Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. maí 2026 20:01 Flöskuborð hafa um árabil notið vinsælda í miðbæ Reykjavíkur þar sem fólk greiðir háar fjárhæðir fyrir borð með sterkum áfengum drykkjum með blandi og orkudrykkjum. Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru fyrir nauðgun fyrir Landsrétti sem staðfesti niðurstöðu héraðsdóms. Konan var talin trúverðug í framburði sínum en ekki þótti hafið yfir vafa að karlmaðurinn hefði gerst sekur um nauðgun því óljóst væri hvenær hann hefði mátt vita að hún væri mótfallin samræðinu.
Þrjú ár liðin frá atburðum Það var aðfaranótt sunnudags í febrúar 2023 sem tvær konur á djamminu fóru á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur um tvöleytið um nóttina. Um var að ræða stað með flöskuborðum þar sem karlmaðurinn sem ákærður var í málinu sat. Bauð hann konunum til sín á borðið og tókust með þeim kynni áður en þær yfirgáfu staðinn eftir að hafa tengst á samfélagsmiðlum. Fjórum klukkustundum síðar var maðurinn kominn heim til sín, þar sem hann bjó með móður sinni, bræðrum og tveggja ára syni. Hann var þá nýkominn af bráðamóttöku Landspítalans eftir að hafa lent í slagsmálum í miðbænum. Hófust samskipti á Snapchat við konurnar tvær og varð úr að vinur mannsins, leigubílstjóri, sótti hann og í framhaldinu konurnar tvær og skutlaði heim til mannsins á sjöunda tímanum um morguninn. Þar byrjuðu maðurinn og önnur konan að kyssast en hin konan hallaði höfði í rúmi mannsins. Það sem gerðist í framhaldinu er óljóst enda bar konunni og manninum ekki saman um það. Hann sagði þau hafa haft samræði í um tíu mínútur þar til hún hafi beðið þau um að fresta því til dagsins eftir. Hún sagðist ítrekað hafa sagt honum að hætta, legið með bakið í hann og að lokum fengið hann til að hætta með boði um að fresta kynlífinu. Vinur sótti konurnar Vinkonan lá við hliðina og sagðist hafa hlustað á konuna biðja manninn um að hætta. Hún hefði hins vegar frosið og ekki treyst sér í að stíga á milli. Fóru þær svo á baðherbergi, sendu vini skilaboð sem kom og sótti þær. Fylgdi sögu vinkvennanna að tveggja ára sonur ákærða hefði verið í sama herbergi á meðan heimsókninni stóð og staðið í rimlarúmi sínu og fylgst með því sem gerðist. Þessu hafnaði maðurinn og sagði barnið hafa sofið allan tímann. Vinurinn skutlaði konunum á neyðarmóttöku Landspítalans þar sem vinkonan lýsti því sem hafði gerst því konan treysti sér ekki til að segja frá. Eftir að hafa rætt við móður sína leitaði hún til lögreglu og kærði manninn fyrir nauðgun. Hann var svo handtekinn tveimur dögum síðar og færður í skýrslutöku þar sem hann neitaði sök. Lykilvitni sagði meira en hún gat vitað Móðir konunnar sagði atburðina hafa haft mikil og slæm áhrif á dóttur sína. Hún hefði áður orðið fyrir kynferðisofbeldi. Þá kom sálfræðingur fyrir dóminn og lýsti að konan hefði komið í 24 tíma og væri í bataferli þótt enn væri nokkuð í land í þeim efnum. Vinkona konunnar var lykilvitni í málinu og veltu bæði héraðsdómur og Landsréttur framburði hennar fyrir sér. Við mat á áreiðanleika vitnisburðar hennar taldi Landsréttur óhjákvæmilegt að líta til þess í hve ríkum mæli frásögn hennar fyrir dómi og lögreglu blandaðist saman við það sem hún sagði konuna hafa sagt henni frá á baðherberginu heima hjá ákærða. Hún hefði í raun lýst neitun konunnar með enn sterkari orðum en konan sjálf. Þá hafi vinkonan lýst atvikum sem hún hafi með engu móti getað skynjað af eigin raun enda ljóst að hún hafi snúið baki í ákærða og konuna og ekki séð það sem fram fór. Þá yrði að meta framburð hennar með hliðsjón af tengslum hennar við konuna. Það drægi úr sönnunargildi hennar. Hvenær heyrði maðurinn nei? Dómurinn taldi ekkert komið fram í framburði konunnar hjá lögreglu eða fyrir dómi sem rýrði trúverðugleika hennar. Stóri vafinn í málinu væri hvort og þá hvenær ákærða hefði mátt vera ljóst að kynmök þeirra færu ekki fram með samþykki konunnar. Gögn málsins og framburður vitna renndu ekki fullum stoðum undir sakfellingu gegn eindreginni neitun mannsins. Var maðurinn því sýknaður af ákæru fyrir nauðgun í Landsrétti líkt og fyrir héraði. Fyrirsögn fréttarinnar var breytt.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Sjá meira