám þar að loknum grunnskóla. Skólinn skal taka við framhaldsnámi sem verið hefur við Garðaskóla.“ Þrátt fyrir þetta breytti Fjölbrautaskólinn í Garðabæ um stefnu fyrir um átta árum. Unglingar úr Garðabæ sem ekki luku grunnskóla með hæstu einkunn fengu skyndilega ekki lengur aðgang að skólanum. Þeir voru sendir annað og út úr bænum, til að stunda nám sem ætti að vera aðgengilegt heima fyrir. Til samanburðar komast unglingar sem búa í Breiðholtinu nokkuð greiðlega inn í Fjölbrautaskólann í Breiðholti og í Hafnarfirði komast flestir Hafnfirðingar inn í Flensborg. Svipað gildirvítt og breytt um landið. Unglingum er ekki úthýst úr sínum heimabæ þegar framhaldsskóli er til staðar í nærumhverfinu. Af hverju er staðan önnur í Garðabæ? Er verið að mismuna unglingunum okkar? Hvers vegna hafa bæjarfulltrúar ekki beitt sér af fullum þunga fyrir því að bæjarbúar fái forgang inn í framhaldsskólann í bænum? Reglugerð um innritun nemenda í framhaldsskóla nr. 1150/2008 er skýr. Þar segir í 3. mgr. 2. gr.: „Framhaldsskóla er heimilt að veita nemendum sem eiga lögheimili í nágrenni skólans forgang að skólavist á öðrum námsbrautum en þeim er fela í sér sérhæft nám.“ Það er því bæði heimilt og eðlilegt að Garðbæingar krefjist þess að unglingar í bænum fái forgang að Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, skólanum sem byggður var fyrir þau og að hluta til með fjármunum bæjarbúa. Það er hlutverk bæjarfulltrúa að gæta hagsmuna allra íbúa sveitarfélagsins, ekki síst ungs fólks sem er að hefja sína menntavegferð, og krefjast úrbóta þegar ungum íbúum er úthýst úr bænum. Miðflokkurinn í Garðabæ setur þetta mál í forgang í komandi sveitarstjórnarkosningum. Við munum beita þrýstingi og krefjast þess að unglingar í Garðabæ fái aftur greiðan aðgang að framhaldsskóla bæjarins og geti stundað sitt nám í sínum heimabæ eins og upphaflega var ætlunin. Tækifærið er núna, X-M á laugardaginn. Höfundur skipar 5. sæti Miðflokksins í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Garðabær Miðflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Mikið hefur verið fjallað um leikskólamál í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga en í Garðabæ búa ekki bara leikskólabörn. Í bænum búa líka unglingar, unglingar sem eiga ekki lengur greiða leið inn í framhaldsskólann í bænum, Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Þegar skólinn var fluttur úr Lyngásnum og nýtt húsnæði byggt var hluti framkvæmda fjármagnaður með skattfé Garðbæinga. Framan af nutu unglingar bæjarins eðlilegs forgangs að skólanum; hann var jú byggður fyrir þau og í þeirra nærumhverfi. Á heimasíðu skólans er vitnað í stofnsamning skólans á milli menntamálaráðuneytisins og bæjarstjórnar Garðabæjar þar sem segir skýrt: „Í Garðabæ skal starfa skóli fyrir nemendur á framhaldsskólastigi er sjái um allt nám þar að loknum grunnskóla. Skólinn skal taka við framhaldsnámi sem verið hefur við Garðaskóla.“ Þrátt fyrir þetta breytti Fjölbrautaskólinn í Garðabæ um stefnu fyrir um átta árum. Unglingar úr Garðabæ sem ekki luku grunnskóla með hæstu einkunn fengu skyndilega ekki lengur aðgang að skólanum. Þeir voru sendir annað og út úr bænum, til að stunda nám sem ætti að vera aðgengilegt heima fyrir. Til samanburðar komast unglingar sem búa í Breiðholtinu nokkuð greiðlega inn í Fjölbrautaskólann í Breiðholti og í Hafnarfirði komast flestir Hafnfirðingar inn í Flensborg. Svipað gildirvítt og breytt um landið. Unglingum er ekki úthýst úr sínum heimabæ þegar framhaldsskóli er til staðar í nærumhverfinu. Af hverju er staðan önnur í Garðabæ? Er verið að mismuna unglingunum okkar? Hvers vegna hafa bæjarfulltrúar ekki beitt sér af fullum þunga fyrir því að bæjarbúar fái forgang inn í framhaldsskólann í bænum? Reglugerð um innritun nemenda í framhaldsskóla nr. 1150/2008 er skýr. Þar segir í 3. mgr. 2. gr.: „Framhaldsskóla er heimilt að veita nemendum sem eiga lögheimili í nágrenni skólans forgang að skólavist á öðrum námsbrautum en þeim er fela í sér sérhæft nám.“ Það er því bæði heimilt og eðlilegt að Garðbæingar krefjist þess að unglingar í bænum fái forgang að Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, skólanum sem byggður var fyrir þau og að hluta til með fjármunum bæjarbúa. Það er hlutverk bæjarfulltrúa að gæta hagsmuna allra íbúa sveitarfélagsins, ekki síst ungs fólks sem er að hefja sína menntavegferð, og krefjast úrbóta þegar ungum íbúum er úthýst úr bænum. Miðflokkurinn í Garðabæ setur þetta mál í forgang í komandi sveitarstjórnarkosningum. Við munum beita þrýstingi og krefjast þess að unglingar í Garðabæ fái aftur greiðan aðgang að framhaldsskóla bæjarins og geti stundað sitt nám í sínum heimabæ eins og upphaflega var ætlunin. Tækifærið er núna, X-M á laugardaginn. Höfundur skipar 5. sæti Miðflokksins í Garðabæ.
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
„Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot Skoðun