Borgarstjóri kom af fjöllum Eiður Þór Árnason skrifar 14. maí 2026 19:21 Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segist hafa fylgst með hjólabrettaköppum á Ingólfstorgi. Vísir/vilhelm Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir fyrirætlanir um að leggja Ingólfstorg undir sölubása og takmarka um leið aðgengi hjólabrettafólks hafa komið sér í opna skjöldu. Hún muni beita sér fyrir því að torgið verði áfram hluti af íslensku hjólabrettasenunni og nýr staður fundinn fyrir markaðinn. „
Mér finnst það óhugsandi satt að segja að breyta þessu rótgróna torgi sem við höfum hannað fyrir hjólabrettafimi án samráðs eða auglýsingar. Þar er fallegt mannlíf og fólk hópast bæði til að gera hjólabrettabrellur og svo fólk eins og ég sem kem og horfi á,“ segir Heiða í færslu á Facebook-síðu sinni. „Ég mun gera mitt til að sjá til þess að torgið verði áfram stór partur í íslensku hjólabretta senunni eins og verið hefur í áratugi.“ Ætli að finna markaðnum annan stað Heiða segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að ákvörðunin hafi ekki verið tekin af stjórnmálafólki og hún hafi óskað eftir öllum upplýsingum um málið. „Ég veit að það er gott starfsfólk sem fer með leyfi fyrir afnot af borgarlandi og sumarborgin er annað teymi.“ Hún geri ráð fyrir að þau hafi ekki áttað sig á mikilvægi Ingólfstorgs fyrir íslensku hjólabrettasenuna. „Við finnum annan stað fyrir götumarkað.“ Nýlega búið að útbúa torgið sérstaklega fyrir hjólabrettafólk Borgin tilkynnti á samfélagsmiðlum í gær að sumarmarkaður myndi opna á Ingólfstorgi og Austurstræti 20. maí og yrði þar fram yfir sumarið. Þá var söluaðilum boðið að sækja um aðgang að sölubásum. Hjólabrettafólk hefur lýst yfir óánægju sinni með þessa breytingu. „Þetta kom bara eins og þruma úr heiðskíru lofti,“ sagði hjólabrettaiðkandinn og læknaneminn Ingi Hrafn Guðbrandsson í samtali við Vísi fyrr í dag. „Þeir bara hentu þessu upp án þess að tala við neinn.“ Ingólfstorg hafi verið miðstöð hjólabrettamenningar í áratugi og borgin nýbúin að setja upp kanta á torginu sem voru hannaðir með hjólabrettabrellur í huga. Fréttin hefur verið uppfærð með frekari upplýsingum frá borgarstjóra.
Reykjavík Hjólabretti Borgarstjórn Tengdar fréttir Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Hjólabrettakappar eru æfir yfir áformum Reykjavíkurborgar um að leggja Ingólfstorg undir sölubása og götumarkað í allt sumar. Torgið hefur verið allra helgasti reitur hjólabrettaiðkenda á Íslandi síðustu ár en fregnirnar koma þeim í galopna skjöldu. 14. maí 2026 13:53 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Sjá meira
Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Hjólabrettakappar eru æfir yfir áformum Reykjavíkurborgar um að leggja Ingólfstorg undir sölubása og götumarkað í allt sumar. Torgið hefur verið allra helgasti reitur hjólabrettaiðkenda á Íslandi síðustu ár en fregnirnar koma þeim í galopna skjöldu. 14. maí 2026 13:53