Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Ásdís Kristjánsdóttir skrifar 15. maí 2026 22:00 Laugardaginn 16. maí gefst Kópavogsbúum tækifæri til að ákveða í hvaða átt bærinn þeirra mun stefna. Það er dagurinn þegar rödd hvers og eins skiptir máli – þegar við höfum bein áhrif á það hvernig sveitarfélagi við búum í og setjum stefnuna á hvernig umhorfs verður fyrir börn okkar í framtíðinni. Undanfarna daga og vikur hafa frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins gengið hús úr húsi, tekið þátt í hinum ýmsu viðburðum, átt samtöl við kjósendur á fundum, á götum úti og símleiðis. Í þeim samtölum höfum við fundið meðbyr og mikill meirihluti þeirra sem við höfum mætt á förnum vegi lætur í ljósi ánægju með hvernig haldið hefur verið á málum í bænum á þessu kjörtímabili. Þótt við séum stolt af okkar verkum þá hafa hinir jákvæðu straumar komið okkur þægilega á óvart. Ástæðu þess gæti meðal annars verið að finna í því að á undangengnu kjörtímabili hefur forgangsröðunin verið skýr, íbúar á öllum aldri og grunnþjónusta eru sett í fyrsta sæti. Við höfum staðið vörð um góðan rekstur, lækkað skuldir og fasteignaskatta á einstaklinga og fyrirtæki og tryggt að leikskólapláss bíði að fæðingarorlofi loknu. Það munar um minna. Fólk sér uppbygginguna eiga sér stað, börn komast inn á leikskóla, götur eru sópaðar, ruslið er sótt og snjórinn mokaður. Samanburður er hliðhollur Kópavogi Við frambjóðendurnir komumst ekki að því fyrr en talið er upp úr kjörkössunum hver uppskeran verður. Það eru hins vegar ekki aðeins frambjóðendur sem uppskera það sem þeir sá, hið sama gildir líka um kjósendur. Fyrir íbúa Kópavogs er valið skýrt og nægir þeim að bera stöðuna í Kópavogi saman við ástandið hjá nágrönnunum í Reykjavík, hvar fjárhagsstaðan leyfir ekki að lækka álögur, skuldir fara vaxandi, börn fá leikskólapláss við tveggja ára aldur og viðbrögð við fannfergi eru uppfærsla handbóka. Í ljósi þess er allrar athygli vert að fylgjast með virkri þátttöku forsætisráðherra í kosningabaráttunni, undir slagorðum um breytta Samfylkingu og að létta daglegt líf. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt og sannað að honum er treystandi fyrir verkefninu. Við höfum hlustað á raddir bæjarbúa um leið og við vörðum veginn áfram með hagsmuni allra bæjarbúa í forgrunni. Hvert atkvæði greitt Sjálfstæðisflokknum er atkvæði greitt áframhaldandi sókn og uppbyggingu. Við viljum halda áfram á þessari braut og þurfum til þess þinn stuðning í kjörklefanum, Kópavogi og íbúum öllum til heilla. Höfundur er bæjarstjóri Kópavogs og oddviti Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ásdís Kristjánsdóttir Kópavogur Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar