Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Valur Páll Eiríksson skrifar 2. júní 2026 11:33 Sir Kenny Dalglish er goðsögn í lifanda lífi. Nordic Photos / Getty Images Liverpool hefur sent yfirlýsingu um goðsögn félagsins, Sir Kenny Dalglish, sem berst við krabbamein. Dalglish hafði sjálfur óvart greint frá tíðindunum á samfélagsmiðlum.
Dalglish birti færslu á samfélagsmiðlum þar sem fram kom að hann væri að berjast við krabbamein. Sú færsla átti ekki að fara í loftið en skaðinn var skeður og tíðindin fóru á flug. Liverpool birti yfirlýsingu í kjölfarið þar sem haft er eftir Dalglish: „Eins og slysafærsla mín á samfélagsmiðlum gefur til kynna, þá er ég nú í meðferð við krabbameini,“ sagði Sir Kenny. „Ólíkt notkun minni á farsíma gengur meðferðin vel.“ Hann hafi viljað halda upplýsingum um heilsu sína sem einkamáli. „Helst hefði þetta verið áfram einkamál því þannig á það að vera, en gagnslaus tæknikunnátta mín hefur neytt mig til að gera þetta opinbert.“ „Auðvitað ætlaði ég ekki að gera þetta mál opinbert svo ég væri þakklátur ef friðhelgi einkalífs míns og fjölskyldu minnar væri virt.“ Ekki fylgir sögunni á hvaða stigi veikindi hans eru eða hverskyns krabbamein sé að ræða. Dalglish þakkar læknastarfsfólki fyrir aðstoðina í veikindunum. „Eins og alltaf, þakka ég frábæru læknastarfsfólki sem hefur sýnt ótrúlega umhyggju og nærgætni, ekki bara fyrir mig heldur fyrir marga, marga aðra. Þau eru sjálfum sér til sóma.“ Dalglish er skoskur og hóf leikmannaferil sinn hjá Celtic hvar hann lék frá 1969 til 1977. Í kjölfarið fór hann til Liverpool og var leikmaður liðsins frá 1977 til 1990. Hann er talinn besti leikmaður í sögu félagsins. Hann var einnig þjálfari liðsins frá 1985 til 1991. Hann hætti hjá Liverpool í kjölfar Hillsborough-slyssins sem tók mikið á hann. Hann þjálfaði Blackburn Rovers frá 1991 til 1995 og undir hans stjórn vann liðið enska meistaratitilinn. Þá var hann stjóri Newcastle 1997 til 1998 og tók svo aftur við sem stjóri Liverpool árið 2011 og var í því starfi í rúmt ár. Dalglish vann enska meistaratitilinn sex sinnum sem leikmaður, þar af einn sem spilandi þjálfari, og tvo sem þjálfari liðsins. Einnig varð hann Evrópumeistari þrisvar sem leikmaður liðsins. Dalglish er þá leikjahæsti leikmaður í sögu skoska landsliðsins með 102 leiki og deilir markametinu með Denis Law, með 30 mörk.
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Sport Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Arnar um pressuna: „Það vilja allir núna vera með hnífana úti“ Sport Lebron talaði hreint út Körfubolti Fleiri fréttir Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn Sjá meira