Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Birgir Olgeirsson skrifar 19. maí 2026 12:14 Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari og Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Ástráður segir kjaradeilu flugstétta og Icelandair snúna en þó þokast áfram. Samninganefnd Icelandair fundaði annars vegar með Félagi íslenskra atvinnuflugmanna og hins vegar með samninganefnd flugvirkja hjá ríkissáttasemjara í gær og eru fundir í báðum deilum fyrirhugaðir á fimmtudag.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari er með það verkefni að reyna að fá þessar fylkingar til að semja um kaup og kjör en hann segir stærsta deiluefnið snúa að mismunandi framtíðarsýn samningsaðila á þessa atvinnugrein. Hann segir deiluna snúna en að hún þokist áfram og séu fyrirhugaðir fundir með samninganefndum Icelandair og Félagi íslenskra atvinnuflugmanna annars vegar og svo samninganefndum Icelandair og flugvirkja hins vegar á fimmtudag til marks um það. Icelandair hefur opinberlega sagt að félagið leitist við að geta skotið fleiri stoðum undir reksturinn til að geta brugðist við árstíðarsveiflum og breytingum á samkeppnisumhverfi en núverandi kjarasamningar leyfa. Stéttarfélög flugmanna og flugvirkja hafa hins vegar goldið varhug við slíkum hugmyndum því þau vilja vernda þau réttindi sem fólgin eru í samningum þeirra. Blautleiga og forgangsákvæði til umræðu Samkvæmt heimildum fréttastofu eru þær breytingar sem Icelandair hefur talað fyrir að opnað verði fyrir samninga við önnur flugfélög um svokallaða blautleigu, þar sem Icelandair myndi leigja flugvél með áhöfn til að sinna flugi fyrir félagið. Þá er einnig kallað eftir rýmri heimildum atvinnurekenda til að stjórna starfsfyrirkomulagi með tilliti til hvíldartíma og lengdar fluga. Að auki er Icelandair í viðræðum um mögulega kaup á 49% hlut í maltneska félaginu Play Europe og fá þar með flugrekstrarleyfi á Möltu. Félag íslenskra atvinnuflugmanna er með forgangsréttarákvæði í öll flug sem flogin eru á vegum Icelandair hvar sem er í heiminum. Verði það svo áfram þyrfti Icelandair ávallt að notast við starfsmenn Icelandair sem eru hjá FÍA til að fljúga þeim flugvélum sem reknar eru á maltneska flugrekstrarleyfinu. Hefur félagið kallað eftir breytingum á því fyrirkomulagi til að geta skotið fleiri stoðum undir reksturinn í harðnandi samkeppnisumhverfi. Eins og fyrr segir eru deilurnar snúnar og við það bætist að forstjóri Icelandair hefur farið hörðum orðum um það sem hann kallar „samstilltar aðgerðir“ flugmanna síðustu vikur, en Icelandair hefur þurft að aflýsa eða seinka áætlunarferðum vegna manneklu. Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, Jón Þór Þorvaldsson, hefur hafnað því að um samstilltar aðgerðir sé að ræða. Mikilvægt sé að gera greinarmun á því hvað séu verkfallsaðgerðir og hvenær fólk hafi ekki tök á því að hlaupa til vinnu úr fríi eða orlofi. Þá hefur Jón Þór sagt opinberlega að Icelandair áformi að færa hluta starfsemi flugfélagsins út fyrir íslenska kjarasamninga ef félagið kaupi nær helmingshlut í maltneska félaginu Fly Play Europe. „Það gefur þessum vísbendingum byr undir báða vængi að FÍA hefur óskað eftir skýrum svörum frá stjórnendum Icelandair um hvort starfsmenn félagsins hér á landi geti fengið forgang að störfum innan nýrrar starfsemi á Möltu en við því hafa stjórnendur ekki viljað verða," sagði Jón Þór í aðsendri grein sem hann birti á Vísi.
Icelandair Kjaramál Flug Mest lesið „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Sjá meira