Sport

„Okkar besti hálf­leikur á tíma­bilinu“

Ester Ósk Árnadóttir skrifar
Einar Guðnason, þjálfari Víkings, á hliðarlínunni í leik kvöldsins
Einar Guðnason, þjálfari Víkings, á hliðarlínunni í leik kvöldsins Vísir/Pawel Cieslikiewicz

„Það eru blendnar tilfinningar, ég er náttúrulega mjög ánægður með sigurinn og að skora sex mörk“, sagði Einar Guðnason þjálfari Víkings Reykjavík eftir 6-4 útisigur á móti Þór/KA.

„Á móti kemur að við fengum á okkur þrjú mörk undir lokinn sem var algjör óþarfi. Maður var svolítið svekktur með þau.“

Víkingur var að vinna 6-1 þegar að þær fengu á sig þrjú mörk á stuttum kafla. 

„Ég veit ekki hvað gerist, við verðum að skoða það. Við fáum tvö á okkur eftir horn og bara frekar lélegur varnarleikur þarna í lokinn. Maður hefur nú séð ýmislegt í þessu þannig maður var ekki rólegur að sjá okkur fá þessi mörk á okkur. Maður var líka bara svekktur að vera í 6-1 og vera svo allt í einu í stöðunni 6-4 en við fögnum sigrinum.“

Leikurinn var ekki nema um hálfrar mínútna gamall þegar Víkingur var komið yfir. 

„Mér fannst við koma bara mjög einbeittar til leiks, eins og sást bara alveg á tánum og skorum mark eftir sirka 30 sekúndur og skorum síðan þrjú mörk í viðbót, mjög fín mörk. Síðan eigum við líka skot í slá og fleiri færi þannig að þetta var frábær fyrri hálfleikur, okkar besti á þessu tímabili. Það hefði samt verið frábært ef við hefðum geta haldið áfram eins og við gerðum í fyrri hálfleik í þeim síðari. Við skorum tvö fín mörk og fáum færi en súrt að fá þessi mörk á okkur.“

Mörg mörk Víkings komu eftir einfaldar sóknir þar sem ein sending úr öftustu línu og önnur inn á teig nægðu til að opna vörn Þórs/KA og skapa marktækifæri.

„Við vorum búin að sjá gloppur hjá andstæðingnum og eitthvað af þessu var set upp og síðan var eitthvað af þessu líka bara gæði hjá mínum leikmönnum.“

Víkingur voru búnar að tapa tveimur leikjum í röð fyrir leikinn í dag og voru í áttunda sæti deildarinnar. 

„Þessi sigur var bara mjög mikilvægur ef við ætlum að vera í einhverri baráttu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×