Fötlunargleraugun upp! Ester Bíbí Ásgeirsdóttir og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir skrifa 12. maí 2026 15:00 Það var mikið gleðiefni þegar Ísland lögfesti loksins samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í lok síðasta árs eftir áratuga baráttu fatlaðs fólks, aðstandenda og hagsmunasamtaka þeirra. Nú sitjum við eftir með spurninguna „Og hvað svo?“ því mannréttindasáttmálar eru einskis virði ef samfélagið ætlar ekki að virða þá, vinna eftir þeim og læra af mistökunum sem gerð hafa verið.Alltof oft eru réttindi og þátttaka fatlaðs fólks bundin við velferðarþjónustu og við hugsum ekki um fatlað fólk sem þátttakendur í samfélaginu; á vinnumarkaði, sem listafólk, sem foreldra, sem neytendur og dýrmætan þátt í fjölbreytileika samfélagsins. En ef við hugsum ekki um fatlað fólk byggjum við ósjálfrátt hindranir sem koma í veg fyrir að fólk geti verið með. Þannig verður til hingrás af aðskilnaði og ósýnileika sem festir fordóma og útskúfun í sessi. Þess vegna verðum við að keyra upp úr þeim hjólförum að hugsa bara um fatlað fólk þegar við erum að hugsa um velferð og þjónustu fyrir fatlað fólk og setja upp fötlunargleraugun í hverju einasta máli. Hvernig við byggjum upp menningar- og íþróttastarf, hvernig við skipuleggjum útivistarsvæði, hvernig við hönnum strætóbiðskýli, hvernig þróum vefi og öpp og svo mætti áfram telja.Vinstrið í Hafnarfirði heitir því að vinna að aðgerðaráætlun um réttindi fatlaðs fólks með samning Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi og að verkferlar verði mótaðir sem tryggja að fötlunargleraugun verði sett upp þegar ákvarðanir eru teknar. Hver einasta strætóstoppistöð, hver einsta ákvörðun í stafrænni þróun, hver einasti leikvöllur, hver einasta hjáleið við framkvæmdir, hvert einasta útivistarsvæði, verður skoðuð með fötlunargleraugun á nefinu. Ef það hindrar samfélagsþátttöku fatlaðs fólks þarf að fara aftur að teikniborðinu! Höfundar eru Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, oddviti Vinstrisins í Hafnarfirði og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir sem skipar 10. sæti listans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinstrið Hafnarfjörður Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Það var mikið gleðiefni þegar Ísland lögfesti loksins samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í lok síðasta árs eftir áratuga baráttu fatlaðs fólks, aðstandenda og hagsmunasamtaka þeirra. Nú sitjum við eftir með spurninguna „Og hvað svo?“ því mannréttindasáttmálar eru einskis virði ef samfélagið ætlar ekki að virða þá, vinna eftir þeim og læra af mistökunum sem gerð hafa verið.Alltof oft eru réttindi og þátttaka fatlaðs fólks bundin við velferðarþjónustu og við hugsum ekki um fatlað fólk sem þátttakendur í samfélaginu; á vinnumarkaði, sem listafólk, sem foreldra, sem neytendur og dýrmætan þátt í fjölbreytileika samfélagsins. En ef við hugsum ekki um fatlað fólk byggjum við ósjálfrátt hindranir sem koma í veg fyrir að fólk geti verið með. Þannig verður til hingrás af aðskilnaði og ósýnileika sem festir fordóma og útskúfun í sessi. Þess vegna verðum við að keyra upp úr þeim hjólförum að hugsa bara um fatlað fólk þegar við erum að hugsa um velferð og þjónustu fyrir fatlað fólk og setja upp fötlunargleraugun í hverju einasta máli. Hvernig við byggjum upp menningar- og íþróttastarf, hvernig við skipuleggjum útivistarsvæði, hvernig við hönnum strætóbiðskýli, hvernig þróum vefi og öpp og svo mætti áfram telja.Vinstrið í Hafnarfirði heitir því að vinna að aðgerðaráætlun um réttindi fatlaðs fólks með samning Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi og að verkferlar verði mótaðir sem tryggja að fötlunargleraugun verði sett upp þegar ákvarðanir eru teknar. Hver einasta strætóstoppistöð, hver einsta ákvörðun í stafrænni þróun, hver einasti leikvöllur, hver einasta hjáleið við framkvæmdir, hvert einasta útivistarsvæði, verður skoðuð með fötlunargleraugun á nefinu. Ef það hindrar samfélagsþátttöku fatlaðs fólks þarf að fara aftur að teikniborðinu! Höfundar eru Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, oddviti Vinstrisins í Hafnarfirði og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir sem skipar 10. sæti listans.
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun