Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Valur Páll Eiríksson skrifar 23. maí 2026 16:36 Oli McBurnie var hetja Hull sem vann umspilið í þriðja sinn í dag. Julian Finney/Getty Images Skotinn Oli McBurnie var hetja Hull City sem leikur í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð þökk sé dramatískum 1-0 sigri á Middlesbrough í úrslitaleik umspils B-deildarinnar á Wembley í dag.
Sérkennilegur aðdragandi var að leiknum þar sem Middlesbrough fékk sæti í honum í miðri viku vegna brottvikningar Southampton. Hull hafði undirbúið að mæta Southampton í viku áður en andstæðingurinn breyttist skyndilega vegna njósna Southampton um andstæðinga sína. Middlesbrough fór þá úr því að vera í sumarfríi að vera 90 mínútum frá ensku úrvalsdeildinni. Leikur dagsins var lokaður og spennuþrungið andrúmsloft á Wembley, eðli málsins samkvæmt. Færin voru ekki mörg en bæði lið fengu þó sénsa til að koma inn marki. Komið var fram í uppbótartíma þegar ísinn var brotinn. Skotinn Oli McBurnie skoraði það sem reyndist sigurmarkið og gríðarleg fagnaðarlæti brutust út. McBurnie var svekktur að missa af sæti í HM-hópi Skota en gat glaðst í dag. Stuðningsmenn Hull ærðust af fögnuði.Jordan Pettitt/PA Images via Getty Images Hull City hefur átt ótrúlega leiktíð en mikil fjárhagsvandræði hafa gert liðinu lífið leitt. Hull hélt sæti sínu í B-deildinni fyrir sléttu ári síðan á markatölu og óhætt að segja að enginn hafi búist við því fyrir þessa leiktíð að félagið yrði einu sinni nálægt því að berjast um úrvalsdeildarsæti. Viðsnúningurinn algjör og Hull verður á meðal bestu liða Englands þegar boltinn fer aftur að rúlla í ágúst. Liðið verður í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta skipti frá tímabilinu 2016-17. Um er að ræða þriðja skiptið sem Hull vinnur úrslitaleik umspils B-deildarinnar á Wembley. Liðið vann umspilið einnig 2008 og 2016. Ásamt Hull City fara Ipswich Town og meistarar Coventry City upp í úrvalsdeildina. Burnley og Wolves falla niður í B-deildina og í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á morgun kemur í ljós hvort Tottenham eða West Ham falli einnig.
Enski boltinn Hull City AFC Mest lesið Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Fótbolti Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Enski boltinn Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Fótbolti Afmælisdagurinn sem aldrei kom Sport Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Sjá meira