Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Eiður Þór Árnason skrifar 25. maí 2026 23:14 Ljósmyndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Getty/Basak Gurbuz Derman Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála féllst ekki á kröfu eigenda hunds um að ógilda ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness um að aflífa skuli hund þeirra eftir að hann særði annan hund alvarlega.
Hundinum var ætlað að leika við annan hund á afgirtu svæði á einkalóð í desember 2025 þegar hann beit hinn hundinn og særði svo illa að það þurfti að aflífa hann. Þetta kemur fram í úrskurði nefndarinnar. Atvikið hafi verið tilkynnt til heilbrigðiseftirlitsins sem lét gera skapgerðarmat á hundi kærenda. Það hafi verið niðurstaða eftirlitsins að hann væri hættulegur og gerð krafa um að hann yrði aflífaður í samræmi við heimild í samþykkt um hundahald í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi. Eigendur hundsins kærðu ákvörðunina og kröfðust þess að hún yrði felld úr gildi eða málið tekið til nýrrar meðferðar. Úrskurðarnefndin felldi úrskurð sinn þann 21. maí en hann varðaði ákvörðun heilbrigðiseftirlitsins frá 30. mars 2026. Úrskurðarnefndin féllst á að réttaráhrifum ákvörðunar heilbrigðiseftirlitsins yrði frestað á meðan málið væri til meðferðar hjá nefndinni og um leið að fyrirhugaðri aflífun hundsins yrði frestað. Viðbrögð hins eigandans leitt til alvarlegri áverka Eigendur umrædds hunds lýstu því fyrir úrskurðarnefndinni hvernig hann hafi bitið í neðri kjálka hins hundsins á meðan þeir voru á afgirtu svæði. Eigandi hins hundsins hafi brugðist við með því að beita árásarhundinn verulegu líkamlegu afli, meðal annars með því að sparka ítrekað í andlit hans og toga í hundinn sinn „á meðan bitið var læst“. Þessi viðbrögð hafi haft áhrif á alvarleika áverkanna, að sögn eigenda. Þá hafi tilkynning um atvikið verið send af dýralækni sem annast hafi þann hund og byggt hafi verið á einhliða frásögn eiganda hans. Frá fyrstu samskiptum hafi verið greinilegt að heilbrigðiseftirlitið hafi þegar verið búið að mynda sér mótaða skoðun um að aflífun hunds þeirra væri eina raunhæfa niðurstaðan. Þau hafi lýst yfir fullum samstarfsvilja og samþykkt að sæta hvaða skilyrðum sem væri öðrum en aflífun hundsins. Falið í sér óásættanlega hættu Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness sagði að metið hefði verið hvort viðbrögð eiganda hundsins sem var bitinn kynnu að hafa haft áhrif á alvarleika þeirra áverka sem hann varð fyrir. Eðlilegt sé að dýralæknir tilkynni um atvik sem þetta og að gætt hafi verið að rétti kærenda til að gæta andmæla og fá aðgang að öllum gögnum máls. Skapgerðarmat hafi leitt í ljós að hundurinn væri hættulegur vegna stjórnlausrar árásargirni gagnvart öðrum hundum. Í matinu hafi jafnframt komið fram að slík árásargirni geti við tilteknar aðstæður beinst að fólki. Hundurinn sé fimm ára, árásargirni hans mikil og fari jafnvel vaxandi. Ekkert bendi til þess að markvisst hafi verið unnið gegn þeim hegðunarvanda. Að mati heilbrigðiseftirlitsins feli þetta í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til kröfu um aflífun. Engin raunhæf vægari úrræði til staðar Eigendur hundsins sögðu annmarka hafa verið á málsmeðferð hjá heilbrigðiseftirlitinu, viðbrögð eiganda hundsins sem varð að aflífa hafi ekki verið rannsökuð með fullnægjandi hætti, síðbúin afhending gagna hafi skert möguleika kærenda til að gæta hagsmuna sinna og að vægari úrræði en aflífun hafi ekki sætt fullnægjandi mati. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála taldi að stjórnsýslulögum hafi verið fylgt við meðferð málsins og að ákvörðun heilbrigðiseftirlitsins hafi byggt á ítarlega rökstuddu skapgerðarmati. Þá hafi legið fyrir að hundurinn hafi valdið öðrum hundi slíkum áverka að aflífa þurfti hann. Engin raunhæf vægari úrræði hafi verið til staðar til að tryggja öryggi annarra dýra og almennings. Kröfu eiganda hundsins um ógildingu ákvörðunar heilbrigðiseftirlitsins um að aflífa hundinn var því hafnað.
Hundar Úrskurðar- og kærunefndir Heilbrigðiseftirlit Gæludýr Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira