Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 13. maí 2026 11:17 Að stíga á bak er dásamleg tilfinning. Hestar eru fallegar skepnur og nálægðin við þá fyllir mann af einhvers konar náttúrukrafti. Við eigum að vera mjög stolt af því að Reykjavík sé ein fárra höfuðborga í heiminum þar sem hestamennska blómstrar í návígi við byggðina. Þessi einstaka menningararfleifð og íþróttastarfsemi stendur hins vegar frammi fyrir áskorunum sem kalla á skýra framtíðarsýn af hálfu borgaryfirvalda. Framtíðarstefna fyrir fyrirsjáanleika Á síðasta kjörtímabili lögðum við í Framsókn fram tillögu að mótuð yrði framtíðarstefna um hestamennsku til ársins 2040. Þetta er mikið hagsmunamál og veitir fyrirsjáanleika sem allir þurfa til að horfa fram á reiðveginn. Tillögunni var vísað af núverandi meirihluta í menningar- og íþróttamálaráð í hinn eilífa svefn ráða og nefnda, en við í Framsókn munum auðvitað fylgja þessu máli eftir fáum við tækifæri til þess í nýjum meirihluta. Hér eftir er stiklað á stóru á framtíðarsýn okkar í þessum málum. Tryggir lóðaleigusamningar Ein stærsta óvissan sem hesthúsaeigendur á Fákssvæðinu standa frammi fyrir er skortur á langtímaöryggi varðandi lóðir. Borgin verður að tryggja gagnsæja og réttláta lóðaleigusamninga sem veita eigendum festu til að fjárfesta í húsakosti og aðstöðu. Án langtímasamninga ríkir stöðnun; festan er forsenda þess að fólk þori að byggja upp metnaðarfulla aðstöðu til framtíðar. Þetta er snúið mál að leysa en við verðum að ljúka verkinu. Æskulýðsstarf og forvarnir Kostnaður við uppihald hrossa og námskeiðshald hefur farið hækkandi en þar sem hestamennskan er öflug forvörn og frábært tómstundastarf fyrir börn og unglinga getur borgin gert betur með því að tryggja að frístundastyrkir nýtist hestamennsku til fulls og styðja við verkefni sem gera greinina aðgengilegri. Þannig getur borgin opnað dyrnar fyrir fleiri börn og unglinga, óháð efnahag foreldra. Styðjum við þessa öflugu forvörn sem kennir ábyrgð og útivist með því að borgin nýti frístundakerfið betur til að styðja við uppeldisgildi hestamennskunnar. Styðjum líka við félagshesthús þar sem margir eru um einn hest til að opna á aðgengi að hestamennsku fyrir fleiri börn og ungmenni. Öruggir og aðskildir innviðir Með aukinni þéttingu byggðar og fjölgun útivistarfólks eykst hættan á árekstrum. Nauðsynlegt er að aðskilja reiðvegi skýrar frá hjóla- og göngustígum með betri merkingu og skipulagi. Öruggar þveranir undir stofnbrautir og gott viðhald á undirlagi reiðvega eru forsendur þess að knapar og hestar geti ferðast af öryggi um borgarlandið. Viðhald reiðvega og gæði efnis Aðgengi að Hólmsheiði, Heiðmörk, Rauðhólum og öðrum útivistarperlum borgarinnar er lífæð hestamennskunnar. Skipulagsyfirvöld verða að vernda reiðleiðir og tryggja um leið að uppbygging byggðar þrengi ekki svo að reiðleiðum að tengingin við náttúruna rofni. Með góðu skipulagi, gæða undirlagi og framúrskarandi viðhaldi á reiðleiðum getum við með stolti tryggt þessa lífæð hestamennskunnar í Reykjavík. Ekkert tafs, bara tað Í takt við ,,Græna planið" hjá Reykjavíkurborg mætti bæta þjónustu við hesthúsahverfin og nýta hrossatað sem auðlind. Borgin gæti aðstoðað við skilvirkari söfnun á hrossataði til jarðgerðar eða nýtingar í landgræðslu, í stað þess að það sé flokkað sem kostnaðarsamur úrgangur fyrir eigendur hesta. Hestamennskan er ekki bara íþrótt, hún er hluti af sjálfsmynd Reykjavíkur. Með því að tryggja öryggi knapa og rekstraröryggi hesthúsaeigenda getur borgin tryggt að þessi lifandi hefð fái þrifist um ókomna tíð. Nú þarf bara að setjast í hnakkinn og spretta úr spori! Setjum X við B! Höfundur er í 2. sæti á lista Framsóknar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Magnea Gná Jóhannsdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar