Samstarf

Sumar­veisla hjá Toyota í Kaup­túni á laugar­dag

Toyota á Íslandi

Það verður sannkölluð fjölskyldustemmning hjá Toyota í Kauptúni laugardaginn 16. maí.

Þjónustuaðilar Toyota hafa undanfarin ár haldið Þjónustudag í maí og boðið viðskiptavinum bílaþvott en vegna framkvæmda á lóðinni við Kauptún fellur Þjónustudagur Toyota niður hjá þjónustuaðilum að þessu sinni.

Hjá Toyota í Kauptúni verður vorinu þess í stað fagnað innan dyra og nýr sýningarsalur Toyota verður tekinn formlega í notkun. Nýjar innréttingar eru í salnum og aðstaða fyrir viðskiptavini endurnýjuð. Ný lýsing var hönnuð fyrir sýningarsalinn og njóta nýjar Toyotur sín nú betur í Kauptúninu en nokkru sinni fyrr.

Íþróttaálfurinn og Solla Stirða úr Latabæ taka á móti gestum og verða með Latabæjaratriði á sviðinu kl. 13.30. Þá tekur Sandra Barilli við og býður gestum að taka þátt í líflegu karaókí. Veitingar verða í boði fyrir gesti.

Í sýningarsalnum verður jafnframt öll nýjasta línan frá Toyota, þar á meðal nýr RAV4 og nýjustu rafmagnsbílarnir; Urban Cruiser, C-HR+ og bZ4X. Einnig verður bZ4X Touring – stærri útgáfan af módelinu forsýnd við þetta tækifæri.

Það verður vel tekið á móti gestum í Sumarveislu Toyota í Kauptúni, laugardaginn 16. maí kl. 12-16.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×