„Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Freyja Þórisdóttir skrifar 3. júní 2026 15:26 Jökull Þór Ellertsson segist vona að verkefnið geti haldið áfram að vaxa og að hann gæti vel ímyndað sér að fá tónlistarfólk með sér í lið í náinni framtíð. „Við þurfum átta knús á dag fyrir viðhald og tólf knús á dag fyrir vöxt“, segir Jökull Þór Ellertsson útskriftarnemi af Vöruhönnunarbraut Listaháshóla Íslands. Hann vann nýverið lokaverkefnið Ég elska elska sem að hans sögn var hugsað sem mótefni fyrir samfélagið á tímum þar sem hið mannlega sé að dofna.
Faðmlög, forvitni og það að elska eru meðal þess sem Jökull, sem er nýútskrifaður vöruhönnuður frá Listaháskóla Íslands (LHÍ), ákvað að kafa í við vinnu á lokaverkefninu sínu Ég elska elska, á tímum þegar heimurinn fer versnandi. „Fólk má eiginlega gera hvað sem er í lokaverkefninu sínu og lokaverkefnið mitt er Ég elska elska,“ segir hann Sindra Sindrasyni í nýjasta þætti af Ísland í dag. Hann bætir við að verkefnið sé sjónrænn og efnislegur heimur út frá orðinu elska. Í spilaranum hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni og meðal annars heyra hvaðan upprunalega hugmyndin að verkefninu kom. „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar,“ segir Jökull og ítrekar að hann vilji ögra fólki, fá það til að eiga samtöl og tengjast með verkefninu, þá meðal annars með því að sleppa orðinu að í nafni verkefnisins. Vill vinna áfram með verkefnið Jökull segist hafa gaman af því hversu gjarnir Íslendingar séu á að nota orðið elska þótt það sé verið að tala um eitthvað sem gæti virkað lítilvægt. Hann hafi áður unnið á leikskóla en þar hafi hann tekið eftir því í hádegismatartíma að börnin sögðust ekki hata fisk né sögðust þau ekki vera mjög mikið fyrir fisk heldur sögðu þau öll að þau „elskuðu ekki fisk“. Það eru sjö með Ég elska elska húðflúr, nema fleiri hafi fengið sér eins án vitundar Jökuls.Aðsend Hann segist hafa fengið mjög jákvæð viðbrögð við verkefninu og að það hafi meira að segja nokkrir gengið svo langt að fá sér húðflúr í anda verkefnisins. „Það var strákur á öðru ári í vöruhönnun, hann vildi fá tattú og ég sagði auðvitað. Svo var bekkurinn minn, fjölskylda og vinir að pressa á mig að fá mér líka tattú,“ segir Jökull og sýnir Sindra húðflúrið. Nú hafi að minnsta kosti fimm aðrir fengið sér eins húðflúr og segist Jökull vera spenntur fyrir því hvernig verkefnið gæti þróast áfram. „Það er draumurinn að halda áfram,“ segir Jökull og útskýrir hvernig honum finnst spennandi að fá fleira listafólk með sér í lið „þetta væri ekki plús heldur sinnum, sköpunarkrafturinn yrði bara sprengja,“ segir hann. Það að gera tónlistarplötu í sama þema gæti verið næsta skref verkefnisins.
Ísland í dag Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira