Uppgötvuð á götum Barcelona Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 3. júní 2026 20:02 Helena María Davíðsdóttir er búsett í Barcelona og ræddi við blaðamann um lífið úti. Aðsend „Um daginn var ég að labba um borgina þegar starfsmaður frá módelskrifstofu stoppaði mig á götunni. Tveimur tímum síðar var ég búin að skrifa undir samning hjá þeim. Svona hlutir eru furðualgengir hér og gera lífið mjög spennandi,“ segir hin 21 árs gamla Helena María Davíðsdóttir sem er búsett í Barcelona og er mikil ævintýrakona. Helena er að læra tæknileg arkítektúrfræði úti samhliða því að starfa sem fyrirsæta og barre-þjálfari.
Helena flutti til Barcelona síðasta haust og skráði sig í sex ára nám. Blaðamaður ræddi við hana um lífið úti. View this post on Instagram A post shared by Helena María (@helenadavidss) Hvað varð til þess að þú fluttir út? Mig langaði að upplifa nýja menningu og lífsstíl. Eftir menntaskóla ferðaðist ég ein í eitt ár um Asíu og Bandaríkin. Þar áttaði ég mig á því hvað heimurinn er í raun lítill og hvað maður þroskast mikið við að upplifa nýja menningu og fara út fyrir þægindarammann sinn. Þetta fékk mig til að skoða nám erlendis og vera opin fyrir alls konar tækifærum. Svo rakst ég á nám í Barcelona sem hentaði mér fullkomlega. Helena iðkar barre og pílates af krafti úti. Aðsend Hvað ertu að gera þar? Ég er í tæknilegri arkitektúrfræði (e. Technical Architecture) þar sem ég útskrifast með tvenns konar Bachelor-gráður, annars vegar BS í byggingafræði og hins vegar BA í arkitektúr Helena er að læra tæknilega arkítektúrfræði úti.Aðsend Hefurðu búið annars staðar erlendis? Já, ég bjó í Taívan í fjóra mánuði þar sem ég lærði mandarínsku og í Indianapolis í fimm mánuði þar sem ég var au pair hjá yndislegri mömmu sem átti litla stelpu. Þar fékk ég að ferðast um Bandaríkin með fjölskyldunni. Auk þess bjó ég í Barcelona með fjölskyldunni minni þegar ég var tíu ára gömul og gekk þá í katalónskan skóla. Barcelona hefur því alltaf átt sérstakan stað í hjarta mínu. Helena hefur ferðast víða og upplifað hin ýmsu ævintýri.Aðsend Hvernig er daglegt líf og hversdagsleikinn úti hjá þér? Námið er krefjandi, þannig að ég er oftast annað hvort í bóklegu námi eða skapandi verkefnavinnu. Mér finnst frábært hvað námið er fjölbreytt og það hentar mér mjög vel. Ég hef líka kynnst fullt af skemmtilegu fólki, bæði Íslendingum, Katalónum og fólki alls staðar að úr heiminum. Það sem gleður mig mest við hversdagsleikann í Barcelona er að ég get gengið nánast hvert sem er. Það er yfirleitt gott veður, mikið líf á götunum og alltaf eitthvað að gerast. Helena elskar daglegt líf í Barcelona þar sem sólin skín yfirleitt alla daga. Aðsend Hvað er skemmtilegast við lífið úti? Ég elska hvað spænsk menning er sterk hér, en á sama tíma eru allir mjög opnir fyrir alþjóðlegu fólki. Mér finnst skemmtilegast að hitta fólk frá ólíkum löndum, spjalla við það og læra um menninguna þeirra. Ég hef líka gaman af alls konar viðburðum og því að geta verið úti að hreyfa mig í sólinni. Helena elskar að hreyfa sig úti í sólinni.Aðsend En mest krefjandi? Að búa ein, vera í krefjandi námi og langt frá fjölskyldu og vinum getur stundum verið erfitt. Sérstaklega þegar maður er enn að læra inn á nýtt umhverfi og nýjan lífsstíl. Það getur verið krefjandi að búa langt frá vinum og fjölskyldu og læra inn á nýtt umhverfi en Helenu hefur tekist vel til að koma sér fyrir í Barcelona og elskar námið sitt. Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til? Bara daglega lífið sjálft. Það er alltaf eitthvað skemmtilegt hægt að gera og hver dagur býður upp á nýja upplifun. Hver dagur úti býður upp á nýja upplifun.Aðsend Hvaða hverfi er í uppáhaldi? Eixample. Uppáhalds kaffihús og veitingastaður úti? Veitingastaðurinn La Balabusta og kaffihúsið Balzac Café. Hvernig er draumadagur fyrir þig úti? Ég elska að Barcelona býður upp á bæði gott veður, fjöll og sjó. Draumadagurinn væri líklega að fara í fjallgöngu með vinum, fara svo á ströndina í Castelldefels eða Gavà Mar og enda daginn á notalegum veitingastað. Barcelona býður upp á fjölbreytt umhverfi.Aðsend Hvað er skemmtilegast við lífið úti? Að geta ferðast auðveldlega um á hjóli eða gangandi, séð fallegar byggingar á leiðinni, verið með vinum og upplifað nýja hluti. Hefurðu fundið fyrir heimþrá? Auðvitað. En þá hugsa ég alltaf um hvað ég er þakklát fyrir að fá þetta tækifæri og hvað ég er heppin að eiga frábæra fjölskyldu sem styður mig og draumana mína. Hvað er framundan? Ég ætla að byrja að vinna sem barre-þjálfari hér úti og skrifaði nýlega undir samning við módel- og leikaraumboðsskrifstofu. Svo ætla ég auðvitað að halda áfram að leggja allan minn metnað í námið, enda kom ég til Barcelona fyrst og fremst til að læra. Helena kom fyrst og fremst út til Barcelona til að læra en skrifaði líka undir samning við fyrirsætu-og leikaraumboðsskrifstofu.Aðsend Hvað hefur komið þér mest á óvart við lífið úti? Hversu ólíkt skipulagið á náminu og daglegu lífi er miðað við það sem ég átti að venjast. Hvað er það steiktasta eða fyndnasta sem þú hefur lent í úti? Um daginn var ég að labba um borgina þegar starfsmaður frá módelskrifstofu stoppaði mig á götunni. Tveimur tímum síðar var ég búin að skrifa undir samning hjá þeim. Svona hlutir eru furðu algengir hér og gera lífið mjög spennandi. Sérðu fyrir þér að búa alltaf úti eða kallar Ísland á þig? Ég elska Ísland og mig langar klárlega að búa þar aftur einhvern tímann. En ég sé mig ekki flytja heim á næstunni. Helena sér sig ekki flytja til Íslands á næstunni. Aðsend Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til? Allt. Vinirnir, námið og sú staðreynd að maður getur flutt aleinn til borgar sem maður veit í raun ekkert um og er ekki viss um hvort maður muni fíla. Svo, minna en ári síðar, er hún orðin heimilið manns. Maður er umkringdur frábæru fólki, hefur byggt sér upp líf sem maður er stoltur af og vaknar spenntur fyrir því sem hver nýr dagur ber í skauti sér.
Íslendingar erlendis Tíska og hönnun Spánn Mest lesið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Lífið Fleiri fréttir „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Sjá meira