Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Eiður Þór Árnason skrifar 26. maí 2026 21:28 Ástráður Haraldsson er ríkissáttasemjari. Vísir/Vilhelm Boðað hefur verið til fundar í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu á morgun. Ríkissáttasemjari segir enn langt í land og hefur beint því til samningsaðila að þeir tjái sig ekki um efni viðræðnanna við fjölmiðla.
Til stóð að halda fund í deilu Icelandair og flugvirkja hjá embættinu í dag en honum var frestað vegna veikinda. Ekki hefur enn verið boðað til nýs fundar. Þetta segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við Vísi. „Við erum bara að vinna að því að reyna að halda samtalinu lifandi og vinna þetta áfram með skipulögðum hætti en það er óbreytt staða.“ Óskað hafi verið eftir því að fulltrúar Icelandair og FÍA tjái sig ekki við fjölmiðla „umfram það sem nauðsynlegt er.“ Kjarasamningar Icelandair við FÍA og Flugvirkjafélag Íslands runnu út í lok september. Þá eru samningar einnig lausir við Flugfreyjufélag Íslands en sú deila er ekki komin inn á borð ríkissáttasemjara. Fellt niður fjölda flugferða Aukin harka hefur færst í samskipti Icelandair og flugmanna síðustu vikur en flugfélagið hefur sakað félagsmenn FÍA um að stunda óformlegar aðgerðir. Nokkur fjöldi flugferða hefur verið felldur niður hjá Icelandair síðustu vikur vegna manneklu. Til að mynda var minnst fjórum ferðum aflýst vegna áhafnarskorts um helgina. Formaður FÍA hefur hafnað því að um skipulagðar aðgerðir sé að ræða og sagt þetta afleiðingu slæmrar mönnunar eða ófullnægjandi álagsprófunar á flugáætlun. Forsvarsmenn Icelandair vísa þessu á bug og segja að flugmenn hafi skyndilega hætt að selja frídaga sína. Grunur sé um samstilltar aðgerðir. Fréttin hefur verið uppfærð.
Icelandair Kjaramál Flug Tengdar fréttir Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Icelandair hafnar því að aflýsingar félagsins megi rekja til vanmannaðrar eða ófullnægjandi álagsprófaðrar flugáætlunar. Félagið segir vandann stafa af samstilltum aðgerðum flugmanna sem hafi skyndilega hætt að selja frídaga. Félagið hafi keypt 187 frídaga í maí í fyrra, en nú hafni flugmenn hundruðum þúsunda fyrir frídaga sem hafi ekki gerst síðan 2014, þegar flugmenn voru í kjaradeilum við félagið. 24. maí 2026 19:27 Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir aflýsingar Icelandair á áætlunarferðum sýna að flugáætlun félagsins standist ekki álagspróf með tilliti til mönnunar. Það sé á ábyrgð Icelandair að tryggja að áætlunin sé mönnuð með sjálfbærum hætti. 24. maí 2026 16:15 Enn öðru flugi aflýst Vegna flugvélaskorts aflýsti Icelandair einu flugi til viðbótar þeim sjö sem aflýst var í gær og í dag. Um er að ræða flug til Stokkhólms sem átti að taka á loft klukkan 11 í dag. 24. maí 2026 11:04 Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar í fyrramálið vegna kjaradeilunnar þeirra á milli. 21. maí 2026 13:50 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Sjá meira
Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Icelandair hafnar því að aflýsingar félagsins megi rekja til vanmannaðrar eða ófullnægjandi álagsprófaðrar flugáætlunar. Félagið segir vandann stafa af samstilltum aðgerðum flugmanna sem hafi skyndilega hætt að selja frídaga. Félagið hafi keypt 187 frídaga í maí í fyrra, en nú hafni flugmenn hundruðum þúsunda fyrir frídaga sem hafi ekki gerst síðan 2014, þegar flugmenn voru í kjaradeilum við félagið. 24. maí 2026 19:27
Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir aflýsingar Icelandair á áætlunarferðum sýna að flugáætlun félagsins standist ekki álagspróf með tilliti til mönnunar. Það sé á ábyrgð Icelandair að tryggja að áætlunin sé mönnuð með sjálfbærum hætti. 24. maí 2026 16:15
Enn öðru flugi aflýst Vegna flugvélaskorts aflýsti Icelandair einu flugi til viðbótar þeim sjö sem aflýst var í gær og í dag. Um er að ræða flug til Stokkhólms sem átti að taka á loft klukkan 11 í dag. 24. maí 2026 11:04
Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar í fyrramálið vegna kjaradeilunnar þeirra á milli. 21. maí 2026 13:50