Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. maí 2026 09:08 Einar Þorsteinsson, fráfarandi borgarstjóri, sprengdi síðasta meirihluta. Hann á ekki öruggt sæti í borgarstjórn en gæti reynst lykilmaður í myndun meirihluta til hægri í borginni. Vísir/Vilhelm Yfir helmingslíkur eru á því að Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsóknarflokkurinn gætu myndað meirihluta í borginni samkvæmt kosningaspá Vísis. Um er að ræða eina raunhæfa möguleikann á þriggja flokka meirihluta eftir að Viðreisn útilokaði samstarf við Miðflokkinn í kappræðum. Lesendur geta reiknað líkur á ólíkum möguleikum hér að neðan.
Sjálfstæðisflokkurinn er nú með 31,4 prósenta fylgi í kosningaspá Vísis, sem Baldur Héðinsson stærðfræðingur gerir, eftir að hún var uppfærð með niðurstöðum úr skoðanakönnunum Maskínu og Gallup sem birtar voru í gærkvöldi. Flokkurinn er með rúmlega ellefu prósentustiga forskot á Samfylkinguna en aðeins rúmur mánuður er frá því að flokkarnir tveir voru svo gott sem jafnir í spánni. Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar vill mynda meirihluta til vinstri. Fimm flokka þyrfti til að ná minnihluta til vinstri og þá þyrfti Viðreisn að vera með.Vísir/Vilhelm Allt er svo í járnum á milli Vinstrisins og Viðreisnar sem mælast með 11,1 prósents fylgi. Miðflokkurinn er skammt undan og mælist með 10,3 prósent. Nú eru áttatíu prósent líkur á því að Framsóknarflokkurinn nái manni í borgarstjórn og 68 prósent í tilfelli Sósíalistaflokksins. Aftur á móti eru aðeins fimmtungslíkur á því að Flokkur fólksins og Píratar nái inn manni. Uppgangur Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðismenn eygja nú raunverulegan möguleika á að ná átta borgarfulltrúum. Flokkurinn byrjaði kjörtímabilið sem er að líða með sex fulltrúa og var spáð sama fjölda í fyrstu útgáfu kosningaspárinnar snemma í apríl. Síðan hafa orðið vendingar. Bjarni Fritzson, áttundi maður á lista Sjálfstæðisflokksins, er nú með 72 prósent líkur á að komast inn í borgarstjórn. Rúmlega þriðjungslíkur eru á því að Sigrún Ásta Einarsdóttir í níunda sæti á lista flokksins komist inn. Bjarni Fritzson rithöfundur og fyrrverandi handboltakappi á góða von á sæti í borgarstjórn. Samfylkingin, sem hefur tapað umtalsverðu fylgi í könnunum á síðustu vikum og mánuðum, virðist vera að rétta aðeins úr kútnum. . Stein Olav Romslo, fimmti maður á lista hennar, er nú með 75 prósent líkur á að ná kjöri en þær voru komnar niður í 66 prósent í síðustu viku. Í apríl stefndi í að Samfylkingin fengi sex menn inn. Bjarnveig Birna Bjarnadóttir í sjötta sætinu á þriðjungslíkur á að ná kjöri samkvæmt spánni. Borgarstjórn Reykjavíkur kosningaspá 16. maí Vending í kappræðum Fram að þessu hefur Viðreisn virst ætla að verða í lykilstöðu um hvort hægri eða vinstri meirihluti verði myndaður eftir kosningar. Viðreisn, Vinstrið og Miðflokkur hafa mælst með álíka fylgi í könnunum og í kosningaspánni. Eini þriggja flokka meirihlutinn sem hefur verið í spilunum samkvæmt spánni hefur verið Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Viðreisnar. Í uppfærðri kosningaspá eftir kannanir gærdagsins má sjá að líkur á þeim meirihluta eru 58 prósent. Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar útilokaði hins vegar meirihlutasamstarf með Miðflokknum í gær. Þá sagðist oddviti Framsóknar vilja forðast að leiða Miðflokkinn til valda en útilokaði þó ekki samstarf. Kosningaspá Vísis reiknar nú 51 prósent líkur á meirihluta Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Viðreisnar. Líkur Viðreisnar á því að ná inn þremur mönnum stóðu í 62 prósentum í síðustu viku og eru nú rétt yfir fimmtíu prósentum. Áttatíu prósent líkur eru á því að Framsókn nái einum manni og langt í næsta mann flokksins. Vinstrinu fatast flugið á milli vikna. Stefán Pálsson, þriðji maður Vinstrisins er með 53 prósent líkur en þær náðu mest áttatíu prósentum í síðustu viku. Miðflokkurinn styrkir aftur á móti stöðu sína. Lárus Blöndal, þriðji maður Miðflokksins, er nú með rúmlega fjörutíu prósent líkur á kjöri en þær voru tólf prósent síðast. Að neðan má reikna út líkur á mögulegum meirihlutum í borginni. Framsókn stendur best þeirra flokka sem ekki mælist með öruggan mann inni en Einar Þorsteinsson mælist með áttatíu prósent líkur sem fyrr segir. Aðeins fimmtungslíkur eru á því að Guðmundur Ingi Þóroddsson oddviti Flokks fólksins og Kristinn Ólafsson Pírati nái inn. Þá eru líkurnar á því að oddvitar Góðann daginn og Okkar borgar nái kjöri innan við eitt prósent. Erfið staða til vinstri Samfylkingin þarf sjö borgarfulltrúa með sér til að mynda tólf manna meirihluta til vinstri miðað við kosningaspána. Aðeins 15 prósent líkur eru á því að Samfylkingin gæti myndað þriggja flokka meirihluta með Vinstrinu og Viðreisn. Sósíalistar gætu bæst í hópinn en þó væru aðeins 37 prósent líkur á að flokkarnir fjórir næðu tólf borgarfulltrúum. Framsókn hefur útilokað samstarf við Samfylkinguna og því má telja afar ólíklegt að flokkurinn taki þátt í meirihlutamyndun til vinstri. Í könnun Maskínu í vikunni kom fram að jafnmargir borgarbúar vilja meirihluta til vinstri og meirihluta til hægri eftir kosningar. Líkurnar á því að Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin gætu myndað tveggja flokka meirihluta eru yfirgnæfandi eða 92 prósent. Sá meirihluti yrði líklega skipaður þrettán borgarfulltrúum. Oddvitar flokkanna, sem búa í sömu götu í vesturbæ Reykjavíkur, hafa þó ekki talað á þeim nótum að líklegt sé að flokkarnir gætu náð saman. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, hefur varað borgarbúa við Samfylkingunni og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, hefur varað við hægri beygju í borginni.
Kosningaspá Vísis Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Skoðanakannanir Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira