Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Jakob Bjarnar skrifar 21. maí 2026 16:24 Helgi Björns segir að þau Ragga Gísla eigi sér sögu og þær sögur verða tíundaðar á tónleikum sem þau tvö blása til nú á næstunni. vísir/vilhelm Hinir ástsælu söngvarar og stórstjörnur, Helgi Björnsson og Ragnhildur Gísladóttir, ætla að syngja nokkra stórsmelli sína á þrennum tónleikum á næstunni. „
Þeir svínvirka þessir hittarar allir,“ segir Helgi Björns – sjálfur Holy B – í stuttu samtali við Vísi. Helgi er hress. Hann þylur upp nöfn á smellum sem þau hafa sungið í gegnum tíðina, svo sem Draumaprinsinn, Það bera sig allir vel, Síðan hittumst við aftur á miðri leið … listinn af lögum sem þau tvö hafa sungið er langur. „Þetta er pop of the tops hjá okkur báðum.“ Þegar Helgi eyðilagði múnderingu Röggu Þau hafa verið að æfa dagskrá og til stendur að segja sögur á milli laga. „Svo ætlum við að segja einhverjar skemmtilegar sögur á milli. Eins og þegar ég eyðilagði fötin hennar á Húnavershátíðinni. Hún var ekki par ánægð með mig þá. Ég var að mála mótmælaskilti í einhverjum flutningabíl, hún komin í þessa svakalegu múnderingu og rak sig í spjöldin…“ Fyrirgefðu að ég eyðilagði múnderinguna þína í Húnaveri, gæti Helgi verið að segja við Röggu.vísir/vilhelm Það er ekki augljóst að þessi tvö taki nú höndum saman, eða hvað? Helgi segir reyndar að leiðir þeirra Röggu hafi legið saman og um langa hríð. „Í gegnum bransann, jájá. Við vorum að spila í Húnaveri, sællar minningar, ég hef sungið með Stuðmönnum í fjarveru Egils og svo lékum við saman á Akureyri í Kysstu mig Kata eða Skassið tamið,“ segir Helgi og rifjar upp löng kynni þeirra Röggu. „Já, og svo lékum við saman í myndinni hennar Dúnu, Ungfrúin góða og húsið. Tókum upp í Flatey og bjuggum þar í tvo mánuði í góðu yfirlæti.“ Stefán bregður sér á bassann Þau hafa sem sagt leitt saman hesta sína og leikið ástfangið par – bæði á sviði og á hvíta tjaldinu. Nú fær sú kemistría að njóta sín aftur með tónum og tali. Með þeim á sviði verða tveir af okkar fremstu hljóðfæraleikurum, Stefán Már Magnússon gítarleikari og Tómas Jónsson hljómborðsleikari, en þeir eru báðir reyndar kettir og spila á ýmis hljóðfæri; Stefán Már bregður sér á bassann og Tómas á nikkuna, þegar svo ber undir. Þessi hópur ætlar að skemmta á Sviðinu á Selfossi núna á laugardaginn, á föstudaginn 29. maí verða þau í Bæjarbíói í Hafnarfirði og svo liggur leiðin norður; þau verða í Bíóhöllinni á Akureyri 30. maí.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Leikhús Hafnarfjörður Akureyri Ölfus Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira