„Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. maí 2026 14:36 Anna hefur verið búsett á Tenerife frá 2019 en flytur nú heim af heilsufarslegum og félagslegum ástæðum. Anna Kristjánsdóttir, Tenerife-búi og vélstýra, kveður í dag eyjuna fögru eftir tæplega sjö ára dvöl. Hún hefur notið Tenerife-lífsins í botn og snýr heim til Íslands af heilsufarslegum og félagslegum aðstæðum. Hún á eftir sakna ýmislegs og kemur til með að vera með annan fótinn á eyjunni næstu árin.
Anna Kristjánsdóttir er mörgum Íslendingum kunn, allavega þeim sem eldri eru, en hún er mikill brautryðjandi í málefnum hinsegin fólks og var fyrsta íslenska trans konan sem birtist þjóðinni opinberlega. Síðustu ár hefur Anna vakið athygli fyrir pistlaskrif sín en hún flutti til Tenerife árið 2019, hefur verið búsett þar síðan og haldið Facebook-vinum sínum upplýstum með reglulegum skemmtipistlum. Hún stendur á tímamótum í dag, flýgur frá Tenerife og er að flytja í Bryggjuhverfið. „Í dag er dagur brottfarar. Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife og reikna fastlega með að ég eigi eftir að koma hingað aftur og aftur áður en yfir lýkur enda er Tenerife eins og Paradís á jörðu. En það er margt sem ég þarf að gera áður en yfir lýkur og því er þetta nóg að sinni,“ skrifaði Anna í pistlinum „Dagur 2473 – Kveðjustund“ í morgun. Hún segir ekki neins pistils að vænta á morgun sökum anna og flutninga en hún muni kannski láta pistil flakka á laugardagsmorgni hvítasunnuhelgar um lífið í Bryggjuhverfinu í Reykjavík. Notið dvalarinnar í botn Blaðamaður heyrði hljóðið í Önnu, sem var enn stödd úti, til að ræða við hana um þessi tímamót og dvölina ytra síðustu ár. Þá var ekki úr vegi að byrja á því hvað dró hana til Tenerife til að byrja með „Mig langaði til að breyta til, komast úr kuldanum. Reyna að njóta lífsins í einhver ár á meðan maður hefði heilsu til þess. Ég var búin að prófa nokkra staði árið á undan og niðurstaðan varð sú að mig langaði til að byrja hér,“ segir Anna um Tenerife. Anna keypti sér Benz á Tenerife fyrir fimm árum en er nú búin að selja hann og kaupa sér nýjan bíl á Íslandi. „Hingað fór ég 2019, hefur líkað vel og ég hef alveg notið þess í botn, má segja,“ segir hún en skömmu eftir komuna til landsins reið hins vegar Covid-faraldurinn yfir. „Covid-ævintýrið þjappaði okkur sem bjuggu hérna á þeim tíma vel saman. Í heilt ár eftir það vorum við mjög fá hérna en gátum haldið hópinn töluvert og það þjappaði okkur vel saman. Síðan er þetta búið að vera alveg dásamlegt,“ segir Anna. „Ég ætla að sofa í mínu rúmi á Íslandi í nótt“ Nú 2.473 dögum síðar, tæplega sjö árum, er komið að kveðjustund en Anna segir fyrst og fremst tvær ástæður fyrir heimkomunni til Íslands. „Það er annars vegar heilsufarslegt og hins vegar félagslegt. Ég fór að finna fyrir einkennum í vetur sem eru ekkert of skemmtileg og ég vil frekar vera nálægt læknum sem þekkja mig og mína sögu en að vera hér,“ segir hún. Sömuleiðis vill hún vera nær fjölskyldu og vinum og rifja upp gömlu félagsmálin sem hún var virk í áður. Anna á eftir sakna margra á Tenerife, einna helst hundsins Texas sem hún hefur átt margar gæðastundir með. „Það er ýmislegt sem maður kemur til með að sakna héðan þannig ég kem til með að vera með annan fótinn hér næstu árin,“ segir hún. Ýmislegt vesen fylgir því að flytja milli landa, „fyrst og fremst að koma dótinu sína á milli,“ að sögn Önnu. „Þannig ég ákvað að selja það sem ég átti hér, seldi bílinn og keypti annan heima,“ segir Anna sem er spennt að koma aftur heim. „Ég ætla að sofa í mínu rúmi á Íslandi í nótt.“ Framundan sé að koma sér fyrir í Bryggjuhverfinu í rólegheitum „Kannski prófa ég ný ævintýri næsta vetur, hvað sem það verður. Maður lætur sig dreyma um eitt og annað en nóg að segja um það núna,“ segir hún að lokum. Brynjar bíður spenntur Fjölmargir bíða heimkomu Önnu spenntir, þar á meðal Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður og nýkjörinn borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem skrifaði pistil um heimkomuna eins og honum einum er lagið. „Nú í dag er vinkona mín, Anna Kristjáns, að flýja góða veðrið á Tene og ætlar að hírast með okkur hinum á sama tíma og Golfstraumurinn er að yfirgefa okkur og ríkisstjórnin að gera sitt besta til að hækka vexti og verðbólgu. Eina haldgóða skýringin á því að Anna er að koma heim á klakann er sú að hún reiknar með að Sjálfstæðisflokkurinn sé að taka við stjórn borgarinnar,“ skrifar Brynjar í færslu sem hann birti fyrr í dag. Anna á góðri stundu með Brynjari Níelssyni og Eiríki Haukssyni. Hann segist búinn að skipuleggja með Önnu ýmiss konar félagsstarf fyrir landann næsta vetur. „Við ætlum að halda vínsmökkunarnámskeið, bæði fyrir lengra komna og nýgræðinga. Til að byrja með leggjum við áherslu að kynna Vodka-drykkinn, en þar er fjölbreytileikinn mikill. Vodki er ekki bara vodki. Skiptir máli hvernig þeir eru blandaðir og sumar tegundir verður að drekka óblandaða, eða „dry“ eins þeir segja í útlöndum. Lögð verður áhersla á að kenna fólkinu að njóta þegar drykkurinn rennur um æðarnar og finna hvernig geðslagið verður betra. Rétt er taka það fram að þessi námskeið henta illa þeim sem kunna ekki með drykki af þessu tagi að fara,“ skrifar hann. Þá hafi komið til umræðu hjá honum og Önnu að stofna ný hinsegin samtök þar sem aðaláherslan verði ekki að berjast gegn auðvaldinu og styðja þá sérstaklega sem hata okkur. Anna með Oddnýju Harðardóttur og Brynjari Níelssyni. „Nokkur ágreiningur er á milli okkar hvort við eigum að leyfa startkapla- og svipuliðinu að vera með í þessum nýju samtökum en jafnframt erum við Anna ekki sammála um hvað kynin eru mörg. Hún heldur því fram að þau séu bara þrjú en ég hef náð að telja upp í 75 kyn. En við munum örugglega leysa þennan ágreining með því að fara einhvern milliveg,“ skrifar hann jafnframt. „Einnig ætlum við Anna að stofna hjálparsamtök fyrir móðgunargjarna en sá hópur hefur farið ört vaxandi undanfarin ár án þess að við sem samfélag höfum brugðist við. Ég reikna með ný borgarstjórn leggi okkur Önnu lið og fjármagni nú allt þetta góða starf sem er framundan.“
Spánn Íslendingar erlendis Tímamót Málefni trans fólks Kanaríeyjar Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Pattra með pæju-padelmót Lífið Fleiri fréttir Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Sjá meira