Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Eiður Þór Árnason skrifar 17. maí 2026 00:17 Gunnar Sigurðsson valdi Giovanni 333 sérstaklega fyrir daginn í dag. Aðsend/Sýn Stjórnmála- og stjórnsýslufræðingurinn Gunnar Sigurðsson heldur mikið upp á kosningar og hefur í fjölmörg ár heiðrað látna ömmu sína með því að bera varalit á kjördag. Hann verður áberandi í kosningasjónvarpi Sýnar í nótt og mun rýna í niðurstöður kosninganna með Telmu Tómasson fréttamanni.
Gunnar settist niður hjá Benedikt Valssyni, Fannari Sveinssyni og Sverri Þór Sverrissyni í þættinum Gott kosningakvöld og voru þeir fljótir að benda á að margir könnuðust eflaust frekar við Gunnar úr gríninu en í hlutverki alvörugefins stjórnmálagreinanda. „Eitthvað það allra skemmtilegasta sem ég geri er að nýta þennan rétt til að kjósa,“ segir Gunnar. Hann hafi ófáum sinnum fylgst grannt með nýjustu tölunum koma inn langt fram á nótt með gin og tónik sér við hlið. „En ég er ekki að fara að fá mér gin og tónik núna,“ segir Gunnar en viðurkennir að það gæti samt sem áður orðið gott sjónvarpsefni. Velur varalitinn af kostgæfni og prófar nýjan fyrir hverjar kosningar Gunnar kaus fyrst árið 1991 og var amma hans þá með í för sem var alltaf prúðbúin og málaði sig á kjördag. Hún féll frá fjórum árum síðar og vildi hann þá taka sér ömmu sína til fyrirmyndar. „Ég elskaði kerlinguna út af lífinu, þannig að ég bara varalita mig,“ segir Gunnar um þá hefð sem hefur síðan skapast henni til heiðurs. „Þetta er bara fokking stemning. Einhvern veginn að hafa sig til og vera fínn í tauinu.“ Hann kaupi nýjan varalit fyrir hverjar kosningar og sé farinn að kynna sér betur ólík vörumerki og tegundir. „Núna er ég með Giovanni 333. Hann er fáránlega góður.“ Hann verði þó ekki með hann á sér í kosningasjónvarpi Sýnar í nótt. „Út af því að ég er búinn að kjósa. Ég er ekki með hann allan daginn,“ segir Gunnar léttur í lund.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Grín og gaman Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Costanza á klakanum Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Sjá meira