Vilja ráða Iraola eða Lampard Valur Páll Eiríksson skrifar 28. maí 2026 13:01 Andoni Iraola náði glimrandi árangri sem stjóri Bournemouth. Robin Jones / Getty Images Crystal Palace leitar nýs knattspyrnustjóra í kjölfar sigurs liðsins í Sambandsdeildinni í gærkvöld. Oliver Glasner er á förum og Andoni Iraola sagður efstur á lista.
Iraola hefur gert frábæra hluti með Bournemouth undanfarin ár og félagið er á leið í Evrópukeppni á komandi leiktíð í fyrsta sinn í sögu félagsins. Þjóðverjinn Marco Rose tekur við Bournemouth en framtíð Iraola er óráðin. Glasner hefur stýrt Palace í nýjar hæðir undanfarin ár. Félag sem hafði ekki unnið einn einasta titil alla sína tíð hefur nú unnið þrjá á einu ári; FA-bikarinn síðasta vor, Samfélagsskjöldinn í haust og síðast Sambandsdeild Evrópu í gær. Óvíst er hvort Iraola hafi áhuga á því að færa sig til Lundúna en breska ríkisútvarpið greinir frá því að spænski Baskinn sé efstur á lista hjá stjórnendum Crystal Palace. Palace þyrfti að hafa fyrir því að sannfæra Iraola um að taka við liðinu en stærri félög eru sögð hafa augu á honum. Hann hefur verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá AC Milan á Ítalíu og Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Einnig er hann orðaður við Liverpool, fari það svo að Rauði herinn losi sig við Hollendinginn Arne Slot. Frank Lampard, sem stýrði Coventry City til B-deildartitils í vor, er sagður plan B. Hann eigi aðdáendur í stjórn Palace og sé meðvitaður um áhuga frá Lundúnaliðinu. Ekki sé útilokað að hann sé klár í að stökkva frá borði í Coventry til að flytja í heimaborgina. Palace þyrfti þá hins vegar að borga upp samning hans við Coventry. Kieran McKenna, stjóri Ipswich Town, Pierre Sage, Sean Dyche og Thomas Frank hafa einnig verið til umræðu til að taka við liði Crystal Palace.
Crystal Palace FC Enski boltinn Mest lesið UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Fótbolti Fleiri fréttir Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Sjá meira