Garðabær

Garðabær

Mannfjöldi: 20.116 (2025). Flatarmál: 46 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Garða­bær má ekki staðna

Í Garðabæ býr samfélag sem vex hratt. Á síðustu árum hefur íbúum bæjarins fjölgað um tæplega 2.400 manns og ljóst er að á næstu árum mun reyna enn meira á getu sveitarfélagsins til að veita góða þjónustu í takt við þessa þróun.

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sem tveggja barna móðir

Sem tveggja barna móðir í Garðabær er öryggi eitt af því sem skiptir mig mestu máli. Ég vil að börnin mín séu örugg í skólanum, í íþróttum og tómstundum og þegar þau ferðast hér um bæinn. Það á við hvort sem er í frístundabíl, gangandi, hjólandi eða á milli hverfa til vina sinna og vinkvenna.

Skoðun
Fréttamynd

Af hverju skiptir máli að kjósa í Garða­bæ?

Sveitarstjórnarkosningar eru áhrifaríkasta leið íbúa til að móta eigið nærumhverfi. Ákvarðanir sem teknar eru í bæjarstjórn snerta okkur daglega, hvort sem um er að ræða skólamál, þjónustu við eldri borgara og fatlað fólk, samgöngur, skipulag eða menningu. Þess vegna skiptir kjörsókn öllu máli.

Skoðun
Fréttamynd

Sköpum sam­fé­lag í Garða­bæ þar sem við erum öll vel­komin

Hver þekkir ekki tilfinninguna þegar vor er í lofti og við sjáum fólk flykkjast út; til að leika sér, ganga, hlaupa, sparka bolta, dytta að garðinum eða bílnum. Það er viss vellíðan sem fylgir því að sjá fólk og finnast þú tilheyra samfélagi. Það er einfalt að ýta undir þessa tilfinningu í Garðabæ með því að skapa markvisst staði, rými og aðstæður sem kalla á okkur að fara út að njóta, sýna okkur og sjá aðra.

Skoðun
Fréttamynd

Skólinn á að rúma okkur öll

Við í Garðabæ getum verið stolt af fagfólkinu okkar sem starfar á gólfinu í skólum bæjarins. Við sem störfum í skólunum, foreldrar í samfélaginu og starfsfólkið á skólaskrifstofunni reynum öll að mæta börnunum okkar eins og vel og við getum.

Skoðun
Fréttamynd

Allt frítt í Garða­bæ, eða á­byrgur rekstur ?

Í aðdraganda kosninga hafa Garðbæingar heyrt mörg loforð um aukin fríðindi, lækkun gjalda og ný kostnaðarsöm verkefni. Talað er um, fleiri gjaldfrjálsar stundir í leikskólum, hækkun Hvatapeninga og ýmsar aðrar aðgerðir sem allar kosta verulega fjármuni.

Skoðun
Fréttamynd

Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum

Átak Reiðhjólabænda, Gul hjól, hófst í gær og stendur út mánuðinn. Átakið snýr að vitundarvakningu bílstjóra um öryggi gangandi og hjólandi í umferðinni. Hjólum er stillt upp þar sem óhöpp eða slys hafa átt sér stað.

Innlent
Fréttamynd

Um­ferðar­mál í Urriðaholti – Flótti frá vandanum

Með fjölgun íbúa í Urriðaholti og uppbyggingu þjónustu í Kauptúni hefur álag á inn- og útkeyrsluleiðina í hverfið aukist gríðarlega og annar enganveginn umferðinni. Unnið er að opnun út á Flóttamannaveg sem mun vonandi eitthvað létta á álaginu á núverandi innkeyrslu inní hverfið. Ég óttast því miður að það verði óverulegt og þessi tenging verði fyrst og fremst flóttaleið og gagnsemin felist í að hafa fleiri en eina leið í hverfinu ef meginleiðin lokast.

Skoðun
Fréttamynd

Álftnesingar mæta af­gangi

Það er eitthvað undarlegt við framkvæmdir á Álftanesi. Stundum virkar eins og verið sé að leika í stað þess að framkvæma. Verktakar mæta með tæki, grafa djúpa holu og skilja svo svæðið eftir mannlaust mánuðum saman á meðan þeir halda áfram í verkefni annars staðar í bænum með tilheyrandi raski fyrir íbúa og neikvæðum áhrifum á skólastarf.

Skoðun
Fréttamynd

Allir eru jafnir en enginn fær að blómstra

Einu sinni var stór garður þar sem rækta átti sterk og heilbrigð tré. Í garðinum voru margar tegundir: lítil birkitré, hraðvaxandi víðir og hægvaxin en sterk eik. Garðyrkjumaðurinn hafði eitt markmið: „Öll þessi tré eiga að vaxa jafnt og vera hamingjusöm“ sagði hann.

Skoðun
Fréttamynd

Glæsi­legar í Gamla Bíói

Nítján stúlkur kepptust í vikunni um titilinn Ungfrú Ísland í Gamla bíói. Þær gengu meðal annars um á sundfötunum og svöruðu spurningum um málefni líðandi stundar sem og um málefni sem brenna á þeim. Keppnin einkenndist af glamúr, glimmeri og glæsilegheitum.

Lífið
Fréttamynd

Við þurfum að vera til­búin að takast á við eldgosavá

Líkur á hraunflæði í byggð eru metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Tvö bæjarfélög, Grindavík og Hveragerði, eru talin í mestri hættu sem og hluti Hafnarfjarðar.

Innlent
Fréttamynd

Grinda­vík og Hvera­gerði talin í mestri hættu vegna eld­gosa

Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi.

Innlent
Fréttamynd

Kosningapallborð frétta­stofu: Mun Sjálf­stæðis­flokkurinn halda velli í Garða­bæ?

Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og eins og stendur eru þrjár vikur þangað til landsmenn ganga til kosninga. Við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina og því munu oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Garðabæ koma saman í kosningapallborði fréttastofu til að ræða þau helstu málefni sem eru undir í kosningunum.

Innlent
Fréttamynd

Ari Edwald selur í Garða­bænum

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hefur sett íbúð sína að Þorraholti í Garðabæ á sölu. Ari festi kaup á íbúðinni síðasta sumar en ákvað svo að bjóða sig fram í sveitarstjórnarkosningunum Reykjavík og er því væntanlega í leit að fasteign í höfuðstaðnum. Hann óskar eftir tilboði í íbúðina.

Lífið
Fréttamynd

Sögu­frægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru

Íbúar í Garðabæ hafa margir hverjir lýst yfir áhyggjum af niðurníðslu húsa á Vífilsstöðum, sem að margra mati voru virðuleg hér áður fyrr. Börn og ungmenni hafa gert það að vana sínum að brjótast inn í húsin en Garðabær og talsmenn Landspítalans segjast kappkosta að tryggja öryggi á svæðinu. Áform eru um að gera húsin upp í sinni upprunalegu mynd í samráði við Minjastofnun.

Innlent