Eftirlit Alþingismanna með ráðuneytunum Pétur Halldórsson skrifar 2. júní 2026 20:02 Nú styttist í þinglok og ríkisstjórnin vill eflaust koma sem flestum málum í gegnum þingið. Að því tilefni vil ég vara sérstaklega við frumvarpi sem tengist mínum störfum og sérþekkingu. Um er að ræða frumvarp umhverfisráðherra um að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna, sem er til meðferðar hjá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Frumvarp á skjön við fagleg sjónarmið Skrifstofa umhverfisgæða í umhverfisráðuneytinu sá um undirbúning frumvarpsins og fullyrðir að það sé mikið umbótamál, jafnvel þótt allir sem starfa við heilbrigðiseftirlit hafi ítrekað bent á að frumvarpið myndi gera eftirlitið flóknara í framkvæmd og þannig skerða réttindi fólks til heilnæms umhverfis. Fleiri hafa gagnrýnt frumvarpið, s.s. sveitarfélög, almannavarnir og Krabbameinsfélagið. Hinn gullni meðalvegur Önnur sviðsmynd hefur þó verið kynnt í greiningarvinnu ráðuneytisins, sem felst í því að gera umbætur á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna án þess að leggja það alfarið niður. Sú lausn myndi tryggja samfellu í heilbrigðiseftirliti en á sama tíma gera kerfið einfaldara og skilvirkara líkt og kallað hefur verið eftir. Sérfræðingar í heilbrigðiseftirliti eru einróma um ágæti þessa valkosts og engin teljandi mótstaða er gegn honum. Skemmd epli í Stjórnarráðinu En hvers vegna vill þá ráðuneytið ekki fara meðalveginn í þessu máli? Hver ber hag af því að skerða fagþekkingu sveitarfélaga? Hvað vakir fyrir þeim sem vilja rjúfa samstarf ríkis og sveitarfélaga í svo mikilvægum málaflokki? Er þetta einlæg tilraun til umbóta eða liggur kannski eitthvað allt annað að baki? Sendið málið aftur til ráðuneytisins Kæru Alþingismenn. Ráðuneytin starfa í ykkar umboði og aðeins þið getið veitt þeim raunverulegt aðhald. Heilbrigðisfulltrúar hafa um árabil reynt að benda á hagkvæmar og raunhæfar lausnir en því miður talað fyrir daufum eyrum. Ég hvet ykkur því til að senda málið aftur til betri undirbúnings í ráðuneytinu - heilsa og líf fólks eru í húfi. Höfundur er heilbrigðisfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Nú styttist í þinglok og ríkisstjórnin vill eflaust koma sem flestum málum í gegnum þingið. Að því tilefni vil ég vara sérstaklega við frumvarpi sem tengist mínum störfum og sérþekkingu. Um er að ræða frumvarp umhverfisráðherra um að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna, sem er til meðferðar hjá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Frumvarp á skjön við fagleg sjónarmið Skrifstofa umhverfisgæða í umhverfisráðuneytinu sá um undirbúning frumvarpsins og fullyrðir að það sé mikið umbótamál, jafnvel þótt allir sem starfa við heilbrigðiseftirlit hafi ítrekað bent á að frumvarpið myndi gera eftirlitið flóknara í framkvæmd og þannig skerða réttindi fólks til heilnæms umhverfis. Fleiri hafa gagnrýnt frumvarpið, s.s. sveitarfélög, almannavarnir og Krabbameinsfélagið. Hinn gullni meðalvegur Önnur sviðsmynd hefur þó verið kynnt í greiningarvinnu ráðuneytisins, sem felst í því að gera umbætur á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaganna án þess að leggja það alfarið niður. Sú lausn myndi tryggja samfellu í heilbrigðiseftirliti en á sama tíma gera kerfið einfaldara og skilvirkara líkt og kallað hefur verið eftir. Sérfræðingar í heilbrigðiseftirliti eru einróma um ágæti þessa valkosts og engin teljandi mótstaða er gegn honum. Skemmd epli í Stjórnarráðinu En hvers vegna vill þá ráðuneytið ekki fara meðalveginn í þessu máli? Hver ber hag af því að skerða fagþekkingu sveitarfélaga? Hvað vakir fyrir þeim sem vilja rjúfa samstarf ríkis og sveitarfélaga í svo mikilvægum málaflokki? Er þetta einlæg tilraun til umbóta eða liggur kannski eitthvað allt annað að baki? Sendið málið aftur til ráðuneytisins Kæru Alþingismenn. Ráðuneytin starfa í ykkar umboði og aðeins þið getið veitt þeim raunverulegt aðhald. Heilbrigðisfulltrúar hafa um árabil reynt að benda á hagkvæmar og raunhæfar lausnir en því miður talað fyrir daufum eyrum. Ég hvet ykkur því til að senda málið aftur til betri undirbúnings í ráðuneytinu - heilsa og líf fólks eru í húfi. Höfundur er heilbrigðisfulltrúi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar