Sorp víkur fyrir mannlífi Hjördís Ýr Johnson skrifar 14. maí 2026 21:02 Kópavogsdalurinn er einn af þeim stöðum sem gefa Kópavogi sitt sérstaka yfirbragð. Allt árið um kring má sjá fólk á göngu, börn að leik og fjölskyldur að njóta náttúrunnar. Þar fara útivist, hreyfing og samvera vel saman enda skipar dalurinn sérstakan sess í hugum margra bæjarbúa. Fram undan eru jákvæðar breytingar á svæðinu þar sem Sorpa er í dag. Þar verður lögð áhersla á meira mannlíf, þjónustu og betri tengingu við dalinn, samhliða áframhaldandi hreinsun Kópavogslækjarins. Á liðnu kjörtímabili leiddi ég þverpólitískan starfshóp sem vann að heildarsýn fyrir dalinn. Eftir fjölda funda og samtöl við íbúa og hagsmunaaðila um framtíð svæðisins var heildarsýnin samþykkt einróma í bæjarstjórn í febrúar 2024. Hún snýr fyrst og fremst að þremur mikilvægum þáttum: að bæta umhverfi og lífríki Kópavogslækjar, efla útivist og afþreyingu og móta skýra framtíðarsýn fyrir íþróttasvæðið. Kópavogslækurinn er hjarta dalsins. Í gegnum tíðina hefur ástand hans verið áskorun, meðal annars vegna mengunar, og því er mikilvægt að halda áfram markvissri vinnu við að bæta vatnsgæði, umhverfi og lífríki lækjarins. Í heildarsýninni er lögð sérstök áhersla á hreinsun Kópavogslækjar og að skapa þar heilbrigt og lifandi náttúrusvæði til framtíðar. Það er því mjög jákvætt að Kópavogsbær hafi á síðasta ári hlotið ríflega 120 milljóna króna styrk til frekari úrbóta á læknum og nærumhverfi hans og er sú vinna þegar farin af stað. Þá leggur heildarsýnin ríka áherslu á að styrkja dalinn sem svæði fyrir hreyfingu, útiveru og samveru fyrir alla aldurshópa. Þar eru fjölmörg tækifæri til að þróa aðstöðu og umhverfi sem gerir fleiri fjölskyldum og íbúum kleift að njóta dalsins enn betur. Í dag er Fífan ákveðinn miðpunktur svæðisins og þangað koma yfir milljón heimsókna á ári. En dalurinn er svo miklu meira en það, þar mætast göngufólk, íþróttaiðkendur, fjölskyldur og þeir sem einfaldlega vilja njóta útiveru í fallegu umhverfi. Í vinnu starfshópsins var lögð rík áhersla á að vernda opin og græn svæði dalsins og að framtíðarskref í dalnum taki mið af þeirri sérstöðu sem svæðið hefur. Byggjum upp einstakan dal Brottför Sorpu mun marka tímamót fyrir austurhluta Kópavogsdalsins. Þar sem í dag er endurvinnslustöð mun skapast allt annað umhverfi og meira mannlíf sem tengist náttúrunni og dalnum. Svæðið mun þróast hlýlegt og aðlaðandi umhverfi þar sem íbúar og gestir geta komið saman og notið þess sem dalurinn hefur uppá að bjóða. Þar getur verið notalegt kaffihús, lítill veitingastaður eða ísbúð þar sem fjölskyldur, göngufólk og íþróttaiðkendur geta hist og sest niður eftir göngu eða útiveru. Þetta verður mikil og jákvæð breyting fyrir austurhluta dalsins. Þar mun rísa líflegra og aðlaðandi svæði sem tengir betur saman mannlíf, útivist og náttúruna í dalnum. Austurinngangurinn að Kópavogsdal mun taka miklum breytingum og verða mun hlýlegri, grænni og meira lifandi hluti af dalnum en í dag. Í tillögum starfshópsins um íþróttasvæðið er einnig lögð áhersla á áframhaldandi samtal við Breiðablik og aðra hagsmunaaðila um framtíðarskipulag svæðisins. Þar felast mikil tækifæri til að sameina þarfir almennings og íþróttastarfs á metnaðarfullan hátt og tryggja að uppbygging framtíðarinnar falli vel að ásýnd dalsins. Kópavogsdalurinn er sameiginleg eign okkar allra. Sú samstaða sem náðist um heildarsýnina sýnir hvað hægt er að gera þegar unnið er saman af ábyrgð og framtíðarsýn. Nú er mikilvægt að halda áfram á þeirri braut, fylgja hugmyndunum eftir og hlusta áfram á raddir íbúa um hvernig við getum gert þennan einstaka dal enn betri fyrir komandi kynslóðir. Höfundur er bæjarfulltrúi, formaður skipulagsráðs og skipar 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar